Búrið sprakk!
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
-
- Posts: 158
- Joined: 02 Apr 2007, 17:08
Næringin (fyrir snefilefni, s.s. járn) er frá Tropica, Aqua Care (Plantenæring flydende). Mjög góð. Flest næring sem maður kaupir inniheldur mun færri snefilefni og sumt bara járn. Verst hvað þessi er dýr hér á landi.Kristín F. wrote: -gróðurinn er glæsilegur, hvaða næringu ertu að nota?
Þegar flaskan af þessu klárast skipti ég yfir í Plantex CMS sem ég pantaði frá http://www.aquariumfertilizer.com/ enda mun ódýrara.
Ég er þess til viðbótar að gefa áburð fyrir nitur, fosfat og kalíum. Það geri ég með því að nota KNO3 og KH2PO4 uppleyst í vatni. Þetta fékk ég líka frá http://www.aquariumfertilizer.com/.
Svo er ég að bæta CO2 í búrið með því að nota Nutrafin CO2 ger kerfið en með minni eiginn gerblöndu.
Næringu/áburð gef ég eftir Estimative Index aðferðinni sem kveður á um 50% vatnsskipti vikulega og ríkulega áburðargjöf eftir ákveðnu kerfi.