Til sölu kuðungasikliður

Hér getur þú auglýst til sölu eða óskað eftir fiskum og fiskavörum

Moderators: Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Til sölu kuðungasikliður

Post by Vargur »

Til sölu Lamprologus ocellatus ungfiskar, ca 1.5 cm.
Þetta eru frábærir skemmtikraftar sem eru sífellt að passa upp á kuðinginn sinn, laga hann til og snyrta umhverfið.

Image

Verðið er 500 kr á stykkið.
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Ohh nú er maður bara ekki með pláss.
Kribbarnir myndu drepa nýja íbúa í hvelli enda búrið bara 54L.
En þetta er næst á óskalistanum.
Usss Vargur að gera mér þetta :P
Karen
Posts: 880
Joined: 15 Aug 2007, 21:48

Post by Karen »

hvað verða þær stórar?

gæti ein dugað í 55L búr?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Karlinn verður um 5 cm en kerlan eitthvað minni.
Ein er kannski fulllítið í 55 l. Par væri skemmtilegra, þá er best að byrja með nokkrar og bíða eftir að par myndist og láta hinar svo fara.

Hér er góð grein um þessa fiska, skoðið endilega myndböndin neðst á síðunni, þau eru lýsandi fyrir karakter þessara fiska.
http://www.cichlid-forum.com/articles/l_ocellatus.php
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Sæll félagi,ég skal taka fjögur stikki hjá þér :)
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

hæ,hæ

Eru e-h síklíður eftir? hef áhuga :)

Hversu stórt búr þurfa þær?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er alveg slatti eftir, nóg fyrir alla og sennilega afgangur. :)
Þessir fiskar þurfa ekki mikið pláss, ég held að par geti alveg verið í 20-30 lítra búri við góðar aðstæður en ég mundi mæla með stærra búri.
50-60 lítrar ætti að vera feikinóg.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

ég væri alveg til i nokkrar ;) amk 2, en málið er bara að maður er veðurteptur hérna heima. Svo ég kemst ekki bráðlega, ertu á hraðferð með að losa þig við þær eða ertu með mikið og kannski að rækta þetta og meira á leiðinni?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er með slatta og svo kemur örugglega meira. Ég get líka hugsanlega sent þér kvikindin.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Er hægt að senda fiska? Verður vatnið ekki kalt?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

hryggna þær eitthvað á þessum aldri?
hvað verða þær stórar ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Vargur wrote:Karlinn verður um 5 cm en kerlan eitthvað minni.
Þessar verða sennilega komnar í hrygningastuð eftir 1-2 mánuði.
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

hvað er hægt að hafa margar í 60l?
hvaða fiskar meiga vera með þeim ?
gæturu nokkið verið æðislegur og sagt mæer nöfnin á þeim sem geta verið með þeim :D :D
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

lilja karen wrote:hvað er hægt að hafa margar í 60l?
hvaða fiskar meiga vera með þeim ?
gæturu nokkið verið æðislegur og sagt mæer nöfnin á þeim sem geta verið með þeim :D :D
Þú ættir kannski að lesa þráðinn.
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

hvað þurfa þær að verða gamlar til að para sig?
eru þær nögu gamlar núna til að parast núna ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

lilja karen wrote:hvað þurfa þær að verða gamlar til að para sig?
eru þær nögu gamlar núna til að parast núna ?
Vargur wrote: Þessar verða sennilega komnar í hrygningastuð eftir 1-2 mánuði.
:roll:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Enn eitthvað til af kuðungasikliðum.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég leyfi mér að benda á að þetta eru bráðskemmtilegir fiskar.
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

heyrðu hérba koma einar af mínu bráðskemmtilegu spurningum :)
hvað mætti ég seta margar í 60l svo að ég gæti biðið þangað til þær parast ?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég mundi byrja með 4-6 og bíða eftir að par myndist, það er kannski séns að vera með kk og fleiri en eina kvk.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

hvað eru margar eftir? :wink:
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ca. 15 stk.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Sést eitthvað kynið eða er þetta bara suprise hvort þær verða?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég get séð það nokkurn vegin en ekki með fullri vissu, þess vegna er öruggast að taka nokkrar.
User avatar
lilja karen
Posts: 536
Joined: 14 Oct 2007, 21:21
Location: Akureyri. 17 ára

Post by lilja karen »

nennuru að taka 6stk fyrir mig?
er þetta ekki uppi fiskabur.is?
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Það gæti vel verið að ég komi á mrg í rvk, kíkji í fiskabúr.is.. Eru fiskarnir þar?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þeir eru hjá mér.
Post Reply