FISKAR Í HÆTTU

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Viktor Ingi Ágústsson
Posts: 3
Joined: 26 Sep 2007, 21:38

FISKAR Í HÆTTU

Post by Viktor Ingi Ágústsson »

FISKARNIR ERU KOMNIR MEÐ FULLT AÐ DOPPUM Á SPORÐINUM.ÉG VEIT EKKI HVORT ÞETTA ER EINHVER VEIKI. FISKARNIR HAFA VERIÐ AÐ DEIGJA UNDAN FARNA DAGA. LÁTIÐ VITA HVAÐ ÞETTA ER SEM FLJÓTAST
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

best er að senda mynd með þræðinum svo fólk sjái hvað þetta sé en ef þetta eru hvítir blettir svona eins og fiskarnir séu vel saltaðir þá er ég nokkuð viss um að þetta sé hvítbletta veiki og best er að annað hvort að setja slatta af salti í búrið og hækka hitan smá eða hreinlega fara út í næstu gæludýrabúð og fá lyf við þessu....
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ef að það eru smá punktar (doppur) á fisknum. Fiskurinn reynir oft að klóra sér eða nudda sér utan í hluti til að losna við þetta þá er þetta hvítblettaveiki. :) Settu salt í búrið (ég veit ekki hvað mikið en það fer eftir stærð búrsins) svo geturu líka keypt lyf gegn þessu í næstu gæludýraverslun.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

jæja þú ert svona hress síkliða :shock:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

JinX wrote:jæja þú ert svona hress síkliða :shock:
Ha ha, ég er hissa á að hann hafi ekki gert bara copy/paste :-)

Ágætt saltmagn við hvítblettaveiki er 1 matskeið á hverja 5-10 lítra.
Hækka hitann um 2-4° og auka súrefnisflæði.
Ef blettirnir minnka ekki eftir 1-2 sólarhringa þá er málið að kaupa lyf.
Ath að salt fer ekki vel með lifandi gróðri.
Post Reply