Hvað tegund?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Hvað tegund?

Post by Fanginn »

Sæl verið þið.
ÉG fór í dýrabúð um daginn og hélt að ég væri að kaupa Pelvicachromis taeniatus nigarian red, en núna er ég kominn með þá hugsun í hausinn að svo var ekki. Ástæðan fyrir þessum grun er sá að karlinn hjá mér er bara ekkert líkur þeim sem ég sé á myndum undir þessu nafni.

Veit einhver hvaða tegund þetta er ? Ég þykist nú vita að þetta sé "Pelvicachromis taeniatus" en hvaða týpa? vitið þið það?

Image

Takk fyrir mig.
jæajæa
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

það voru 6-7 afbrigði á heildsölulista síðast og enn fleiri afbrigði til

bara að googla og bera saman myndir
prófaðu P.taeniatus Bipindi

ef þetta er ekki hann þá er bara að leita á google
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Þetta er frekar þessi bipindi heldur en nigarian red allavega. Þó mér finnist vera sterkari litir í mínum , en enginn fiskur er eins.

Þá er ég farinn að halda að ég sé með karl og kerlu af sitthvorri tegundinni. Maður hefði haldið að starfsfólk í svona "vel metinni" fiskabúð ætti að geta séð þetta, og ekki selt manni bara "eitthvað" en svona er nú lífið og maður verður að taka því eins og það er ;)

En Guðmundur, eru einhverjir kribbar og/eða skyldir fiskar eftir í búðinni hjá þér?

Þakka fyrir þetta Guðmundur
jæajæa
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Þetta er minn fiskur:

Image

Hvaða fiskur haldiði að sé af sömu tegund og minn:

Image
Image
Image
Image

Mér finnst neðsti fiskurinn vera líkastur, hann er af tegnundinni : lokounjeg

Hvað finnst ykkur? :)
jæajæa
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það er svosem ekki alltaf að marka nöfn þótt virtar búðir séu að gefa þau upp - oft er það heildsalinn sem er ekki með hlutina á hreinu, og enn oftar er mjög erfitt að gera upp á milli afbrigðanna...


Ég myndi segja að bandawouri sé næst þínum, en myndirnar eru mjög misjafnar að gæðum og litirnir koma misjafnt fram og svona..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

myndi segja næst neðsta myndin :P
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Post Reply