ég fékk mér 3 gubby núna nýlega, 1 kall og 2 kellur.
þannig er málið að ein kellan hreinlega dó eina nóttina ,
ég skil ekki ástæðuna. Svo las ég mér verulega til hérna
á spjallinu og sá að einhver talaði um að setja salt(joðlaust )
í búrið, ég prófaði það, og allt í einu urðu hinir eftirlifandi 2 svaka
hressir og allt í gúddí:D, nema hvað kallinn heldur sig alltaf á
botninun og hefur gert það síðan ég fékk hann, hin kellan sem
er lifandi er ólétt og ekki langt í got hjá henni.
þannig spurningin er þessi, gæti þetta verið veiki? eða bara byrjendamistök hjá mér að vera ekki búin að setja saltið í fyrst? Og hvað gæti hugsanlega verið í gangi með kallinn hjá mér, þetta eru agalega fallegir fiskar og mér langar að þeim líði sem best!!!
Vona að einhver komi með góð ráð eða ábendingar!:D
takk takk
Vandamál með nýkeypta Gubby
Þetta er ólíklegt með gúbba. Ef þeir leggjast á botninn, þá er eitthvað að. Það er best að sleppa ráðleggingum ef þú þekkir ekki almennilega til fiskanna sem er verið að tala um.Síkliðan wrote:Kannski gefuru bara of mikið Ég þekki þetta reyndar bara hjá óskurunum mínum. Þeir leggjas tá botninn til að melta
Sástu einhver einkenni á fiskunum rúsína?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Þetta gæti verið velvet eða eitthvað svoleiðis.. þá kemur svona hvítleit filma á fiskinn, en yfirleitt eru svona einkenni á fisknum í amk 1-2 daga áður en hann drepst. Var kerlingin í góðu formi þegar þú fékkst hana?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
HANN dó:(
jæja þá kom að því, kallinn sem var eftir í gamla búrinu er dáinn, hann er farin á hliðina með svipuð einkenni og fyrri kellan, en seinni kellan er í góðum gír í sérbúri. ég henti gamla búrinu, bara til öryggis ef það skildi vera einhverskonar baktería í búrinu.