Búrin mín. Hryggning hjá Blace belt

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Búrin mín. Hryggning hjá Blace belt

Post by GG »

Áhvað að gera smá þráð um búrin mín.
Ég er með 9 búr í dag.
búr 1 ca 400 L með sump blandað búr t,d 2 pör Herotilapia multispinosa og hellingur af seiðum frá þeim

búr 2 og 3 ca 100 L t,d par af T-Bar

Nýjasta búrið er 400 L er þar með einn wc um 20 -30 cm vantar uppástungur um klefafélaga :lol:

Hin búrin eru í kringum 50 L með gotfiskum og seiðabúr t,d yellow lap og sverðdrögurum.
Last edited by GG on 12 May 2008, 09:45, edited 2 times in total.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

:mynd:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Síkliðan wrote::mynd:
Sammála. :D
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

nokkrar myndir en endilega komið með tillögur um klefafélaga með wc í 400 lítrunum

Image

Image

Image

Image

Image

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það sem ég mundi mæla með sem búrfélögum fyrir W. cat eru helst sikliður í stærri kantinum eða aðrir sæmilega stórir og hraðskreiðir fiskar.
Stórir barbar, td areliusarbarbi, risa-danio osf.
Er eitthvað sérstakt sem þú ert með í huga ?
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

var að spá í að hafa kuðungasikliður frá þér með þeim :rofl: en helst síkiliðjur sem er ekki mikkið stærri en 10 cm
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það ætti að ganga ef þær eru sæmilega hraðskreiðar en þú færð engin seiði því W. cat ryksugar hrognin upp um leið og þau birtast.
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

Get ég þá ekki bara notað þetta sem geymsllu búr fyrir fiska sem ég er ekki að nota. ræðst WC á aðra fiska ca 7cm og uppúr er ekki bara málið að fóðra hann vel.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hann á erfitt með að éta fiska sem er það stórir nema þeir séu slappir eða hægfara en ef þetta hugnast þér þá er það í lagi. :)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Þeir eru ekki beint að drepa og éta fiska sem að komast ekki uppí þá þeir eru alls ekki beint grimmir heldur böggarar á hæðsta stigi.
Minn er 20 cm og veður í Midas eins og ekkert sé (Midasinn er í sjokki því að hann er ekkert hræddur við hann)
Hann syndir sona utan í fiskana sem er frekar hlægilegt því að fiskarnir vita ekkert hvernig á að bregðast við þessu :lol: .
400L Ameríkusíkliður o.fl.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

til hamingju með 400lt.steingleimdy að láta þig fá einn listan á skápinn og perurnar :panna:
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

Takk fyrir það Ulli vonandi tekur þú perurnar með þér næst þegar þú kemur í bæinn.
En takk fyrir búrið er rosalega ánægður með það kem með myndir af því þegar það er komið í gang.
Í sambandi við WC þá er hann frábær hann tók á móti mér í hádeginu.

Image

og eftir að hann fór aftur í klefann sinn

Image

og að lokum seiðamynd. :D

Image
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

hahaha en fyndið með walking c... :lol: hefði verið gaman að sjá þetta með berum augum :D
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

:rofl: tók á móti þér já :P.fór hann upp úr 400lt búrinnu?
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

Ég hefði skilið ef hann hefði stokið uppúr því,en hann stökk uppúr fötunni sem hann var í, búrið var ekki tilbúið.Skil ekki hvernig hann fór að því :roll:
Kristín F.
Posts: 158
Joined: 02 Apr 2007, 17:08

Post by Kristín F. »

jahérna Guðjón minn, það eru ekki bara Discusar sem eru í sjálfsmorðshugleiðingum :lol:

..get vottað að fiskarækt GG er þvílíkt blómleg, frjósamt vatn með eindæmum í þessu húsi ;) ..hreinlega iðar allt af seiðum í nánast öllum búrum :)
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég vil update hvaða fiskar eru með WC :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

þeir sem eru með WC eru

2 x Rafael
2 x óskarar
5 x Demantasíkliður
1 x Black Beltinn
eitt par Convict

það sem er að frétta af öðrum búrum er að Sajica parið ( T-bar) er búið að hryggna :D
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Vá til hamingju með T-bar hrognin :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

Var að bæta við búri þannig að ég kominn langt yfir 2000 lítrana :lol:



Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það var laglegt ! :sterkur:
Hvað er þetta stórt ?
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

maður er eins og hobbiti hliðiná þessu. :lol:

Ég skal mæla það á morgun.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

ég seiji 3 metrar á leignd :engill:
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

þetta er ekkert smá :o er það uppi í gluggakistu? Þolir hún það alveg?
Hvað í ósköpunum á svo að fara í þennan risa ?
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ég ætla að taka villta ágiskun og segja að þetta búr sé 2.7metrar á lengd og um 950 lítrar :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það verður spennandi að sjá hvernig þetta endar hjá hobbitanum :P
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Ég veðja á að búrið sé 2.50 á lengd og 800 lítrar.
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

keli wrote:Ég ætla að taka villta ágiskun og segja að þetta búr sé 2.7metrar á lengd og um 950 lítrar :)
Ég gruna nú að keli hafi rétt fyrir sér :lol:
GG
Posts: 250
Joined: 22 Oct 2006, 10:57

Post by GG »

Búrið er 2,70 á lengd og 80 á hæð.
Last edited by GG on 24 Feb 2008, 02:29, edited 1 time in total.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Það er ekkert smá hvað eru þetta margir lítrar :P 8)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Post Reply