týnd ancistra... ?

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

týnd ancistra... ?

Post by Hanna »

kæru spjallverjar nú vantar mig smá hjálp.. málið er það að ég er með nokkra gubby, eina ancistru, einn talking catfish og einn convict en nú er ancistran horfin... hvort ætti ég að gruna catfishinn eða convictinn?? by the way það eru ekki nema sona 20mín síðan convictinn fór ofan í búrið...
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Þær eru svolítið klárar að fela sig.. er hún lítil?
Ég sé mínar ekki svo dögum skiptir svo allt í einu poppa þær upp :shock:
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

ekki nema 3-4cm... kærastinn minn er nebblega alveg að fara yfir um, hann er svo hræddur um að eikver af hinum hafi étið hana
:lol:
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Ég skal lofa ykkur að stubburinn lætur sjá sig.. bíðiði bara róleg. Þið hvort eð er gerið ekkert í því ef það er búið að éta hana. Sem ég stór efa.
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

ég hélt það líka :-) og takk fyrir svörin en ekki geturu sagt mér hvernig maður sér muninn á kk og kvk convict :?:
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Ertu með þessa hefðbundnu? röndóttu?
Ef svo er þá er kerlan svona á litinn, með rauðan kvið,
s.s. litríkari enn karlinn

Image


karlinn svona:
Image
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

ok takk :D ég er þá greinilega með kall... alveg nákvæmlega eins og neðri myndin... hvað þyrfti par stórt búr?
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Ég er með 2 búr 125L og 400L

Það er sitthvort hrygnadi parið í hvoru búri.

í 125L er allt í hershöndum og má enginn vera í friði fyrir þeim. Kallinn alltaf að argast í hinum síkliðunum. er t.d. búinn að strípa lítinn Jack Dempsey( btw færði 5 þeirra í 400L í dag)
finnst það hæfilega stórt fyrir eitt hrygnadi par, og ekki marga fiska í viðbót. hinir fiskarnir eru voða stressaðir.

En í 400L eru hellingur af fiskum og parið er bara í einu horninu með seiðin.
Mér finnst það betri kostur.. stórt búr.
Þetta eru ofsalegar frekjur, miklir foreldrar og skemmtilegar skeppnur.

þau hika ekki við að ráðast á mikið stærri fiska til að vernda ungviðið. t.d. ráðast þau á Gibbann sem er um 35cm og alltaf silast hann í burtu þegar þau byrja. :lol:

Ég er með 2 pör í minna búrinu, bara annað hrygnandi... og ég sé fyrir mér að ég verði að losa mig við þetta par sem er ekki að hrygna. veit ekki hvernig þetta verður þegar þau byrja.. þetta verður örugglega eins og hvirfilbylur. :shock:
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

lítið par þarf svo sem ekki stórt búr. Ég var með par í 30l og þau hættu hreinlega ekki að hrygna. En það er samt betra að hafa convict í 100l til þess að parið hafi nóg rými :) .
Ancistran er bara í smá feluleik :lol:
Mér tókst að týna 5 cm walking catfish í mánuð og fann hann svo í dælu hólfinu eftir 1 og hálfann mánuð og hann var kominn í rúmlega 10 cm :shock:
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég sá beinagrind af einni hjá mér fyrir 2 dögum. Hún var svona meðalstór og búin að vera í búrinu í nokkra mánuði.
Ég veit ekki hvort nokkur hefur drepið hana, á ekki von á því.
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

ok... nenni ekki að búa til annan þráð þannig ég set þetta bara hérna... ef ég væri með convict par í 60lítra búri gæti ég haft eitthverja aðra með þeim :?:
What did God say after creating man?
I can do so much better
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hugsanlega brúsknef eða lítinn plegga. Ekkert annað í svona litlu búri ef eitthvað vit á að vera í því.
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

ok... :? langar svo að vera með einhverja flotta og litríka fiska en þa eina sem mér dettur í hug að ég geti verið með í essu eru gubby... eru einhverjir fleiri sona litlir litríkir
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Fanginn
Posts: 406
Joined: 27 Jan 2008, 17:12

Post by Fanginn »

Ég er með convict par í 110 L búri. Var með einn brúsknef með þeim, og það var allt í lagi þangað til þau hrygndu. Þá eltu þeir hann endalaust og létu hann ekki vera. Hann náði að bjarg sér með því að troða sér inní lítið gat þar sem rörið kemur útúr dælunni. Ég bjargði honum þaðan og setti hann í hitt búrið, með tætta ugga.

Ég mundi ekki hafa brúsknef i 100L búri með convict, ekki nema að það séu felustaðir fyrir hann þar sem convict kemst ekki að.
jæajæa
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Fanginn wrote:Ég er með convict par í 110 L búri. Var með einn brúsknef með þeim, og það var allt í lagi þangað til þau hrygndu. Þá eltu þeir hann endalaust og létu hann ekki vera. Hann náði að bjarg sér með því að troða sér inní lítið gat þar sem rörið kemur útúr dælunni. Ég bjargði honum þaðan og setti hann í hitt búrið, með tætta ugga.

Ég mundi ekki hafa brúsknef i 100L búri með convict, ekki nema að það séu felustaðir fyrir hann þar sem convict kemst ekki að.
Fyrst að brúsknefur getur það ekki - þá geta gúbbí það alls ekki.
Eins og allir aðrir hafa verið að segja Hanna, þá neyðistu til að láta parið hafa búrið útaf fyrir sig, þeir eru einfaldlega svo mikið pain in the ass þegar þeir hrygna.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

ok þá verð ég bra að finna mér eikverja aðra fiska til að hafa í þessu... takk fyrir svörin allir :D
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

ein reynslusaga í viðbót...

parið sem ég er með í 125L.. Er búið að drepa 1 fisk og er á góðri leið með að drepa annan.

Þau eru að ganga frá liðinu sem er í búrinu. ( nú þegar er ég búin að færa nokkra í stóra búrið og ég verð örugglega að færa restina á næstu dögum )

Ég hugsa að ég verði að óska eftir einhverjum sem vill bjarga litlum Jack Dempsey... hann er allt of lítill í durgabúrið.. og hann mun enda dauður á næstu dögum.

Vill einhver á höfuðborgarsvæðinu bjarga honum.. hann er um 2-3 cm?
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

ég skal bjarga honum ef þú vilt :)
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

"Síkliðan" er búin að bjóðast til að taka hann.. en hann (Jakob) kemst ekki fyrr en á laugardag eða sunnudag að sækja hann.

Er þetta ekki bara orðið fyrstur kemur fyrstur fær... honum verður að bjarga fljótt.. ekki viss um að hann verði lifandi á laugardag / sunnudag.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Jakob virðist hafa endalaust pláss, ég er hissa á að hann skyldi ekki bjóðast til að geyma hákarlinn úr fiskabur.is :lol:
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Einmitt ég mundi gjarnann vilja hafa jafn mikið pláss og Jakob :roll: Annars hefði ég getað troðið hákarlinum í frystikistuna :lol:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Vargur wrote:Jakob virðist hafa endalaust pláss, ég er hissa á að hann skyldi ekki bjóðast til að geyma hákarlinn úr fiskabur.is :lol:
:rofl:
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég er með laust búr sem er nógu stórt fyrir 2-3cm fisk :)
Ég held að hákarlinn sé ekkert á leiðinni til mín :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

Brynja wrote:"Síkliðan" er búin að bjóðast til að taka hann.. en hann (Jakob) kemst ekki fyrr en á laugardag eða sunnudag að sækja hann.
síkliðan má þá fá fiskinn :) sjálfur kemst ég ekki fyrr en á morgun :) vona að fiskurinn lifi þetta af
Premium
Posts: 123
Joined: 14 Jan 2008, 16:54
Location: Hveragerði

Post by Premium »

Hanna wrote:ok þá verð ég bra að finna mér eikverja aðra fiska til að hafa í þessu... takk fyrir svörin allir :D
Dvergsíklíðupar væru eflaust mjög skemmtilegur kostur fyrir þig. Hér geturðu fundið mjög fróðlegar upplýsingar um þessa fiska auk mynda.
Post Reply