Veikur otocinclus ?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Veikur otocinclus ?

Post by RagnarI »

Já ég er semsagt með 3 Otocinclus Affinis í búrinu mínu og rétt áðan tók ég eftir því að augun á einum þeirra eru útstæð en annað virðist ekki vera að honum, hann syndir um, virðist sjá, ekkert bólginn eða þrútinn og er ekki með hvíta bletti þannig að ég hef ekki hugmynd um hvað gæti verið að honum. Mér þótti bara leiðinlegt að sjá hann svona greyjið með útstæð augu og langar einnig að vita hvort þetta smitast í aðra fiska?

með von um svör
Ragnar Ingi
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Pop eye kemur oft út af slæmum aðstæðum í búrinu. Léleg vatnsgæði, of margir fiskar, stress og offóðrun eru algengar orsakir.
Hressileg vatnsskipti ná oft að laga þetta.

Hér er grein um pop-eye
http://www.fishlore.com/aquariummagazin ... popeye.htm
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

ef eitthvað er að marka þessi tetra test þá er allt í lagi með vatnið hjá mér en þar sem miklar breytingar hafa verið á búrinu gæti þetta þá verið útaf stressi er þá til einhvers að vera að skipta um vatn
ég skipti síðast um í gær.
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

skoðaði hann betur núna áðan hann er svolítið úfinn þannig að ég held þetta sé positive dropsy. er það smitandi? ætti ég að láta hann fara eða lagast það?
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ef þú heldur að þetta sé dropsy þá mæli ég með að láta hann fara.
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

Jæja nú eru allir 3 nýju otocinclusarnir mínir farnir og annar humarinn líka

Humarinn var ekkert búinn að borða í mánuð

og ein spurning til humareigenda hafa humrarnir hjá ykkur verið að sniðganga mat. hinn humarinn hefur fúlsað við 2 otocinclusum og einum cherry barba
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Humrarnir eru ekki vanir að vera matvandir, hann gæti verið með ungviði undir halanum og haldi sér þess vegna til hlés.
Post Reply