Óskar Par

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Óskar Par

Post by Squinchy »

Var að koma heim rétt áðan og sá þessa skemmtilegu sjón :)
Image
Það er búið að vera svakalegur hamagangur í búrinu seinustu 2 mánuði og óskarinn lamið búrfélagana duglega frá þessum stein, ég var farinn að halda að þau væru bara orðin eitthvað rugluð en þetta réttlætir sig allt saman núna :), það er bara vonandi að það komi eitthvað úr þessu hjá þeim :D

Einhver með það á hreinu hvað eggin eru lengi að opnast ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
thunderwolf
Posts: 232
Joined: 17 Aug 2007, 15:02
Location: Hafnarfjörður

Post by thunderwolf »

til hamingju með það
User avatar
jeg
Posts: 701
Joined: 30 Aug 2007, 22:58
Location: Hrútafjörður
Contact:

Post by jeg »

Skuggalega töff litur.
Gaman að þessu. :wink:
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Til hamingju með þetta :D
Gætiru kannski reddað mér nokkrum seiðum (ég skal borga) ef að allt gengur vel :P
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

úúú, en gaman og spennandi! Til hamingju og vona þetta gangi upp!
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Takk :), já vona að þetta gangi eitthvað hjá þeim en ég hef mikkla trú á að kribbinn nái þó nokkrum ef það koma seiði :)

Síkliðan já það gæti alveg verið
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Svo er líklegast að þau setji sig aftur í hrygningarstellingar ef að þú tekur seiðin :D

Ég skal fá eitthvað ef að þú ert að losna við seiði :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Getum við fengið heildarmyndi af búrinu og kannski lista yfir það sem að er í búrinu :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

nohhh glæsilegt :P
User avatar
Mozart,Felix og Rocky
Posts: 409
Joined: 03 Jan 2008, 17:33
Location: 116 Kjalarnes
Contact:

Post by Mozart,Felix og Rocky »

Til hamingju :D óskarinn þinn er ekkert smá flottur :D
Kv.Dízaa og Co. ;)
User avatar
Brynja
Posts: 1507
Joined: 04 Nov 2007, 20:36
Location: Fædd:1980

Post by Brynja »

Til hamingju með þetta.. þetta er ekkert smá spennandi!
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Tek heildar mynd af búrinu seinna ætla bara að trufla óskarana sem minnst í nokkra daga og leifa þeim að einbeita sér að eggjunum

En það sem er í þessu 600 lítra búri er
2 óskarar
1 Jack Dempsy
1 Green Terror
2 Fire mouth
1 15cm Gibbi
1 11cm Pleggi
og kanski svona 10+ kribbar
Kv. Jökull
Dyralif.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það var laglegt !
Mínir eru eimitt pottþétt par og eru greinilega að komast í stuð líka.
Premium
Posts: 123
Joined: 14 Jan 2008, 16:54
Location: Hveragerði

Post by Premium »

Flott mál. Hvað ertu með stórt búr undir herlegheitin?
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Flottur Vargur :góður: :D

Er með þau í 600 Lítrum, Stór efa nú samt að eggin séu frjó, þetta er í fyrsta skiptið hjá þeim og eggin eru frekar hvítleit :P
Kv. Jökull
Dyralif.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ekki örvænta. Það er eðlilegt að hrognin hjá óskurum séu hvít í fyrstu.
Premium
Posts: 123
Joined: 14 Jan 2008, 16:54
Location: Hveragerði

Post by Premium »

Þar sem enginn hefur enn svarað einu spurningunni sem Squinchy bar upp í upphaflega þræðinum, spyr ég af eigin forvitni - hvað eru eggin lengi að opnast/klekjast?
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

[quote="Premium"]Þar sem enginn hefur enn svarað einu spurningunni sem Squinchy bar upp í upphaflega þræðinum, spyr ég af eigin forvitni - hvað eru eggin lengi að opnast/klekjast?[/quote]

það sem ég var að lesa mig til um þá tekur klakið um og yfir 3 daga, samt fer það allt eftir hita stigi í búrinu

http://www.oscarfishlover.com/content/view/20/40/

sést betur hér
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Eggin voru ófrjó eins og mig grunaði og er það ekkert óalgengt í fyrsta skiptið :P, kribbarnir sáu um tiltektina mér til mikillar ánægju :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

leiðinlegt :(
Þú verður kominn með fleiri hrogn fljótt :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

Var kominn fungus í öll eggin ?
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Já mjög líklega þar sem parið er strax byrjar að flakka á milli steina og reyna að velja nýjan stað

Nei ekki öll, en það var farið að sækja í sig veðrið á 4 deginum og þá vöru flest öll farin og restin með byrjunarstig af fungus

Ég tek örugglega næsta sett frá þeim og set í Hethylen Blue bað með loftstein og hitara og sé um þetta sjálfur, Kribbinn sækir svo mikið í eggin :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Squinchy wrote:...og set í Hethylen Blue bað...
Hvar fær maður annars methylen blue? fæst þetta kannski í apótekum?

Ég notaði vetnisperoxíð núna síðast með skala hrogn, með mjög góðum árangri. Mun öruggleg nota það aftur, ja eða methylen blue - ef það er eitthvað aftur.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ég fékk þetta nú bara gefins þannig að ég er ekki viss hver flytur þetta inn en annars virkar hvaða efni sem er, þetta efni er bara vinsælt erlendis og því var það fyrir valinu yfir önnur Fungus lyf :P
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Anna
Posts: 232
Joined: 23 Jul 2007, 22:33
Location: Reykjavík

Post by Anna »

Já, ég hef séð að þetta er mjög vinsælt sem anti fungus lyf, en það verður að fjarlægja það strax og seiðin eru farin að synda minnir mig, sem þarf ekki með vetnisperoxíð.

Annars ætlaði ég að grípa þetta í vinnunni, en gleymdi því. Var bara að velta því fyrir mér hvar þetta fæst - ekki gott að stóla á vinnuna... :ekkert:
Ellig
Posts: 99
Joined: 10 Feb 2008, 17:06
Location: Breiðholtið:D

Post by Ellig »

hrigna þei bara eða þarf að setja ikkvað sérstagt í vatnið til að þeir hrigna?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ellig wrote:hrigna þei bara eða þarf að setja ikkvað sérstagt í vatnið til að þeir hrigna?
Þeir bara hrygna. Það hjálpar þó að gefa mikið af ferskum mat og skipta um mikið af vatni til að hjálpa þeim í gang.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply