Frændi minn var að tæma búrið sitt þannig að ég er með þá í pössun í óákveðinn tíma - vonandi sem lengst
Helvíti fallegir, tóku smá mat hjá mér áðan þótt að þeir hafi eytt 2-3klst í fötu í dag... 8 feitir discusar í einni 10 lítra fötu... Þetta eru ekki alveg blúndurnar sem margur vill meina.
Er pínu að pæla núna hvort það sé algengt að þessi kvikindi stökkvi uppúr búrum? Yfirborðið í búrinu sem þeir eru í eins og er er 3-5cm frá brúninni og það er ekkert lok þannig að ég er að pæla hvort maður eigi eitthvað að stressa þig á því?
Ég hef ekki heyrt að þeir séu mikið í því að stökkva enda ekki lipurlega vaxnir.. en maður veit aldrei.
Getur þú ekki strengt plastfilmu (VitaWrap) yfir búrin til að vera viss?
Það væri hundfúlt að finna þá á gólfinu.
Ég var bara að pæla í þessu vegna þess að þeir voru svo andskoti hressir þegar ég veiddi þá uppúr búrinu sem þeir voru í fyrir... Bleyta all over the place
Enginn á gólfinu núna - redda mér einhverjum planka eða filmu ofaná búrið í dag.
Ég var að tala við Tjörva í dag og hann talaði um að hann væri að fara að flytja inn lifandi fóður, það gæti verið spennandi að gefa það.
Ég er ekki alveg með á hreinu hvað það er(þ.e. hvaða tegundir), ég fylgist spennt með.
Líklega lifandi moskítólirfur allavega... Amk ef hann var að tala um fiskafóður.
Getur ekki verið að hann hafi verið að tala um eitthvað fyrir fugla líka, og þá er það væntanlega engisprettur, mjölormar og kribbur... kannski einhverjar flugur líka.
Hann talaði nú ekkert um fuglafóður við mig enda veit hann að það er eins og að tala við vegg... ég þarf að kanna þetta betur áður en ég fer að ljúga einhverju.
Ásta wrote:Hann talaði nú ekkert um fuglafóður við mig enda veit hann að það er eins og að tala við vegg... ég þarf að kanna þetta betur áður en ég fer að ljúga einhverju.
Já, heyrðu í honum - ég er alveg til í að kaupa eitthvað svona gums. Veistu hvenær hann var að hugsa um að taka þetta inn?
Já eins og flóki skúbbaði hérna, þá eru diskusarnir búnir að hrygna hjá mér...
Hörmulegar myndir þar sem ég vildi ekki vera að bögga parið of mikið, en læt þetta duga í bili.
Það sést þarna ógreinilega í hrognin ofaná þörungasköfunni...
Verst að ég þarf að líklega aðeins að bögga parið þar sem að það eru 2stk aðrir discusar með þeim og ein lítil ankistra sem ég gæti vel trúað til að éta hrognin... Sé til hvort ég angri þau í kvöld eða hvað.
Skítugt? Ekkert sérstaklega, smá brúnþörungur því ég hef ekki verið með neina þörungaætu þarna, en annars er þetta frekar hreint, og vatnsgæðin eru mjög góð, ammónía og nítrít 0 og nítrat undir 10.
Það er bara mjög eðlinlegt að eldisbúr séu með þörung þar sem það er ekkert sniðugt að vera trufla parið með hreingerningar látum á skaðlausum þörung, hvað þá að vera bæta fiskum í búrið sem geta étið eggin frá parinu
Myndi bara láta parið vera eitt í búrinu, engin þörf á CUC (Clean Up Crew)
p.s. síðan á þörungur ekkert að vera myndast í eldisbúri nema of gjöf sé til staðar eða ljós beint yfir búrinu sem er engin þörf á, parið verður mun öruggara ef minni birta er í búrinu
Jæja, fullt af hrognum eftir eftir nóttina. Þeir létu það greinilega ekkert á sig fá þótt ég fór að veiða hjá þeim í gærkvöldi og færði 2 aðra discusa sem voru með þeim, með tilheyrandi hamagangi og látum
Hrognin virðast vera frjó, þannig að ég bíð spenntur eftir hvernig þetta verður eftir 3 daga
Ólafur wrote:Hvaða hitastig er á vatninu hjá discusunum Keli?
Þarf hitastigið að vera eitthvað lámark til að þeir fari að hrygna?
Þeir eru í 26-27 gráðum hjá mér. Ég gaf þeim helling af blóðormum í fyrradag, og svo svona klst áður en þeir byrjuðu að hrygna þá gaf ég þeim slatta af blóðormum í viðbót.. Mig grunar að það hafi hjálpað til við að fá þá til að hrygna.