Bardagafiskarnir okkar/Eh...ákvað að gera körlunum greiða:-D

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Karlinn kíkti á þetta...vifturnar voru lausar. En samt er voða læti í viftunum.. bara svona eins og viftur eru. Þannig að þetta ljós verður bara í gangi yfir daginn og svo slökkt þegar við komum heim.
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Jæja, langaði að sýna ykkur nýja búrið svona með gróður og setti kuðunginn minn í og er bara mjög ánægð.. hvernig finnst ykkur svo??

Image
Reyni að sýna í close up með gróður og kuðung...ekki gæða myndavél :oops:
Image Image

Heildarmynd, og svo heildarmynd þegar búið er að slökkva stofuljósið.

Image
Jæja svo eru nýir íbúar komnir nú þegar. Tveir brúsknefjar(finnst íslenska nafnið svo fyndið)... En víst þeir plömma sig svona vel.. er ekki í lagi að setja bardagakerlurnar þá einnig í?

Já og mér finnst þetta ljós voðalega sérstakt... vatnið verður svo dökkt eitthvað, en ef ég slekk þá er þetta nú bara mjög tært og fínt vatn...
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Oh leiðindi.

Um daginn ákváðu bardagakerlurnar að stútta gulu kerluna.

2 dögum seinna fékk ég mér aðra kerlu sem leit alveg eins út.
Í gærkveldi sá ég að sporðurinn var eitthvað smá búið að narta í og svo í morgun.
Líka dáin...

eitthvað er það við gular kerlur sem hinum líkar ekki við.
Hélt það væri vegna litla vasann sem þau voru í . En núna eru þau í 63Lbúri...


Já talandi um það.

búin að setja kerlurnar yfir og þeim virðist bara líða vel..fyrir utan þess gula :oops:
Ég og karlinn eyddum upp í klukkutíma að veiða bláu neon tetrurnar upp úr hinum búrinu og skelltu þeim yfir... váááá hvað er erfti að ná þessum skottum, alltof margir felu staðir.

Þið hefðuð örruglega öll legið á maganum ef þið hefðuð fengið að fylgjast með.

2háfar voru í sögunni og endalaust að slá í búrið..greyi hinir fiskarnir :?

En að mínu mati er þetta baaara flott. mér finnst þetta búr flottara en hitt en karlinum finnst það gamla vera flottara :-)
Rós
Posts: 128
Joined: 24 Jan 2008, 18:15

Post by Rós »

Jæja. alveg sama hversu flott var að hafa karlana í þessum vösum þá var ég ekki alveg ánægð með að alveg sama hversu oft ég reyndi að þrífa upp eftir þeim, þá bara leit út eins og þeir væru að deyja í sinni eigin mengun.

Þannig að. ég einfaldlega setti karlinn minn í 60L búrið og setti karl hans karlsins minns í búrið hjá kerlunum.



Auðvitað ekki frjálsann samt sem áður :P

Hann er í gotbúri og fíla sig fínt.

Og minn karl líka :-)
Post Reply