Skítug búr
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Skítug búr
Ég er að pæla las umræðu efni á barnalandi og las þar að einhver hafi farið í dyrabúð og öllbúrin voru græn af drullu !! er það ekki slæmt fyrir fiskana eða þeirra heilsu
-
- Posts: 1482
- Joined: 20 May 2007, 01:16
- Location: rvk
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
http://er.is/messageboard/messageboard. ... =52&page=1
hérna fann ég umræðuna, hún var þó að hugsa um velferð dýranna
hérna fann ég umræðuna, hún var þó að hugsa um velferð dýranna
Vargur wrote:Það gæti verið gaman að fá hlekkinn á þessa umræðu á barnaland.is
Umræðurnar þar geta verið skondnar enda margir sem láta ljós sitt skína sem ekki voru upp á þaki þegar Guð deildi út gáfunum.
Var ekki ráðlagt þar að ef manni langaði að starta fiskabúri væri m.a hægt að hræra Kavíar útí volgt vatn og "voila" það varð líf
Ace Ventura Islandicus
Það er vissulega virðingarvert að hugsa um velferð dýra en ekki alltaf sem dýravernd og fáfræði eiga saman.Andri Pogo wrote:http://er.is/messageboard/messageboard. ... =52&page=1
hérna fann ég umræðuna, hún var þó að hugsa um velferð dýranna
Flestar ef ekki allar verslanir á Íslandi hugsa mjög vel um dýrin og eru fiskar sjálfsagt ekki undantekning á því.
Þó fiskabúrið virðist skítugt er ekki endilega samhengi á milli þess og að fiskunum líði illa heldur jafnvel þvert á móti þar sem þörungurinn nærist á úrgangsefnum í vatninu og margir fiska éta þörunginn.
Búr full af þörung eru þó fráhrindandi og fólk sem vill eignast fiska fælist frá, ef búrin eru ekki falleg í búðinni þá telur folk oft að þau verði ekki falleg á þeirra heimili og það er alveg sjálfsagt að benda starfsfólki á að maður hafi ekki áhuga á að versla fiska úr búri sem varla sést inn í fyrir þörung.
Þess má líka til gamans geta að margar tegundir þeirra fiska og froskdýra sem seld eru í verslunum eiga náttúruleg heimkynni í drullupollum sem við mundum ekki stíga ofan í í stígvélum.
Það væri ágætt að einhver sem er skráður inn á barnaland setji þetta svar inn í umræðuna og jafnvel hlekk á umræðuna hér svo ekki komi til skipulagðra mótmæla fyrir utan þessa umræddu verslun.
Sumt fólk er nú ekki í lagi
Ef maður gæti horft í þingvallavatn í gegnum stóra rúðu þá væri landvörður að skafa glerið reglulega ef það ætti að sjást í gegnum það.