Hrygning í gangi.

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
magnum
Posts: 12
Joined: 09 Dec 2006, 18:29

Hrygning í gangi.

Post by magnum »

Óskara parið mitt er alltaf að hrygna.
Búinn að ná einu sinni undan þeim og koma í söluhæfa stærð sirka 35-40 stk.
Plegginn minn og Baksindarinn (Upside Down Catfish) minn eru að springa úr fitu, fá vænan hrognaskammt á 3 vikna fresti.



Image

Image

Image
Last edited by magnum on 09 Mar 2008, 19:13, edited 1 time in total.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Vá ekkert smá gaman hjá þér :D
Hvað er parið í stóru búri? :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hann er alveg hnöttóttur kattfiskurinn. :)
Er ekki málið að láta hann bara fara og leyfa parinu að koma upp seiðum í friði ?
User avatar
Hrappur
Posts: 459
Joined: 16 Sep 2006, 16:28

Post by Hrappur »

Vargur wrote:Hann er alveg hnöttóttur kattfiskurinn. :)
Er ekki málið að láta hann bara fara og leyfa parinu að koma upp seiðum í friði ?
................sammàla , gaman ad fà ad fylgjast med tessu hjà ter magnum
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Já, væri gaman að sjá hrúgu af óskaraseiðum koma úr þessu :)


Er langt síðan þú komst upp þessum 20-25 seiðum?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
magnum
Posts: 12
Joined: 09 Dec 2006, 18:29

Post by magnum »

keli wrote:Já, væri gaman að sjá hrúgu af óskaraseiðum koma úr þessu :)


Er langt síðan þú komst upp þessum 20-25 seiðum?
Seldi ungana í Dýraríkið á Akureyri í júní byrjun 2007.
Það klöktust út 280 ungar, en ég fékk ónýtar artemíur þannig að það voru aðeins þau seiði sem fengu lifandi fæði sem komust á legg.
Það var farið að lengja á milli hrygninga hjá þeim, en svo átti ég engar rækjur og prufaði að gefa þeim hvolpamat (þurrfóður) og þá varð allt vitlaust aftur. Nú bryðja þeir hvolpamatinn eins og ekkert sé (vilja helst ekkert annað) og hrygna með reglulegu millibili.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

hahaha hvolpamat, það hefði mér ekki dottið í hug :)

Verður vatnið ekkert fúlt ef þú gefur hvolpamatinn oft?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
magnum
Posts: 12
Joined: 09 Dec 2006, 18:29

Post by magnum »

Ég hef gefið þeim 2 á dag í nokkrar vikur og vatnið er ok.
Þetta er svo helv.. hart að þeir eru nokkra stund að bryðja þetta niður.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Frábært, gangi þér vel með þetta :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
Post Reply