Þetta með pH er að stríða mér á Króknum þar sem heitavatnið er pH 9,3 en það kalda er pH 7,3 þannig að ég kom mér upp varmaskiptir þannig að ég hita kaldavatnið upp en ef sýrustigið á heitavatninu væri í lagi þá væri ég bara að nota það. það gerði ég alltaf áður og var í fína lagi.
keli wrote:Búinn að prófa að troða discusana út af nautshjarta og skipta um mikið af vatni?
Ég er búinn að vera hógvær á vatnsskiptunum, skipti síðast ca 30% eftir hrygninguna um daginn en skipti svo ríflega áðan, ca 60%
Ég hef bara gefið þurrfóður og aðeins frosna artemíu, nú fer ég að belgja þá út.
keli wrote:Búinn að prófa að troða discusana út af nautshjarta og skipta um mikið af vatni?
Ég er búinn að vera hógvær á vatnsskiptunum, skipti síðast ca 30% eftir hrygninguna um daginn en skipti svo ríflega áðan, ca 60%
Ég hef bara gefið þurrfóður og aðeins frosna artemíu, nú fer ég að belgja þá út.
Iss, allir discusasérfræðingar sem maður hefur verið að lesa dálka hjá sammála um að maður þarf að gefa próteinríkt og ferskt til að fá þá í hrygningastuð, ásamt ríflegum vatnsskiptum.. Þurrmatur getur svosem gengið, en hitt er vænlegra til árangurs.
Diskusarnir eða hjartasjúklingarnir eru að koma til, þeir hafa síðustu daga fengið blóðorma en engin hjörtu og eru alveg vitlausir í þá, svo vitlausir í ormana að þeir koma upp á móti manni þegar maður nálgast búrið en eru svo fljótir að breytast aftur í taugahrúgur ef maður hnerrar í 10 metra radíus við þá. Þeir verða sennilega að fara á heilsuhæli þegar börnin koma heim.
Já þetta eru ferlegar taugahrúgu, hjá mér eru yngri fiskarnir farnir að jafna sig og eru að vera komnir með réttu litina en 2 ára fiskarnir eru ennþá ferlega trekktir og dökkir á litinn,annars hef ég verið að gefa einhverja hjartagúmmulaðisblöndu sem mister Guðmundur sagðist gefa sýnum fiskum en mínir eru ekkert hrifnir af því,skil þetta ekki því fiskarnir mínir eru frá honum,kannski tekur þá bara svona langan tíma að venjast nýum stað,annars eru þeir mjög hrifnir af blóðormunum :)hafa þeir ekkert hrygnt hjá þér aftur ?
Einkennilegir fiskar... ég var að leika mér að því að klappa mínum í gær
Mínir reyndar stressast aðeins upp ef það eru mikil læti í kringum búrið, en þeir eru fljótir að koma aftur og sníkja. Maður hefði haldið að þínir væru búnir að venjast þessu fyrir löngu...