Alien???

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Skrudda
Posts: 58
Joined: 19 Aug 2007, 23:42
Location: Akureyri

Alien???

Post by Skrudda »

Í fyrradag tók ég eftir að ein svarta mollý kerlingin mín er komin með hvíta, örlítið útstæða gotrauf og þegar ég tók eftir þessu þá var eins og "fálmari" út úr henni... núna áðan tók ég eftir því að það eru komnir eins og 2 "fálmarar". Einnig er hún töluvert feit allt í einu sem hún var ekki í gær.
Nú hef ég aldrei áður verið með mollýar og þessar eru tiltölulega nýlega keyptar og hefur engin þeirra orðið ólétt... allavega ekki eftir að ég fékk þær.

Veit einhver hvað málið er... er hún ólétt af fálmarageimveru eða hvað er málið???
When I discovered the meaning of life... they bloody well changed it :(
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hljómar eins og ormaveiki, þá standa fínir þræðir út úr rassgatinu á fiskunum. Þetta er alger óþverri að losna við. Ég endaði á að slátra fiskum sem fengu þetta hjá mér.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þetta er í einhverjum gúbbum hjá mér... grunar að ég þurfi að slátra þeim öllum og fá mér nýja...

Þekkirðu hvað þetta lifir lengi í búrum vargur? Og hvernig þetta smitast?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ef ég man rétt þá þá er þetta hringrás, fiskarnir éta eggin og ormarnir myndast í þeim osf.
Ég var heillengi að berjast við þetta, brimsaltaði og notaði ormalyf, þetta datt niður um tíma en kom svo upp aftur. Á endanum slátraði ég svo fiskunum og sótthreinsaði búrið.
User avatar
Skrudda
Posts: 58
Joined: 19 Aug 2007, 23:42
Location: Akureyri

Post by Skrudda »

Má ég þá búast við að allt "stóðið" sé að fara að fá orma? Mér er ekki ætlað að vera með fiska ég er að segja ykkur það. Ég keypti búrið í apríl held ég og þá yrði þetta í 3ja skiptið sem ég þyrfti að starta búrinu frá grunni :evil:
When I discovered the meaning of life... they bloody well changed it :(
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ef fiskurinn sem sýnir einkennin er nýkominn í búrið þá mundi ég láta hann hverfa og vona það besta.
User avatar
Skrudda
Posts: 58
Joined: 19 Aug 2007, 23:42
Location: Akureyri

Post by Skrudda »

Held reyndar að þetta sé sú sem ég er búin að vera með lengst af mollýunum... losa mig við hana einn, tveir og tíu..., krossa putta og vona það besta.
When I discovered the meaning of life... they bloody well changed it :(
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Vargur wrote:Hljómar eins og ormaveiki, þá standa fínir þræðir út úr rassgatinu á fiskunum. Þetta er alger óþverri að losna við. Ég endaði á að slátra fiskum sem fengu þetta hjá mér.
Bögg.. Mér heyrist að allt mitt sé með þetta.. Þarf maður að starta búrinu alveg uppá nýtt til að losna við þetta (með sótthreinsun og dauðhreinsun og öllu)?
Líka að spá, ef það eru ekki allir með einkenni ("fálmara") er þá líklegt að þeir séu ekki sýktir?
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Éta þessir ormar fiskinn upp að innan eða bara fjölga sér og sprengja svo fiskinn?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ormarnir taka næringu frá fiskunum sem á endanum veslast upp.
Fiskar sem ekki sýna einkenni geta líka verið sýktir og það er ekkert ólíklegt að sumir fiskar séu með þetta lengi án þess að sýna einkenni ef mótstöðuaflið er gott.

Þegar ég sótthreinsaði búrið þá notaði ég að mig minnir bara haug af salti og lét standa í nokkra daga því væntanlega er líftími eggjanna ekki langur. Ekkert hefur borið á þessu eftir þetta og það er allavegana hálft ár eða meira síðan þetta var.
Sjálfsagt er öruggara að nota klór eða Virkon til að sótthreinsa en ég hef tröllatrú á saltinu, þá helst flóran líka í búrinu.
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Post by Gunnsa »

Vargur wrote:Þegar ég sótthreinsaði búrið þá notaði ég að mig minnir bara haug af salti og lét standa í nokkra daga því væntanlega er líftími eggjanna ekki langur. Ekkert hefur borið á þessu eftir þetta og það er allavegana hálft ár eða meira síðan þetta var.
Sjálfsagt er öruggara að nota klór eða Virkon til að sótthreinsa en ég hef tröllatrú á saltinu, þá helst flóran líka í búrinu.
Drepur saltið samt ekki plönturnar líka? Ég er með nokkra guppy sem sýna þessi einkenni, en ég vil ekki þurfa að slátra öllu.. Alls ekki vil ég losa mig við SAE fiskana mína.. Get ég ekki bara losað mig við þá guppy sem eru augljóslega sýktir, sett hina fiskana í alveg nýtt vatn og einangrun í nokkra daga og bara krossa fingur?
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Jú saltið drepur plönturnar. Þú getur alveg gert þetta eins og þú segir enda sennilega engu að tapa úr þessu.
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

Ormaveiki

Post by Bruni »

hæhæhæ eigiði mynd :wink: Illt að heyra þetta með ormana. Ekki fara á taugum og slátra öllu strax. Fékk dökkbrúna orma í mína fiska fyrir nokkrum árum, kom við hjá Dýralæknastofunni í Garðabæ og fékk lyf í vökvaformi sem virkaði. Endilega prufið þetta áður en slátrun hefst.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Re: Ormaveiki

Post by Vargur »

Bruni wrote:hæhæhæ eigiði mynd :wink:
Góður Bruni, ertu fluttur á Skagann ? :-)
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Re: Ormaveiki

Post by Inga Þóran »

Vargur wrote:
Bruni wrote:hæhæhæ eigiði mynd :wink:
Góður Bruni, ertu fluttur á Skagann ? :-)
hahahahhaha :lol:
User avatar
Gunnsa
Posts: 346
Joined: 09 Apr 2007, 22:41
Location: Kóp IS

Re: Ormaveiki

Post by Gunnsa »

Inga Þóran wrote:
Vargur wrote:
Bruni wrote:hæhæhæ eigiði mynd :wink:
Góður Bruni, ertu fluttur á Skagann ? :-)
hahahahhaha :lol:
:rofl:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Eru margar gerðir af ormum til?
Bruni
Posts: 199
Joined: 30 Dec 2006, 20:57
Location: Reykjavík

skaginn vs. ormar

Post by Bruni »

Er ekki fluttur á skagann, það er of dýrt fyrir mig, en ég veit hvar hann er. Ásta, það eru eflaust fleiri tegundir til af ormum en okkur grunar.
Mig eiginlega klæjar af tilhugsuninni, segi ekki hvar. Vil ekki vera dónalegur. :wink:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Ásta wrote:Eru margar gerðir af ormum til?

ánamaðkar... blóðormar... krakkaormar... nóg til!

En já - það er einhver slatti til. Það eru ljósir ormar sem ég tek eftir öðru hvoru í gúbbunum mínum. Skemmtilegt hvernig þeir kíkja alltaf út úr rassgatinu stundum..
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Hahahaha Bruni, þú mátt vera dónalegur við mig hvenær sem er!
User avatar
stebbi
Posts: 462
Joined: 30 Aug 2007, 19:05
Location: Breiðholt

Post by stebbi »

Djö þetta er hjá mér líka, það eru 2 gúbbíkerlingar búnar að drepast hjá mér nýlega og allavegana önnur var með svona, ekki alveg viss með hina en líklegt og sú þriðja er með þetta núna og gúbbíkarlinn líka.
Don´t drink water
fish f*** in it
http://madkur.bloggar.is/
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

afsakið mig að vekja upp svona gamlan þráð en ég er kominn með þetta helvíti og sé fram á það að slátra stærsta og fallegasta sverðdragakallinum mínum. er hægt að fá eitthvað lyf til að drepa þetta þá niður í þeim fiskum sem eftir eru án einkenna, var nefnilega að bæta fiskum í búrið og langar helst ekkert til a slátra þeim öllum strax amk.

á að vísu ágætan lager af sverðdragaseiðum ef útí það fer en ég veit ekki hvort ég finn þessa liti í guppyum aftur :(
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég leitaði að lyfi þegar þetta kom upp hjá mér og fann lyf í Dýraríkinu en það virkaði ekkert á ormana, spurning um að tala bara við dýralækni eins og bruni seigir.
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Panacur er málið fæst í apótekinu, er búnað vera að nota það hjá mér 500mg í 400l.

mylur töflurnar og leysir upp í vatni 100ml og setur Blóðorma, Artemíu og þurrfóður útí og lætur drekka í sig í u.þ.b klukkutíma, hellir svo rólega útí og vonar að fiskarnir éti sem mest, því miður éta fiskar sem eru langt leiddir lítið, gera svona 3svar sinnum og svo 50% vantsskipti og ryksuga botninn.

Ef spurningar S:8979105
Ace Ventura Islandicus
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Er það lyfseðilsskylt animal?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Nei
Ace Ventura Islandicus
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

takk þetta verða hæg heimatökin mamma kippir þessu bara með úr vinnunni (hún vinnur í apótekinu:P)
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
Post Reply