Í gær sá ég seyði í malawi búrinu mínu Ekkert smá skemmtilegt. Er búin að vera með rosalegan grænþörung vegna þess að sólin skín á búrið og hef ekki annan stað fyrir það. Svo settum við bara alveg fyrir gluggann sem skein í gegn og höfðum slökkt á ljósunum í búrinu í nokkra daga og þetta batnaði helling. Svo var ég að horfa á búrið í gær og sá þetta litla kríli skjótast eftir mat. Svo sá ég annað. Þau eru amk 2 af mismunandi stærð
Rosalega skemmtilegt! Skilyrðin í búrinu hljóta þá samt sem áður að vera ágæt fyrst þeir hrygna. Svo er ein kellan með stútfullan kjaftinn af seyðum
Jæja, þetta var voða gaman svona á páskunum
Svooo gaman :)
Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta
Æ já þessi þörungur er hundleiðinlegur, vorum búin að ákveða að selja bara búrið því við höfum engan annan stað fyrir það en eftir að við settum fyrir gluggann og þetta fór að batna þá tímum við því ekki
Þessi seiði eru greinilega orðin einhverja vikna gömul því þau eru ekki það lítil, annað er alveg rúmlega 1 cm á lengd og hitt kannski hálfur, en eru bara 2 og greinilega ekki jafngömul því annað er mun minna en hitt. Núna sé ég þau þegar ég gef þeim að éta því litlu flögurnar fara niður og þau skjótast úr felustöðunum sínum og ná sér í æti Hrikalega gaman!
Svo er bara að bíða eftir að hin hrygnan sleppi seiðunum sínum og vonandi ná einhver af þeim að komast á legg