Hvaða fiskar passa saman?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Hvaða fiskar passa saman?

Post by Sirius Black »

Ég var að spá í að fjölga fiskum í búrinu hjá mér en ég er með 2 skala , 2 gúrama og 3 gúbbýa og svo hreinsidýr sem sé SAE og otocinclus affinis held ég.

En var að spá hvort að ég ætti bara að fá mér eitthvað af þessum fiskum sem að ég er með eða hvort að það sé hægt að hafa einhverja aðra fiska með þessum :) langar nefnilega að fá mér kannski aðrar tegundir ef að það er hægt.
200L Green terror búr
big red
Posts: 29
Joined: 08 Feb 2008, 22:38

Post by big red »

regnboga fiska lit sterkir og fjörugir og dverg síklegur diskhaus bara skoða allt bara ekki taka neina kál hausa
Því meira sem við lærum, þess betur skynjum við hversu lítið við vitum
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

big red wrote:regnboga fiska lit sterkir og fjörugir og dverg síklegur diskhaus bara skoða allt bara ekki taka neina kál hausa
Sorry en ég bara gat ekki annað en hlegið að þessu, á þetta að vera dverg síklíður og discus?
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Rembingur
Posts: 138
Joined: 13 Oct 2007, 15:00

Agnes

Post by Rembingur »

Bla bla, hefur þú ekkert annað um að skrifa. Mér finnst allt of mikið um það að fólk sé að setja út á annað fólk hér inni.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það er rétt hjá Remba að fólk á til að fleima fullmikið hér. Sumar ábendingar eiga nokkurn rétt á sér og leiða vonandi til bætt málfars og betri spjallsiða en þessi hér fyrir ofan hjá AH er á mörkunum með að fá gula spjaldið.
Ef fólk vill ræða þetta eitthvað frekar þá er ágætt að gera það í Off-topic.

Víkjum þá að topicinu,
ég geri ráð fyrir að Sirius sé að taa um nýja 180 lítra búrið.
Persónulega myndi ég bæta við nokkrum skölum og jafnvel torfu af Svartneon og hugsanlega kribbapari.
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ég myndir bæta við miklum gróðri, Fallegu sverðdraga pari, 2 skölum, nokkrum ancistrum og torfu af tetrum.

(kannski dáldið líkt því sem að aðrir voru að segja en vinsamlegast ekki setja út á það líka) :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Já, afsakið. Var bara með á heilanum enþá djók í þættinum þarna G-grín. Um legurnar.
Maður var hjá sála. (man ekki nafnið á sálanum.)
Honum fannst hann sjálfur svo leiðiinlegur þegar hann talaði við sjálfan sig, þá benti sáli honum á að skipta um legur, skemmtilegur:P.

En já, ég myndi hafa svona community búr, tetrur skalara, friðsælar dvergsíklíður - t.d. fiðrildasíklíður. Mikið af gróðri, t.d. valinsnera og anubias plöntur eru einfaldar og harðgerðar.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Hvernig er með svona kribbapar, en þegar þau eru í svona stóru búri , helga þau sér þá bara smá af búrinu eða verða allir fiskar í hættu? :P
200L Green terror búr
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

En annars langar að spyrja , en hvað kosta kribbar svona sirka?
200L Green terror búr
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

ca 1000kr minnir mig.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Rosalega er ég að spá í svona kribbapari, langar rosalega að prófa að rækta svona , en annars hvað þurfa þessi fiskar svona í það minnsta í búrstærð. Myndi t.d 30-40 L búr duga? eða þurfa þeir kannski eitthvað stærra. Og þá er verið að miða við að þeir yrðu bara einir í búri :)
200L Green terror búr
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Sirius Black wrote:Rosalega er ég að spá í svona kribbapari, langar rosalega að prófa að rækta svona , en annars hvað þurfa þessi fiskar svona í það minnsta í búrstærð. Myndi t.d 30-40 L búr duga? eða þurfa þeir kannski eitthvað stærra. Og þá er verið að miða við að þeir yrðu bara einir í búri :)
30-40 lítrar gætu alveg sloppið. Bara fylgjast vel með vatnsgæðum, sérstaklega til að byrja með. Svo er það bara að fylgjast með því að parið geri ekki útaf við hvort annað.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

hehe, þá mæli ég með að hafa bara parið í búri sem er 30-40 :lol: Ég er með 60 L bara fyrir mitt par, og það er allt fullt af seiðum, orðin svona 1 cm, svo ryksugur. Skalarinn minn var líka orðinn frekar stór fyrir 60 L svo hann flutti til Hönnu :lol: :wink:
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Agnes Helga wrote:hehe, þá mæli ég með að hafa bara parið í búri sem er 30-40 :lol: Ég er með 60 L bara fyrir mitt par, og það er allt fullt af seiðum, orðin svona 1 cm, svo ryksugur. Skalarinn minn var líka orðinn frekar stór fyrir 60 L svo hann flutti til Hönnu :lol: :wink:
Hehe ég einmitt keypti mér stærra búr þar sem að 60L búrið var orðið eitthvað svo lítið fyrir skalana :P
En já ég er nefnilega búin að selja 60L búrið en svo allt í einu datt mér í hug að fara að koma upp einhverju ungviði af einhverri tegund og langar ekki í alveg 60L búr aftur :P og örugglega gaman að hafa bara par ein í búri, kannski minnstu líkur á að seiðin verði öll étin hehe :P
200L Green terror búr
Post Reply