Andri Pogo - hin búrin mín

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

Andri Pogo wrote:
Ásta wrote:Andri, þú ferð að fara að fá hreistur ef þú hættir þessu veseni ekki.
Þá þartu að sofa í baðinu.. eða balanum því þið eruð með sturtu :P
haha já en ég er þakklátur að inga heldur aftur af mér :? ef ég væri einhleypur veit ég ekki hvernig þetta myndi enda
:knús1:
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

stóri buttikoferi náði að slátra þremur malawi síkliðum áður en þær voru fjarlægðar en honum og Dovii virðist koma vel saman. Þeir eru núna einir með lungnafiskinum og ætla ég að sjá hvernig sú sambúð gengur.
Lungnafiskurinn hefur ekki enn étið og eru komnar 3 vikur núna :?
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Andri Pogo wrote:stóri buttikoferi náði að slátra þremur malawi síkliðum áður en þær voru fjarlægðar en honum og Dovii virðist koma vel saman. Þeir eru núna einir með lungnafiskinum og ætla ég að sjá hvernig sú sambúð gengur.
Lungnafiskurinn hefur ekki enn étið og eru komnar 3 vikur núna :?
Hvaða mat hefurðu prófað? Hefurðu prófað að gefa um nóttina?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

já hef prófað að gefa í myrkri líka.
ég hef prófað rækjur, ýsuflök, kolkrabba, hjörtu, botntöflur...
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Lifandi humar ? Gæti virkað.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Vargur wrote:Lifandi humar ? Gæti virkað.
Tek undir það.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

nei ég verð að prófa það
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Áll og Dovii

Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Mozart,Felix og Rocky
Posts: 409
Joined: 03 Jan 2008, 17:33
Location: 116 Kjalarnes
Contact:

Post by Mozart,Felix og Rocky »

ég tók ekki eftir álinum þegar að ég kom ,, er ég orðin e-ð blind :lol:
en rosalega flott búr hjá þér :D
Kv.Dízaa og Co. ;)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

neinei hann er alltaf niðurgrafinn í sandinum og sést sjaldan,
þessvegna stökk ég til og tók þessa mynd þegar ég sá að hann var allur uppi við.
ég var á leið í sturtu þegar ég tók myndina og varð svo hugsað til Ástu þegar ég setti hana inn....
double-chekkaði hvort það speglaðist eitthvað í glerinu :lol:
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hugsaðir þú ekki líka til Ástu þegar þú varst kominn í sturtuna ? :-)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Vargur wrote:Hugsaðir þú ekki líka til Ástu þegar þú varst kominn í sturtuna ? :-)
að sjálfsögðu :lol:
-Andri
695-4495

Image
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Andri Pogo wrote:
Vargur wrote:Hugsaðir þú ekki líka til Ástu þegar þú varst kominn í sturtuna ? :-)
að sjálfsögðu :lol:


Hvað þá með álinn "helsleipann" og reiðubúinn í "mýrlendið" :shock: :shock: :shock:
Ace Ventura Islandicus
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Andri Pogo wrote:stóri buttikoferi náði að slátra þremur malawi síkliðum áður en þær voru fjarlægðar en honum og Dovii virðist koma vel saman. Þeir eru núna einir með lungnafiskinum og ætla ég að sjá hvernig sú sambúð gengur.
Lungnafiskurinn hefur ekki enn étið og eru komnar 3 vikur núna :?

Átti 1nu sinni Buttikoferi u.b.b 35cm langann, helillur djöf... reif skinnið af hnúunum til blóðs og innréttingin í búrin voru litlar gangstéttarhellur.

Fékk með honum stórann óskar sem var einsog Ögmundur Jónasson, þ.e að kjafturinn á honum var allur út á hlið.

Ekki hafa áhyggjur af lungnafiskinum getur verið matarlaus mjög lengi, en á móti kemur hann er "slow" feeder svo hann verður auðveldlega undir fæðusamkeppninni
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Djöh..... :lol: :oops: :lol:
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

jæja eftir að hafa njósnað aðeins um Lungnafiskinn sá ég hann éta.
ég hafði verið að skilja eftir 2-3 rækjur yfir nóttina og þær voru alltaf horfnar. hann vill greinilega ekki éta fyrr en komið er myrkur.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Jæja gott að hann allavega étur :D
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

nokkrar myndir sem ég var að taka...

Í rúmgaflinum er allt á fullu hjá Convict parinu flotta.
Fyrstu seiðin þeirra eru orðin 2mánaða gömul en ekkert rosalega stór, ég hef ekkert verið svakalegur í vatnsskiptum eða fóðurgjöf en eldri seiðin telja nokkra tugi.
Svo hafa þau verið að undirbúa nýjan stað í smá tíma og ég sá þetta loks áðan:
Image

Svo er efsta rekkabúrið orðið eplasniglaleikskóli, allt morandi í þeim..
veit einhver hvað þeir eru lengi að ná þokkalegri stærð, svona eins og maður sér þá í búðum?
Sniglarnir eru 2-4mm
Image

Í neðsta búrinu eru ásamt salamöndrunni 2x buttikoferi og 4x jaguar.
Búrið eru aðeins um 23° heitt og ætla ég að færa þá upp í efsta búrið því chönnurnar eru farnar. þar er aðeins heitara eða um 27°.
Þeir ættu að hressast aðeins við það.

Image

Image

salamandran hefur aðeins náð að glefsa í þennan, skurðurinn er frekar djúpur:
Image

og að lokum Dovii durgurinn í miðjunni, hann liggur alltaf útí horni. Það batnar vonandi með tímanum að hann verði öruggari um sig og verði dominant í búrinu:
Image
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Vaxtarhraðinn á sniglunum fer mikið eftir aðstæðum, hár hiti, kalkríkt vatn, nóg fóður, fiskar sem láta þá vera og þá vaxa þeir í sölustærð á nokkrum vikum. Ókosturinn við það er gríðarleg mengun sem kemur frá þeim en þeir skíta eins og hross ef þeir fá vel að éta.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

eina sem ég þekki af dovii er að þetta eru morðingjar!.
var með par í pössun í sikliðu búrinnu í fjörukránni.þar var nóg af sebra seiðum til að japla á.svo kom að því að ég varð að taka þá.seti þá í búr með
höplum eins og electra osfrv.allt daut í því dagin eftir nema kanski 2-3 survivers.svo nokrum vikum seinna stukku þeir upp úr.:s

en stór dovii er helv tignarlegur :o
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

já þeir verða helvíti flottir og þessi endar í stærra einkabúri.
mig hefur langað í dovii karl síðan ég var að fletta í gegnum monsterfishkeepers og rakst á einn svakalegan sem viðkomandi hefur í búri á skrifstofunni sinni, sá er 40cm og búrið er um 600L:

Image

Image

Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Svakalega flottir dovii bæði þinn og þessi :D
Verða dovii ekki 70 cm?
400L Ameríkusíkliður o.fl.
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

ÞETTA ER FISKUR SEM ÞÚ BIÐUR EKKI oðrum fiskum uppá.
sry caps lock.kommin í glas :alki:
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

convict seiðin voru farin að sprikla en voru öll horfin í dag.
ætli stærri seiðin hafi étið þau eða foreldrarnir bara eitthvað stressuð?

Éta síklíður snigla?
eftir að ég færði jaguar og buttikoferi í efsta búrið, sem var fullt af litlum sniglum, hefur þeim fækkað niður í örfá.
-Andri
695-4495

Image
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hvoru tveggja kemur til greina með convictinn en ég hallast að foreldrunum ef seiðin eru öll horfin.

Margar sikliður éta snigla, óskararnir hjá mér eru sérstaklega hrifnir af eplasniglum og fyndið að heyra þá bryðja skelina.
User avatar
Ari
Posts: 292
Joined: 11 Jan 2008, 20:46
Location: 110 rvk

Post by Ari »

kvar fegstu þennan dovii
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Ari wrote:kvar fegstu þennan dovii
Hjá Guðjóni, sem fékk hann hjá þér.

veistu hvað hann er gamall ?
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Ari
Posts: 292
Joined: 11 Jan 2008, 20:46
Location: 110 rvk

Post by Ari »

nei ég veit það ekki en hann er fljótur að stæka :)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

eftir að ég færði jaguarana upp eru þeir að sýna mikið flottari liti og eru snöggir að koma að mér þegar ég sýni þeim fóðurdolluna.
Ég hef verið mikið heima að læra undanfarið og fá þeir að borða svona 5 sinnum á dag, en minna í einu.

Image

Image

Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Það er líklegast par búið að myndast hjá litlu Jaguar-unum mínum í efsta rekkabúrinu, það var nú aðeins fyrr en ég gerði ráð fyrir, en ég var að vonast til að geta valið fallegasta fiskinn þegar þeir væru orðnir aðeins stærri en ég held þá þessum tveimur saman.
Ég geri nú bara ráð fyrir að þetta sé par því litirnir eru mjög ólíkir í þeim, annars þekki ég það ekki nánar.
Eftir að ég lét (eldri) myndir af þeim á monsterfishkeepers var mér sagt að þeir líta ekki út fyrir að vera nálægt náttúrulegu litunum, að þeir séu sennilegast mjög innræktaðir eða margar kynslóðir milli þeirra og villtra eintaka.
Líka spurning hvort þeir gætu verið eitthvað blandaðir, t.d. við Dovii


en hérna eru myndir af þeim

Image

Image

Image
-Andri
695-4495

Image
Post Reply