Ancistru seiði

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Tappi
Posts: 92
Joined: 24 Aug 2007, 14:10
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Ancistru seiði

Post by Tappi »

Ég var að velta því fyrir mér hvenær mér væri óhætt að setja litlu ancistru seiðin mín í stóra búrið mitt, þau eru um einn og hálfur cm. Í búrinu eru sverðdragar, SEA (einn 12cm og nokkrir litlir) og 5 tetrur (glóbandstetrur um 4 cm) og aðrir sem ég veit að éta þau ekki.

Ég hef mestar áhyggjur af því að tetrurnar hakki þá í sig eins og þegar ég setti fyrst nokkur sverðdragaseiði þá voru minnstu etin um leið af tetrunum.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ancistuseiðin ættu að sleppa, þú getur prófað að slökkva ljósin og setja nokkur í búrið, ef þau sleppa þá er allt í fína.
User avatar
gunnikef
Posts: 281
Joined: 01 Mar 2008, 10:42
Location: keflavik

Ancistru

Post by gunnikef »

Eg segi að það er i lægi eg var með 4 ancistru 2sentimetr i stór búrinu hja mer og eg var með 6 convict og það var i lægi bara hafa nóg af felustöðum það er mjög gott að gera það sem vargur var að segja og slökva ljósin og setja þau út í
gunni
Tappi
Posts: 92
Joined: 24 Aug 2007, 14:10
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Tappi »

Í fyrrakvöld þá gaf ég fiskunum vel að borða, setti svo 4stk (1cm) Sverðdragaseiði og 1stk Ancistru seiði í búrið. Sverðdragaseiðin voru öll ennþá á lífi í morgun og líka litla Ancistru krúttið :)
Þannig ég ætla að færa fleiri yfir í kvöld.
Post Reply