Lýsingar

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Petrún
Posts: 71
Joined: 14 Dec 2006, 10:58
Location: Mosó
Contact:

Lýsingar

Post by Petrún »

Það er löngu orðið tímabært að fara að skipta út ljósum hjá mér. Það er þá spurning hvort ég ætti bara að skipta út peru og láta það standa eða gera það og fá mér annað perustæði líka til að hafa tvö ljós.
Ég er sem sagt með núna 15w gróðurljós, GroLux held ég. Ég hef bara ekki séð 15w flúrperur neinstaðar nýlega. Hef bara séð frá 18w, ekki minna.
Anyways... Hvaða perur ætti ég þá að fá mér og hvaða perustæði, ef þess þarf? Ætti ég að hafa eitt eða tvö ljós? Ég er með 75 lítra gróðurbúr og heimatilbúið lok fyrir ljósin svo það er alltaf hægt að troða fleirum ljósum í það.
Það væri allavegana gott að hafa eitthver ljós sem myndi virka vel fyrir plönturnar.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Hiklaust bæta við ljósi ef það er ekki stórmál, gróðurinn dafnar betur við breiðari lýsingu.
Oft eru fiskarnir og búrin líka ekki eins falleg með bara gróðurperur. Ég mundi bæta við einni daylight peru.

Í Fiskabur.is eru til 15w perur, bæði daylight og warm-white
Petrún
Posts: 71
Joined: 14 Dec 2006, 10:58
Location: Mosó
Contact:

Post by Petrún »

Flott, ég mun tékka á því. ;)
Post Reply