RYKSUGA ?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

missun
Posts: 4
Joined: 02 Apr 2008, 22:47
Location: sveitin (landeyjar)

RYKSUGA ?

Post by missun »

ég er með einhverskonar ryksugu og var að velta fyrir mér hvaða tegund þetta er og hvað hann er lengi að vaxa í fulla stærð og hvað hann getur orðið stór.
ég er algjör nígræðingur en öll svör vel þegin :wink:



[/img]http://i300.photobucket.com/albums/nn34 ... 254545.jpg
missun
Posts: 4
Joined: 02 Apr 2008, 22:47
Location: sveitin (landeyjar)

Re: RYKSUGA ?

Post by missun »

hérna er myndin


Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Alveg bókað að þetta sé gibbi eða pleggi þótt að ég viti ekki hvernig pleggi eða gibbi.

Gibbar verða flestir um 30-35cm en pleggar venjulega nokkuð stærri :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ja þetta er einhverskonar ryksuga, kannski pleco :?: nei ég þori ekki að giska á það :P :oops: mer finnst hann likjast allavega pleco 8)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Lindared wrote:ja þetta er einhverskonar ryksuga, kannski pleco :?: nei ég þori ekki að giska á það :P :oops: mer finnst hann likjast allavega pleco 8)
Vá, góð ágiskun.. "Einhverskonar ryksuga, kannski pleco".... Kanar t.d. kalla alla loricariidae kattfiska pleco.
Þetta er eins og að segja að segja að labrador sé hundur, kannski dog.


Mér sýnist þetta vera "common pleco", hypostomus plecostomus. Verður gjarnan um 40cm í búrum. Gæti svosem verið gibbi, ég er ekki bestur í kattfiskunum, þarf helst að sjá hann á hlið.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Vá, góð ágiskun.. "Einhverskonar ryksuga, kannski pleco".... Kanar t.d. kalla alla loricariidae kattfiska pleco.
Þetta er eins og að segja að segja að labrador sé hundur, kannski dog.


Mér sýnist þetta vera "common pleco", hypostomus plecostomus. Verður gjarnan um 40cm í búrum. Gæti svosem verið gibbi, ég er ekki bestur í kattfiskunum, þarf helst að sjá hann á hlið.[/quote]

keli, ég er nu enginn expert, var bara að reyna að hjálpa, dísus, óþarfi að hakka mann i sig. :shock:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Svosem lélegt dæmi, en þegar fólk er að biðja um hjálp, þá er æskilegt að vera ekki að bjóða sína hjálp nema maður viti eitthvað um hlutinn - annars er maður farinn að gefa ráð sem geta verið óráð. Ekki alvarlegt í þessu tilfelli, en leggur lítið til umræðunnar.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

jæja.. :? þú um það.. vildi bara hjálpa...
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Lindared wrote:jæja.. :? þú um það.. vildi bara hjálpa...
Ef að hjálpin er ekki meiri en það að benda á að þetta sé ryksuga, þá held ég að það sé alveg eins gott að sleppa því er það ekki? :roll:
En ég er ekki góð í að þekkja í sundur plegga og gibba og ætla því að sleppa því að tjá mig um það :P
200L Green terror búr
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

þetta er fiskur, missun, þetta er fiskur sem er ryksuga, missun, og þessi fiskur sem er ryksuga heitir annaðhvort gibbi eða pleggi, missun.

kv. Einar V. :lol:
er að fikta mig áfram;)
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

mixer wrote:þetta er fiskur, missun, þetta er fiskur sem er ryksuga, missun, og þessi fiskur sem er ryksuga heitir annaðhvort gibbi eða pleggi, missun.

kv. Einar V. :lol:
:lol: nakvæmlega það sem ég sagði :lol:
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Alveg rétt hjá kela, oft óþarfa blaður sem leggur ekkert til málana (á öllum þráðum) og þegar kemur að aðstoð þá er betra að þegja heldur en að leggja eitthvað til málana sem hjálpar ekkert.
Ace Ventura Islandicus
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Ég væri til í að fá hliðar mynd af fisknum og þá helst þegar hann sperrir sig (Setur uggana út til fulls)
Kv. Jökull
Dyralif.is
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

...

Post by eyrunl »

animal wrote:Alveg rétt hjá kela, oft óþarfa blaður sem leggur ekkert til málana (á öllum þráðum) og þegar kemur að aðstoð þá er betra að þegja heldur en að leggja eitthvað til málana sem hjálpar ekkert.
Afhverju eruði að láta þetta fara svona í taugarnar á ykkur?... kannski langar sumum bara til þess að vera með í umræðunum þótt þau viti svo sem lítið um hvað þau eru að tala... auðveldar þeim að finna þráðinn t.d. til þess að fylgjast með og læra... :omg:
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

þetta var nú aðalega grín hjá mér þara sem þetta er mágur minn og mér fannst hin kommentin svo skondin :?
er að fikta mig áfram;)
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

Post by eyrunl »

hehehe já þitt innlegg var samt fyndið en að hópast upp á eina manneskju það þarf ekki alla á spjallinu til þess að taka undir eða segja það sama við manneskjuna þetta er niðurrífandi og óþarfi... en fyrst þetta fer svona hrikalega í taugarnar á ykkur þá bara dílið þið við það eins og þið viljið og gerið :)

ég er samt ekki alveg búin þurfti að bæta smá við.... Spjallið er náttúrulega til þess að rökræða hlutina líka það er hægt að hafa skiptar skoðanir á hlutum eins og þú sagðir þá er þetta tilfelli ekki alvarlegt hvað það varðar að gefa ráð en í öðrum umræðum þá myndi ég t.d. ekki reiða á eitt svar ég myndi þá kanna það svar betur svo eruð þið öll líka að leiðrétta og útskýra ýmislegt betur og svona sem er náttúrulega mjööög gott en ein röng skoðun ætti ekki að hafa svo slæm áhrif... það sem ég er að reyna að segja er það er hægt að leiðrétta kurteisislega og dónalega og á flestum spjöllum þá kýs fólk vanalega að vera dónalegt! og það er svo niðurrífandi og leiðinlegt :(
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Talandi um að fólk vilji vera með í umræðum og svoleiðis. Það er oft það sem að skemmir hin spjöllin, fullt af fólki að svara og svara einhverju sem að það hefur enga hugmynd um , bara svona til að svara :S afhverju þarf fólk að svara öllu bara svona til að svara. Mér finnst það allavega rosalega leiðinleg spjöll, en það er oftast á spjöllum sem að einkennast af krökkum sem að vilja svara öllu til að safna t.d póstum.

T.d ef að einhver spyr, geta xxx og xxx verið saman í búri og einhver svarar:

Jú held það, eða kannski, nei er ekki alveg viss :S

Afhverju að svara ef að fólk veit ekki svarið :P


En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra :oops: En til að halda mig aðeins við uphagsinnleggið þá væri einmitt fínt að fá hliðarmynd, en finnst hann samt ekki gibbalegur, er með svo mikið af broddum þarna sitthvoru meginn á hliðinni :roll: eða allavega er þetta ekki marmaragibbi eins og ég á :P
200L Green terror búr
User avatar
pípó
Posts: 1172
Joined: 05 Apr 2007, 09:28

Post by pípó »

Ég veit ekki hvað típa af ryksugu þetta er en kannski gibbi eða pleggi,en af því að mig langar líka að vera með þá segi ég Rainbow ryksuga, þetta hlítur að hjálpa þér mjög mikið :wink:
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

eyrunl:

Ekkert að þessum viðbrögðum, Hafa virkað vel hérna á þessu spjalli og þetta kennir einfaldlega fólki að tjá sig ekki um eitthvað sem það veit ekki um og að vera ekki að villa fyrir þeim sem vantar aðstoð

Og þar sem Aðstoðar dálkurinn er ekki einhver keppnis dálkum um hver sé fyrstur til að svara rétt eða giska þá eiga svona svör ekki heima hérna þar sem umtalaða svar útskýrði nákvæmlega ekkert sem var ekki þegar komið til umræðu

Eins og Sirius Black orðaði svona vel þá flokkast þetta bara undir það að vilja vera með/blaðra/Safna postum, og það er frekar illa séð þegar fólk er að biðja um eitthvað sérstakt en ekki bara eitthvað úr pokanum

Svo hefur fólk einfaldlega gott af því að láta siða sig aðeins til frá stund til stundar :)

væri líka ekkert ó skynsamt að endur skoða ímynd þína á "Hóp" ;)

En missun á ekkert að taka aðra mynd handa okkur ? :P
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Nákvæmlega það sem Sirius og Squinchy segja - Það á ekki að þurfa að svara öllum póstum bara til að svara þeim og safna póstum - það rýrir notagildi spjallsins og maður þarf að vaða meiri drullu til að komast að sannleikanum.

Ég er kannski full hastur stundum, en ég bara nenni ekkert að fara í kringum hlutina eins og köttur í kringum heitan graut. Fólk fær bara að heyra það sem mér finnst, án einhverrar sykurhúðunar til þess að viðkomandi líði betur. Það verður líka oft til þess að það sem ég segi síast strax inn í hausinn á fólki í staðinn fyrir að það þarf að segja sama hlutinn oft.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

mer finnst þið bara vera ansi oft að fara tala um sama hlutinn aftur og aftur. óþarfi að æsa sig svona svakalega yfir þvi að ég giskaði á að þetta væri pleco eða pleggi :? það gerðu það fleiri, ekki bara ég :? keli: sagðir síðan sjálfur að þu værir enginn fróðleiksmoli á botn/kattfiska og giskaðir ´sjálfur á að þetta væri gibbi. er það ekki gisk? bara svona pæling..

takk eyrunl , vildi nu ekki valda einhverju rifrildi herna inni með mínum ómarktækum skoðunum og svörum. get nu alveg sleppt þvi að sykurhúða hluti og tekið til máls með fullum ómi.

pleco eða common pleco. strákurinn sagði að öll svör væru vel þegin, ég sagði bara það sem ég vissi (eða vissi ekki samkvæmt ónefndum aðilum) veit lika að þeir verða stórir og monster fiska eigendur eru oft með þessa fiska i búrum hjá sér. 30cm+ .

hef lesið mer mikið til um fiska, kannski ekki endilega þessa tegund, betri mynd hefði hjálpað . þið kannski vitið alveg milljón aðra hluti um fiska, t.d ensku og latnesku fræðinöfnin, ég er ekki svo klár . kannski þegar ég verð jafn gömul og gamlingjarnir herna inni :gamall: :hehe:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það að segja pleco innifelur yfir 300 mismunandi tegundir - ég nefndi 2 tegundir sem koma til greina. Ég vil meina að það sé örlítið hnitmiðara.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Sirius Black wrote:Talandi um að fólk vilji vera með í umræðum og svoleiðis. Það er oft það sem að skemmir hin spjöllin, fullt af fólki að svara og svara einhverju sem að það hefur enga hugmynd um , bara svona til að svara :S afhverju þarf fólk að svara öllu bara svona til að svara. Mér finnst það allavega rosalega leiðinleg spjöll, en það er oftast á spjöllum sem að einkennast af krökkum sem að vilja svara öllu til að safna t.d póstum.

T.d ef að einhver spyr, geta xxx og xxx verið saman í búri og einhver svarar:

Jú held það, eða kannski, nei er ekki alveg viss :S

Afhverju að svara ef að fólk veit ekki svarið :P


En jæja ætla ekki að hafa þetta lengra :oops: En til að halda mig aðeins við uphagsinnleggið þá væri einmitt fínt að fá hliðarmynd, en finnst hann samt ekki gibbalegur, er með svo mikið af broddum þarna sitthvoru meginn á hliðinni :roll: eða allavega er þetta ekki marmaragibbi eins og ég á :P
You have a point to make :roll:
Ég mundi segja common pleco, átti svona fyrir nákkrum vikum og hann er eiginlega alveg eins.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

hnitmiðara? ertu þá ekki að skammast í hverri einustu dýrabúð ut i merkingarnar á búrunum? það stendur i 90% tilfella bara pleco eða gibbi utan á búrunum.

ég ætla nu samt ekkert að keppast við þig hvort okkar hefur rétt fyrir sér, það er nu nokkuð augljóst. vægir sem vitið hefur..
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Lindared wrote:hnitmiðara? ertu þá ekki að skammast í hverri einustu dýrabúð ut i merkingarnar á búrunum? það stendur i 90% tilfella bara pleco eða gibbi utan á búrunum.

ég ætla nu samt ekkert að keppast við þig hvort okkar hefur rétt fyrir sér, það er nu nokkuð augljóst. vægir sem vitið hefur..
já, það er augljóst að Keli hefur rétt fyrir sér en þú verður greinilega alltaf að eiga síðasta orðið. :)
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

....

Post by eyrunl »

ég var ekki að tala um að fara eitthvað í kringum hlutina og sykurhúða þá en það er hægt að vanda orðalagið aðeins betur svo það hljómi ekki eins og þú sért að segja "þú ert heimskur" sem er mjög niðrandi maður fær þetta þegar maður les á milli línanna... ef ég væri í snyrtibúð og spyr konu mig vantar meik þá vil ég ekki að hún segi "þú ert hvortið er svo ljót að meikið gerir ekkert fyrir þig" það eru takmörk á siðum og það er enginn sem segir að þú eigir að vera að siða fólk til ef eitthvað þá er það pirrandi! en ég er samt sammála með comment eins og "já ég held það, eða nei... kannski" það er pirrandi en þetta var ekki þannig svar... plús að segja pleco er að þrengja hringinn frá öðrum tegundum og svo má gera það hnitmiðaðara út frá því... en ALLAVEGA ég nenni ekki að tjá mig neitt meira um þetta þið ráðið alveg sjálfir hvernig þið komið fram við fólk og það gerir ykkur að ykkar persónu :)
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Re: ....

Post by Sirius Black »

eyrunl wrote:ég var ekki að tala um að fara eitthvað í kringum hlutina og sykurhúða þá en það er hægt að vanda orðalagið aðeins betur svo það hljómi ekki eins og þú sért að segja "þú ert heimskur" sem er mjög niðrandi maður fær þetta þegar maður les á milli línanna... ef ég væri í snyrtibúð og spyr konu mig vantar meik þá vil ég ekki að hún segi "þú ert hvortið er svo ljót að meikið gerir ekkert fyrir þig" það eru takmörk á siðum og það er enginn sem segir að þú eigir að vera að siða fólk til ef eitthvað þá er það pirrandi! en ég er samt sammála með comment eins og "já ég held það, eða nei... kannski" það er pirrandi en þetta var ekki þannig svar... plús að segja pleco er að þrengja hringinn frá öðrum tegundum og svo má gera það hnitmiðaðara út frá því... en ALLAVEGA ég nenni ekki að tjá mig neitt meira um þetta þið ráðið alveg sjálfir hvernig þið komið fram við fólk og það gerir ykkur að ykkar persónu :)
Ég hlýt að vera eitthvað vitlaus en ég sé ekki þetta "þú ert heimsk" út úr þessu svörum kela :S hann benti bara á að það væri ekki rétt að gefa ráð um eitthvað sem að maður veit ekki og btw þá var búið að segja að þetta gæti verið pleco, þannig að það var búið að þrengja hringinn og þarf ekki að gera aftur :) Allavega fannst mér keli ekki svara þessu neitt með illsku :S En þú um það að lesa svona kolvitlaust á milli línanna :)
200L Green terror búr
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

já en er þessi þráður ekki derailed núna og það alveg illilega??? veit einhver hvaða fiskur þetta er og það er erfitt að ná hliðarmynd af honum þar sem hann er í kúlu...
er að fikta mig áfram;)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

mixer wrote:já en er þessi þráður ekki derailed núna og það alveg illilega??? veit einhver hvaða fiskur þetta er og það er erfitt að ná hliðarmynd af honum þar sem hann er í kúlu...
Það er allavega eitt sem er alveg víst - þetta er ekki fiskur sem á heima í kúlu. Þetta er annaðhvort common pleco eða gibbi, ég giska á common pleco, en get ekki verið viss nema sjá mynd af honum á hlið.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

já ég veit það hann var bara keyptur sem ancisstra og átti ekki að verða neitt stór :P
er að fikta mig áfram;)
Post Reply