Ljósabúnaður í 400 lítrum

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Satan
Posts: 204
Joined: 31 Dec 2007, 16:10
Location: Breiðholt

Ljósabúnaður í 400 lítrum

Post by Satan »

Ég er með 400 lítra búr sem er búið að vera í gangi í c.a. 2 mánuði mér finnst lýsingin vera svo dauf eitthvað núna er ég með T8 Gro Lux 36w,
tvær þannig.
Hvað ráðleggjið þið mér að fá mér???

ps, hvar er Rafkaup..
Virðingarfyllst
Einar
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Mæli með t5 perum ef þér finnst lýsingin slöpp. Gætir bara bætt við 1-2 þannig. Gæti reyndar líka verið að perurnar sem þú ert með núna séu bara gamlar eða lélegar - kannski spurning um að prófa að skipta um þær fyrst.

www.ja.is veit hvar rafkaup er :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

eru ekki líka gróðurperur með minni sýnilega birtu fyrir mannsaugað þótt það sé betri lýsing fyrir gróður, gætir prófað að skipta um aðra peruna til að sjá muninn. 6500-10000K
-Andri
695-4495

Image
Satan
Posts: 204
Joined: 31 Dec 2007, 16:10
Location: Breiðholt

Post by Satan »

6500-10000 hvað þýðir þetta ??

The new kid
Virðingarfyllst
Einar
Satan
Posts: 204
Joined: 31 Dec 2007, 16:10
Location: Breiðholt

Post by Satan »

en þarf ég þá ekki að skipta um allt systemið til að fá T5 perur og kostar það ekki alveg rosalega mikið ??
Virðingarfyllst
Einar
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

jú það kostar slatta.

perur eru flokkaðar eftir Kelvin hitastigi.
Gróðurperur eru frekar neðarlega en 6500-10.000 er bara uppástunga frá mér með val á peru til að prófa aðra birtu, það eru frekar hvítar perur.
Finndu bara aðra 36W peru sem hefur einhverjar tölu þar á milli.
Ég er t.d. með í stóra búrinu 10.000K perur en í öðrum búrum um 6500K
-Andri
695-4495

Image
Satan
Posts: 204
Joined: 31 Dec 2007, 16:10
Location: Breiðholt

Post by Satan »

í stóra búrinu þínu, sem eru hversu margir lítar?? þá ert þú með 10000k perur er það alveg að ganga mjög vel, lýsing góð og fiskar ánægðir?
og á ekkert að auka wöttin hjá mér??
Virðingarfyllst
Einar
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

það er 720L og með 4x39W T5 perum.
birtan er alveg óþarflega mikil og ég nota dimmer til að minnka hana niður um rúmlega helming, en það er bara smekksatriði og svo er ég ekki með birtu-elskandi fiska.

en athugaðu að Watta talan fer eftir lengd perunnar, ef þú ert með 36W perur núna (120cm ef ég man rétt) þá eru allar perur í þeirri lengd 36W en bara með mismunandi birtu/lit.
-Andri
695-4495

Image
Satan
Posts: 204
Joined: 31 Dec 2007, 16:10
Location: Breiðholt

Post by Satan »

já heyrðu Andri ég þakka þá fyrir góð og fljót svör og líka frá kela
hef þá bara samband við dýragarðinn eða á maður kannski bara að hafa samband beint við ljósabúð, er eitthvað ódýrara þar ???
Virðingarfyllst
Einar
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Eins og hefur verið sagt þá gæti það verið að skemma að hafa bara tvær gróðurperur. Ég er t.d með eina gróðurperu sem er aftari peran og svo eina venjulega (veit ekkert hvernig :P) fyrir framan og lýsingin er rosalega flott :D Örugglega málið að skipta bara út fremri gróðurperunni og setja einhverja svona peru fyrir fiskana í :)
200L Green terror búr
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

það er líklega svipað verð á svona perum, það er mikið úrval af T8 á flestum stöðum og svona pera ætti að kosta um 1500kall ef ég man rétt.
-Andri
695-4495

Image
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

þú færð talsvert meiri birtu ef þú kaupir spegla yfir perurnar
og þar sem perur missa ljós með tímanum þá mundu nýjar perur og speglar gera mikið
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Spegla á perurnar og skipta út fremri perunni fyrir einhverja bjartari, td bara ódýra daylight.
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Ég er sammála Sirius, Gro-lux virkar frekar dimm, eins og dökk bleik á litin að horfa á, það tók mig smá tíma að venjast henni en ef þér finnst hún óþægileg, biddu um 10 þúsund kelvin fiskabúraperu í gæludýraverslun, hún er miklu hvítari, fín fyrir gróður ef þú ert með hann og þú þarft ekki að auka við ljósabúnaðinn! Settu hana fyrir framan og þú verður örugglega sáttur 8)
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

gudrungd wrote:Ég er sammála Sirius, Gro-lux virkar frekar dimm, eins og dökk bleik á litin að horfa á, það tók mig smá tíma að venjast henni en ef þér finnst hún óþægileg, biddu um 10 þúsund kelvin fiskabúraperu í gæludýraverslun, hún er miklu hvítari, fín fyrir gróður ef þú ert með hann og þú þarft ekki að auka við ljósabúnaðinn! Settu hana fyrir framan og þú verður örugglega sáttur 8)
Ég hef nefnilega bara séð þesar tvær perur saman, gróður og örugglega hvíta og mér fannst búrið hjá mér fjólublátt fyrst :P fannst það svo skrítið en svo vandist þetta og þegar ég horfi á það núna þá sé ég jú smá fjólubláan blæ en alls ekki eins og mér fannst það fyrst :P

En já speglar og hvít eða álíka pera er málið :) svona vegur upp á móti gróðurperunni.
200L Green terror búr
Post Reply