ég var að fá hugdettu í gær sem er nú alls ekki gott
því ég á það til að framkvæma allt sem mig langar í eða dettur í hug
jæja hugdettan mín er sú, að mig langar að skipta stóru stofunni minni í tvennt með umþb 2.000 ltr sjávarbúri eða venjulegu en sjávarbúrið er draumurinn og mikið flottara
er bara svakalega hrædd eithvað um að það springi eða e-h álíka og allt flæði um allt á parketið.
hver væri c.a kostnaðurinn við að koma upp svona stóru búri (heimasmíðuðu allra líklegast) og byggja e-h í kringum það.
hringdu í glerverksmiðjurnar og fáðu tilboð í glerið
ég er nú ekki sammála að sjávarbúr séu miklu flottari
en þau eru miklu dýrari
ef vel er frá gengið þá þarftu ekki að hafa áhyggjur að búrið springi eða leki
ég ætla einmitt að skifta stofu og eldhúsi hjá mér með 2 búrum bak í bak ca.1200-1400 ltr hvort en það verður ekki fyrr en á næsta ári líklegast
haha þegar ég geri þetta þá mun ég koma til með að fá einhvern og gera þetta fyrir mig rétta viðkomandi bara visakort og segja "gjörðu svo vel, gerðu þetta bara flott" ég myndi nú bara klúðra þessu á einhvern hátt
ég geri ráð fyrir að kostnaðurinn hjá mér verði nokkur hundruð þúsund en ég mun gera næstum allt sjálfur og ég ætla að setja ferskvatnsbúr
prufaðu að fá tilboð í td. dýragarðinum,fiskó og dýraríkinu í það sem þú þarft ef þú setur upp saltvatnsbúr
og talaðu við hann varg hérna á spjallinu hann ætti að geta sett upp svona búr og jafnvel reddað tækjum í það
Mnurinn á sump (Sem er nánast möst fyrir stór saltvants búr) og tunnudælu er sá að með sump bætir þú helling af vatnsmagni í kerfið og þá getur þú falið hitara og auka hluti í sumpnum (Eins og ef þú ert með salt þá getur þú falið Skimmer og reactora)
Og já það er hægt að hafa yfirfall á sumpnum fyrir ferskvatn sem er tengt við niðurfall og síðan rólegt stöðugt rennsli í búrið
Með tunnudælum þarf hitari og allur auka búnaður að vera í búrinu
Kosnaður við að smíða og setja svona búr upp....er ca.700-1000kr.- við hver líter. Þá búr ljósabúnaður dælur og allur útbúnaður....þá er bara að reikna...
jebbs það pssar ekki byggja samt svona hátt yfir búrið samt aðeins. (það er 6-7m lofthæð inní stofu) spurning hvort maður láti sjást í endann eða byggji á hliðini þeim megin líka.
Ég myndi láta sjást í búrið frá þessum 3 hliðum, en samt setja lista í þessi 2 horn svo maður sjái ekki samskeytin á glerinu og sílikonið í horninu á búrinu
Og þar sem þú hefur þessa fínu loft hæð að setja upp vindu kerfi sem sé um að lyfta upp lokinu frá búrinu með ljósabúnaði og öllu með því að ýta á takka, mjög hentugt þegar þú þarft að komast ofan í búrið þar sem það er ekkert grín að fara taka svona stórt lok niður með öllum þessu ljósabúnað sem þarf fyrir svona stórt búr
Verðið fer talsvert eftir því hvernig þú villt hafa þetta og umgjörðina í kringum það.
Ég held að minna að hægt væri að græja gott ferskvatnsbúr fyrir minna en milljón en sjávarbúr kostar eitthvað meira.
spurning hvað maður gerir, þetta var hugdetta og er draumurinn:) kanski maður framkvæmi þetta í næsta húsnæði þar sem við viljum stækka enn frekar við okkur.