Ljósir blettir á hreistrinu?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Ljósir blettir á hreistrinu?

Post by Sirius Black »

Tók eftir því áðan að tveir af gúrömunum mínum (þessir bláu) eru komnir með ljósari bletti á hreistrinu :S gerðist bara allt í einu og er bara á þessum bláu. Engin sár eða neitt, bara ljós blettur og fiskarnir í fullu fjöri. Var að spá hvort að þeir hafa getið rekið sig í eða hvað :S?


En hérna koma myndir af þessu :)

Image
Sést þarna á bakinu svona ljósir blettir

Image
Þarna sjást þeir aftur og líka á litla gúramanum

Er svo hrædd um að þetta sé eitthvað alvarlegt :( en vonandi hafa þeir bara rekið sig í :) held í vonina :P
200L Green terror búr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Það virðist vanta á þá hreisturflögur.
Sennilega er einhver að böggast harkalega í þeim eða þeir að troðast í einhver leiðindaþrengsli.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Vaxa þær ekki aftur á þá? og gróa sár vel, tók eftir því að litli var með smá sár en ég held að þau séu ekki hættuleg.
Finnst enginn fiskur vera svona vondur að þeir fari að meiða hvor annan og þá sérstaklega ekki þann stóra bláa því að hann stjórnar gúramastóðinu :P og skalarnir hafa aldrei komið við gúramana. Hafa örugglega verið að rífast yfir einhverju og farið harkalega í mölina eða utan í eitthvað dót :)
200L Green terror búr
Post Reply