Perur fyrir gróður

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Perur fyrir gróður

Post by Sirius Black »

Er bráðum að fara að setja 60L Tetru búrið mitt upp hjá foreldrunum og er bara gert pláss fyrir eina peru í lokinu þannig að ég var að spá hvort að það væru til perur sem að eru 15W (T8 ) sem að gera flotta lýsingu í búrið og er líka góð fyrir plöntur þar sem að mig langar til að setja lifandi gróður í búrið :) Er núna einhver Tetru pera sem er bara kölluð white sem að er í lokinu og veit ekki hvort að hún sé eitthvað góð fyrir plöntur en hún gefur bara mjög hvítt ljós.
200L Green terror búr
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

ég hringdi i dýragarðinn i gær og spurði að þessu sama. þeir sögðu mer að hvíta peran sem fylgir lokinu væri góð fyrir plönturnar og fiskana, er kannski ekki flott en virkar. hjá mér allavega þá þrífast plönturnar mjög vel og vaxa og vaxa. perur sem gefa frá sér blátt ljós eru ekki góðar. kæmi bara þörungur, samkvæmt því sem þeir sögðu mér.. . en svo eru til perur sem gefa frá sér rauðleitt ljós, þær eru góðar og fiskarnir koma vel út í þessari birtu plús góð fyrir plönturnar. það eru til svona perur í dýragarðinum sem gætu hentað þér sem þú ert að leita að.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Hehe fyndin tilviljun :P en takk fyrir svarið, ætla þá að athuga hvort að ég geti ekki bara látið þessa peru vera í bili :D slepp þá við að kaupa aðra strax :P
200L Green terror búr
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

já ég sem ætlaði að kaupa þessa flottu peru í búrið, en þeir sögðu mér bara að þessi sem fylgdi lokinu væri bara fín. er með tvö alveg eins búr, ætla að gera smá tilraun, hafa þessa peru sem fylgdi búrinu i einu búrinu og kaupa þessa rauðleitu í hitt búrið. svo ætla ég að sjá hvort það sé einhver munur á þessu. hvort að plöntunar vaxi eh hraðar eða hvort eitthvað annað breytist. ég læt þig bara vita hvað verður úr þessari tilraun. kaupi peruna á morgun eða föstudaginn. svo bara bíða og sjá :P
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Lindared wrote:já ég sem ætlaði að kaupa þessa flottu peru í búrið, en þeir sögðu mér bara að þessi sem fylgdi lokinu væri bara fín. er með tvö alveg eins búr, ætla að gera smá tilraun, hafa þessa peru sem fylgdi búrinu i einu búrinu og kaupa þessa rauðleitu í hitt búrið. svo ætla ég að sjá hvort það sé einhver munur á þessu. hvort að plöntunar vaxi eh hraðar eða hvort eitthvað annað breytist. ég læt þig bara vita hvað verður úr þessari tilraun. kaupi peruna á morgun eða föstudaginn. svo bara bíða og sjá :P
Já endilega láttu mig vita :D maður hefur svo litla trú á þessari peru sem að er í búrinu :P finnst hún eitthvað svo venjuleg :P af því að það eru sérstakar gróðurperur til og svoleiðis.
200L Green terror búr
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ein 15w pera er tæplega næg lýsing fyrir gróður nema um sé að ræða plöntur sem þurfa lítið ljós.
Ef peran er gróðurpera þá er meiri séns að halda gróðrinum fallegum.
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

Sirius Black wrote:
Lindared wrote:já ég sem ætlaði að kaupa þessa flottu peru í búrið, en þeir sögðu mér bara að þessi sem fylgdi lokinu væri bara fín. er með tvö alveg eins búr, ætla að gera smá tilraun, hafa þessa peru sem fylgdi búrinu i einu búrinu og kaupa þessa rauðleitu í hitt búrið. svo ætla ég að sjá hvort það sé einhver munur á þessu. hvort að plöntunar vaxi eh hraðar eða hvort eitthvað annað breytist. ég læt þig bara vita hvað verður úr þessari tilraun. kaupi peruna á morgun eða föstudaginn. svo bara bíða og sjá :P
Já endilega láttu mig vita :D maður hefur svo litla trú á þessari peru sem að er í búrinu :P finnst hún eitthvað svo venjuleg :P af því að það eru sérstakar gróðurperur til og svoleiðis.
já ég veit. ég hef enga sérstaka trú á þessum perum sem fylgja, en plönturnar dafna vel allavega hjá mér. veit að það eru til gróðurperur, en auðvitað fer það eftir þvi hvaða plöntur þu ætlar að hafa hvernig peru þú þarft. hvort plönturnar þurfa mikið eða lítið ljós. :)
Post Reply