Staðsetning hitara í búri

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Staðsetning hitara í búri

Post by Sirius Black »

Ég hef verið að spá í svolítinn tíma hvar besta staðsetningin sé fyrir hitarann í búrinu svo að allt vatnið hitist.
En núna er ég með hann alveg við hliðina á inntakinu inn í dæluna en mér finnst vatnið stundum ekki vera nægilega heitt, þá allvega ekki hinum megin í búrinu og var ég að spá hvar væri best að setja hann, eða hvort að ég sé kannski með hann á besta staðnum.

Image

En allt dótið er þarna vinstra megin, inntakið sem að liggur niður og svo úttakið sem að liggur svona á hlið og eru lítil göt á rörinu sem að beina streyminu að framglerinu. En hitarinn er svona þarna á hliðarglerinu.

En gott væri að fá eitthvað comment á hvort að ég sé að gera vitlaust með því að hafa hann þarna og hvar væri þá best að hafa hann. :)
200L Green terror búr
Mamma gamla
Posts: 43
Joined: 12 Apr 2008, 17:51

Post by Mamma gamla »

ég er með hann hjá dælu inntakinu.

hægt að hafa hann líka hjá þar sem vatnið kemur úr dælunni. (ég er með innbygða dælu í lokinu)

annars hef ég alltaf haft hitarana við dælurnar
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Í rauninni skiptir engu máli hvar hitarinn er. Aðal málið er að dælan sé vel staðsett, þannig að allt vatnið sé á hreyfingu. Ef það er dauður punktur í búrinu (lognmolla), þá blandast hitinn ekki og gæti skapað önnur vandræði seinna meir.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

mér finnst einmitt að vatnið í búrinu hjá mér hitast ekki nog. finnst vatnið alltaf kalt kannski er ég bara með of litinn hitara..
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Lindared wrote:mér finnst einmitt að vatnið í búrinu hjá mér hitast ekki nog. finnst vatnið alltaf kalt kannski er ég bara með of litinn hitara..
Það getur líka passað. Oftast er nóg að vera með ca. 0.7 wött á lítra, en það fer eftir hitastigi í kringum búrið meðal annars.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Ég er með 150W hitara hjá mér sem að ætti að vera meira en nóg, og svo er oftast frekar hlýtt hérna inni þannig þetta ætti að vera í lagi, ég kannski færi hitarann eitthvað til við tækifæri og athuga með þetta :D En annars takk fyrir svörin :)
200L Green terror búr
Post Reply