Ljós í 390l búr

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Ljós í 390l búr

Post by Birgir Örn »

Það fer að koma að því að ég setji upp stærra búr 120 x 60 X 55 eða um 390l,

Hversu mikla lýsingu á maður að vera með í svona stóru búri og hvor á maður að fá sér bara fluor, metal halide eða bæði?
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Þú þarft ekki neina lýsingu.

Hvað ætlarðu að hafa í búrinu?
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Mamma gamla
Posts: 43
Joined: 12 Apr 2008, 17:51

Post by Mamma gamla »

keli wrote:Þú þarft ekki neina lýsingu.?

mér finnst búr svo ljót sem eru ekki með neinni peru. :oops:

annars er ég ekki perumanneskja :lol: sjálf myndi ég vera með eina góða gróðurperu og eina venjulega
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Ég hugsa að það verði einhverjar stærri amerískar síklíður og vonandi einhverjar plöntur ef þær fá að vera í friði, annars er það ekki alveg ákveðið
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

2x 38w T8 er alveg feykinóg í svoleiðis búr, sérstaklega með speglum.
Annað er svo bara smekksatriði hjá þér.
Birgir Örn
Posts: 207
Joined: 03 Jan 2008, 20:55
Location: 201 Kóp Aldur: 23 ára

Post by Birgir Örn »

Hver er annars munurinn á T5 og T8?

Hvernig perur á maður að vera með 1 gróður og eins 6500k eða 10000k eða eithvað annað?
Birgir Örn

396l Convict, Black Band, JD, RT, Marmara Pleggi,Gibbi og fl.
60l Tiger Shovelnose og ancistur(grow out búr)
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

keli wrote:Þú þarft ekki neina lýsingu.

Hvað ætlarðu að hafa í búrinu?
Spyr eins og keli, hvað ætlarðu að hafa í búrinu, það ákvarðar oftar en ekki lýsingar þörfina
Kv. Jökull
Dyralif.is
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Birgir Örn wrote:Hver er annars munurinn á T5 og T8?

Hvernig perur á maður að vera með 1 gróður og eins 6500k eða 10000k eða eithvað annað?
Í stuttu máli þá gefa T5 perur meira ljós, hitna minna og eiða minna rafmagni miðað við ljósmagn.

Það er erfitt að seigja eitthvað um hvaða perur þú eigir að vera með en ef þú ert bara með nokkrar auðveldar plöntur þá skiptir það ekki stórmáli, aðalmálið er að þér líki lýsingin.
Gróðurpera er þó kostur fyrir gróðurinn.

Sem dæmi eru hér tvö af mínum búrum.
Image
Þetta er 240 lítra búr, 120 cm á lengd, í því er 2x 38w T8 perur og spegla, önnur er venjuleg Daylight pera en hin er Aquastar. Í búrinu er frekar auðveldur gróður og lýsingin virðist rétt duga, kannski skipti ég Daylight perunni út fyrir Gro-lux næst.

Image
Þetta er 400 lítra búr, 150 cm á lengd, í Því eru bara ódýrar perur, 2x 36w T8 og speglar, önnur er Daylight og hin Warmwhite. Í búrinu er mjög einfaldur gróður og hann dafnar fínt.

Hér er svo þráður sem gefur þér kannski fleiri hugmyndir,
http://www.fiskaspjall.is/viewtopic.php?t=450
Post Reply