sporður á gubbykvk

Guppy, endler, platy, sverðdragarar og aðrir gotfiskar

Moderators: Elma, Vargur

Post Reply
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

sporður á gubbykvk

Post by Hanna »

þegar ég vaknaði í morgun var sporðurinn á einni guppykellingunni minni eiginlega horfinn eða svona eins og hann sé fallinn saman... Það sést ekkert á henni og mér finnst eins og þetta trufli hana aðeins... hvað gæti þetta verið og af hverju?? by the way það eru bara guppy í búrinu sem er 60l
What did God say after creating man?
I can do so much better
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Er sporðurinn klemmdur ? Það er oft talið einkenni costiusýkingar.
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

já mér finnst það a.m.k. :? af hverju kemur þessi sýking og hvernig er best að losna við hana? er nýbúin að skipta um allt vatnið (heilþrif á búrinu) og skellti slatta af salti í leiðinni...
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
Hanna
Posts: 478
Joined: 10 Feb 2008, 16:55
Location: Álaborg Danmörk

Post by Hanna »

er eitthvað annað sem ég get gert?? og hvað á aftur að fara mikið af salti í 60l búr??
What did God say after creating man?
I can do so much better
User avatar
haffi85007
Posts: 185
Joined: 31 Mar 2008, 21:09
Location: Njarðvík

hmm...

Post by haffi85007 »

Það er um 1 msk á hverja 10 lítra en mér persónulega finnst betra að hafa það aðeins minna... en annars á að vera til bætiefni og lyf gegn þessu...Bara að kíkja í Dýraríkið og fá upplýsingar :D
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

ekki myndi ég nú treysta mikið á upplýsingarnar frá dýraríkinu, þar að auki er bannað að auglýsa aðrar búðir hérna.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
haffi85007
Posts: 185
Joined: 31 Mar 2008, 21:09
Location: Njarðvík

jáhh

Post by haffi85007 »

Enda er þetta ekki búð!! heldur Spjall áhugamanna um fiska... Og það er ekkert að því að vilja hjálpa öðrum.. Eins og mamma kenndi mér "Kurteisi Kostar Ekkert" OG hananú
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Ég hef fengið mun betri upplýsingar hér en í "vissum" dýrabúðum, starfsfólkið er mjög misvel upplýst og aðrir vilja bara selja..... það er ekkert að því að fá upplýsingar frá nokkrum stöðum og sjá hvort fólki ber saman og hvað virðist rökrétt, þessi vefur gengur einmitt út á það. Mín reynsla er sú að t.d. Vargur er ekki með neinar yfirlýsingar nema vita eitthvað um málið! :wub:
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Agnes Helga wrote:ekki myndi ég nú treysta mikið á upplýsingarnar frá dýraríkinu, þar að auki er bannað að auglýsa aðrar búðir hérna.
Og á maður frekar að trítla út í fiskabúr eða? Dýrabúðin sem að tengdist þessu spjalli er ekki til lengur í augnablikinu og getur fólk þá ekki ráðlagt fólki að fara annað. Allavega er maður oft að tala um Trítlu eða Dýragarðinn og afhverju ekki Dýraríkið? Þó að ég persónulega fari aldrei þangað , treysti hinum tveimur betur :P
200L Green terror búr
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Þessi vefur á sitt eigið líf sem er bara frábært, þessar verslanir eru líka með spjöll en ekki eins vinsæl eins og hér! Þetta er bara meira fullorðins og minna rugl í gangi :fiskur:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Sirius Black wrote:
Agnes Helga wrote:ekki myndi ég nú treysta mikið á upplýsingarnar frá dýraríkinu, þar að auki er bannað að auglýsa aðrar búðir hérna.
Og á maður frekar að trítla út í fiskabúr eða? Dýrabúðin sem að tengdist þessu spjalli er ekki til lengur í augnablikinu og getur fólk þá ekki ráðlagt fólki að fara annað. Allavega er maður oft að tala um Trítlu eða Dýragarðinn og afhverju ekki Dýraríkið? Þó að ég persónulega fari aldrei þangað , treysti hinum tveimur betur :P
Það er óheimilt að auglýsa verslanir með beinum hætti hér á spjallinu, umræður sem ekki miða beinlínis að því að auglýsa ákveðna verslun eru þó leyfðar.
Ég skil engan vegin af hverju einhver mælir með Dýraríkinu frekar en annari verslun til að aðstoða í máli sem þessu.

Það er mjög erfitt að greina sjúkdóma og gefa ráðleggingar með svona litlar upplýsingar og best að fólk leiti á netinu og beri upplýsingar þar saman við einkenni hjá sínum fiskum.

Ef um costíu er að ræða þá er erfitt að laga það þegar fiskurinn sýnir svona mikil einkenni.
Þegar þetta kemur upp hjá mér farga ég öllum fiskum sem sína einkenni, salta duglega og hækka hitan í 30°
Post Reply