Nokkrar spurningar sem brenna á mér vegna flutninga í nýtt húsnæði ef þið vilduð vera svo væn
Mælið þið með því að maður reyni að flytja eitthvað að vatninu með? kannski fjórðung eða eitthvað svoleiðis?
Er sniðugt að myrkva búrið í 3-4 daga til að losna við allan þörung og ryksuga svo botninn áður ég flyt það? eða mælið þið frekar með því að maður mundi þrífa það allt hátt og lágt? (skemmtilegra að hafa búrið þörungalaust í nýja húsnæðinu)
Þrífðu búrið um leið og þú tæmir það, fint að ryksuga mölina osf.
Láttu fiskana í annað búr eða rúmgott ílát og láttu helst dæluna ganga þar og ekki þrífa hana.
Settu búrið upp á staðnum, hreint vatn, dæluna í gang og fiskana í.
En eins og með gervigróður og steina og svona í búrinu sem er orðið svolítið grænt, hvernig þrífur maður það? Prófaði að taka eitt blóm uppúr úr um daginn og djöfull er þetta fast á..... Einhver góð leið sem þið mælið með til að fá þetta hreint? sjóða????