Náði í frontosu áðan til Guðjóns og setti í búrið ásamt þeirri sem ég átti fyrir. Þær urðu alveg dásamlega fallega bláar í uggunum, blessaðar dúllurnar. Sæki svo fleiri á morgun.
Ég ætla að taka ryksugurnar á eftir og skella í búrið, ætla þá að reyna að taka góðar myndir af þeim. Ég er samt algjör gunga að halda á fiskunum "á þurru landi" er svo hrædd um að meiða þá því ég er stundum brussa.. hihi..
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Fór í fiskabur.is áðan og fékk mér 3 frontosur í viðbót og eplasnigil.
Skemmtilegt með þessa búð þarna að ég hitti oftast einhvern sem ég þekki eða að ég kynnist einhverjum!
Nú ætla ég ekki að bæta neinu í búrið á næstunni, næst koma 20-30 Tropheus.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Fleygði nokkrum rækjum í búrið áðan. Það er skemmtilegt að sjá hvað áhuginn er mikill fyrir svona ferskmeti og ávallt slegist um hvern munnbita (í báðum búrum).
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Ég er alltaf að fatta upp á einhverju nýju
Fór í einhverja dótabúð í dag í Smáralindinni og nú er gott úrval af alls konar sjóræningjasverðum og ýmsu sjóræningjadóti. Væri gaman að gera svona sjóræningjaþema í búrinu en það er búið að gluða alls kyns lakki og efnum yfir þetta dót sem færi sennilega ekki vel í fiskana.
Ætla að skoða úrval í USA og Kanada þar sem ég á auðvelt með að fá vörur þaðan.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Ó já, mundi líka allt í einu eftir að ég á helling af marglitum perlufestum sem ég fékk á Mardi Gras í New Orleans hér um árið, þær væru flottar í fjársóðskistuna sem ég sá í dag
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Epoxy er lím eða lakk sem er notað við ýmsar aðstæður. Það er oft notað til að vatnsverja hluti sem eiga að fara í fiskabúr.
Epoxy ætti að fást í helstu malningaverslunum.
Sko, var að velta fyrir mér með kribbana.... kerlan er alltaf rosalega fín á litin og rauð á maganum, bara ferlega sexy og hristir sig stanslaust fyrir framan karlinn en hann er alveg gasalega litlaus og áhugalaus.
Ætti hann ekki að vera rauður á maganum o.s.fr. ef hann væri til í tuskið?
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Epoxy lakk og lím er tveggja þátta. Þetta eru tvö efni sem verða að lími þegar þau blandast og komast í tengsl við súrefni. Hafa skal í huga að eftir að efnunum er blandað er aðeins hægt að nota límið/lakkið í stuttan tíma. En þau ættu að geta geimst nokkuð vel sitt í hvoru lagi.
Já, þú sérð að þetta er 9 ára gömul mynd svo það hefur sjálfsagt bæst í hópinn þar sem tegundirnar eiga það til að taka smá skrens útfyrir flokkinn sinn .. .. að auki er alltaf hellingur af ófundnum afbrigðum.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
Gaf ShrimpSticks á línuna í gærkvöldi og það var aldeilis ekki vel séð. Búrið var einn grautur í morgun og ég mátti þakka fyrir að allir voru á lífi þegar ég kom heim í dag.
Skipti um ca. 60 % af vatni en ég þarf að gera betur svo það bíða mín önnur vatnsskipti við fyrsta tækifæri.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.