Andri Pogo - hin búrin mín

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Ari
Posts: 292
Joined: 11 Jan 2008, 20:46
Location: 110 rvk

Post by Ari »

hann er svipaður dovii :)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

nú er jaguar parið farið að moka til mölinni vinstra megin í búrinu, kannski einhverjar hrygningar í uppsiglingu.
Annars eru 2 álíka stórir buttikoferi með þeim í búri og það eru engin slagsmál milli þeirra.
Image

og ný heildarmynd af anddyrisrekkanum, hef ekki enn haft tíma til að klæða hann almennilega :?
Image

Dovii-inn er enn algjör skræfa og heldur sig yfirleitt útí horni.
Image

Svo keypti ég mér loksins loksins rakaheld ljós í rúmgaflsbúrið, sem hefur verið ljóslaust lengi lengi.
Prófaði að tengja eitt þeirra til að sjá, á eftir að setja eitt til viðbótar.
Það virðist vera dekkra en það er á myndinni.
Image

og convict parið hrygnir og hrygnir en alltaf hverfa hrognin strax.
Spurning um að skipta þeim út fyrir eitthvað annað. Inga vill rúmgaflinn+búrið burt en ég vil aðra fiska í það :P
Image
-Andri
695-4495

Image
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

hey! ég vil það ekkert endilega burt...vil bara að þú klárir það og gerir það voða fint :D
animal
Posts: 930
Joined: 07 Aug 2007, 22:49

Post by animal »

Kunningi minn hér í denn var með svona búr við rúmgaflinn og 1na nóttina vaknaði hann upp við svona brest og sér til dýrðar og yndisauka uppgötvaði hann að glerið sem sneri að rúminu gaf sig, það var víst afar hressandi :?
Ace Ventura Islandicus
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

heyrðu okey...ég vil búrið burt :D
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

haha.já limingar geta gefið sig með timanum í svona hristingi... :lol:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég er sammála Ingu, klára búrið eða burt með það.
Er ekki hægt að líma leður á, það hefur tvöfalt notagildi dempar líka öskur og læti :P
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

kúl hugmynd! það er til gerfileður í öllum litum í gardínubúðinni í mjóddinni! :góður:
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

já mér líst vel á leður :D
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ég tók við nano búrinu sem Ásta var með.
Og svona fyrst ég var svo heppinn að vinna 4000kr inneign hjá Fiskó í ljósmyndakeppninni ákvað ég að renna við hjá þeim og finna eitthvað í búrið.
Ég hafði hugsað mér að vera með einhvern gróður en svo sá ég stóran flottan humar sem ég tók, ég veit ekki nafnið á honum og Steini í Fiskó ekki heldur en kallaði hann þó brúnan humar en að þetta væri ekki fallax.

kannski einhver hér geti sagt til um hvað þetta sé, vonandi ekki fallax því kvikindið kostaði 3400kr. Hann er tæplega 10cm.
Eftir að hafa skoðað fiskabur.is síðuna finnst mér hann þó skuggalega líkur fallax :?

Búrið er enn tómlegt og óspennandi en ég reyni að gera eitthvað flott úr því :)

ein léleg mynd:
Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Hann er frekar líkur mínum Fallax, munstrið er eiginlega allveg eins....
Minn fiskur étur þinn fisk!
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

fiskó flytur fallax inn á öðru nafni
ég hefði getað látið þig fá einn svona eða aðra tegund

en ég er samt með það eina rétta í búrið
Image

skilaðu fallax og fáðu eitthvað annað í staðinn og fáðu rækjur hjá mér
setur javamosa eða anubias og búrið verður flott

http://www.fiskabur.is/myndir_vefur/kra ... _grein.htm
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

heyrðu já takk fyrir það, mér líst miklu betur á það enda vildi ég hafa einhvern gróður í búrinu líka.
-Andri
695-4495

Image
Inga Þóran
Posts: 1482
Joined: 20 May 2007, 01:16
Location: rvk

Post by Inga Þóran »

jagúarparið er búið að hrygna :D alveg slatta á eina rót í búrinu... 8)
andri kemur væntanlega með mynd af þessu á eftir þegar hann er búinn að vinna :!:
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Vá til hamingju- ég panta seiði.
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

gaman gaman, vonandi gengur þetta hjá þeim og er frjótt.

Image

Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það er dauður díll á myndavélinni þinni :)
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

hehe já ég veit, ég tek samt furðu sjaldan eftir því
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Dauður díll?

Til hamingju með hrognin samt :)
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

það er rauð doppa á öllum myndunum mínum, sést í miðjum hrognaklasanum á myndunum fyrir ofan.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

hehe. já ég sé.. það er reyndar líka blá doppa neðar :lol:
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ussss ég verð greinilega að fara að fjárfesta í nýrri myndavél við tækifæri
-Andri
695-4495

Image
Gudmundur
Posts: 2115
Joined: 20 Sep 2006, 14:30
Location: Kópavogur
Contact:

Post by Gudmundur »

öfund
alltaf gaman að ná myndum af hrognum
og alltaf gaman að skoða myndir af hrognum og vonandi síðar seiðum í þessu tilfelli
www.fiskabur.is
skemmtileg heimasíða
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

Til lukku með klasann
Last edited by Piranhinn on 08 May 2008, 13:48, edited 1 time in total.
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Piranhinn wrote:
Andri Pogo wrote:gaman gaman, vonandi gengur þetta hjá þeim og er frjótt.
Ég sé ekki þessar myndir :(
Barnaland er niðri, og myndirnar eru hýstar þar... þetta kemur örugglega inn í dag.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Piranhinn
Posts: 917
Joined: 22 Apr 2007, 15:55
Location: Hafnarfjörður
Contact:

Post by Piranhinn »

bingó!
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

Allt gengur vel með hrognin, nokkur eru ónýt og byrjuð að mygla og mörg farin að sprikla.

Image

svo tók ég tvö video af búrinu.

hrognin/seiðin sjást hreyfast í fyrra videoinu
Image

Image


og svo er mikið drullumall á matartíma hjá þeim:
Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Flott :) geðveikt flott þarna rótin sem uppi í yfirborðinu :D
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

það er gaman að fylgjast með þessu hjá þeim, núna eru þau búin að týna frá öll seiðin sem voru farin að hreyfa sig og færa þau út í horn.
Karlinn er að passa hornið og kerlan er að skoða restina og pikkar út þau heilbrigðu :)
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

þá eru svona ca50 seiði spriklandi um hjá foreldrunum, þau eru dugleg að færa þau til og passa þau og eru farin að taka aðeins í buttikoferi.
Það verður gaman að sjá hvernig þetta fer.
Hefur einhver verið að rækta Jaguar hérna? Bara velta því fyrir mér hvort þau myndu hugsa um seiðin áfram eins og t.d. convict gerir eða hvort maður ætti að færa seiðin í annað búr.
-Andri
695-4495

Image
Post Reply