keli wrote:Búrið er í minni kantinum fyrir 2 discusa (amk þegar þeir eru fullvaxnir) og fullt af auka fiskum. Venjulega er talað um ~50 lítra per discus, og þá enga aðra fiska með.
Það getur þó vel gengið ef þú ert mega dugleg í vatnsskiptum og svona
Fínasta búr, verður gaman að fylgjast með þessu.
takk Keli
já ég ætla samt að prófa ef mér finnst það ekki ganga þá sel ég þá bara
Mér líst vel á Inga,prófa Diskana,æðislegir fiskar,ég er með 7 stikki og sé eftir að hafa ekki byrjað fyrr með þá ég hélt bara að það væri svo mikið vesen en svo er ekki.
jæja þá er dvergfroskur númer 2 eða 3 dáinn...litla greyið var á hvolfi í búrinu...
ég setti hann í hendina mína og þá vildi dóttirin endilega fá að halda á honum líka...svo þegar ég bað um hann aftur þá vildi hún alls ekki láta mig fá hann...svo loksins náði ég honum og þegar ég henti honum í ruslið þá barst dóttirin í grát og grét sáran...henni fannst þetta svo ofboðslega sorglegt en ég sagði að hann væri að synda hjá guði
en veit einhver afhverju þessir froskar eru að drepast hjá mér?? nú er allt í góðu með vatnið og ég gef þeim bæði flögur og svo set ég alltaf botntöflur hjá þeim...borða þeir eitthvað annað?
bættist óvænt við fiskur í Ingu búr í dag, hann varð fyrir miklu áreiti á fyrri heimili sínu og var færður þaðan. Bara spurning hversu lengi hann stoppar hjá Ingu.
Smellti nokkrum myndum af honum, enda fyndinn fiskur
með skítinn lafandi:
og ný heildarmynd, flotbúrið var fyrir bardagakarl sem ákvað að stökkva yfir til hinna:
Langaði aðeins að bæta inn í afþví að ég hef sérstakan
áhuga á dverg froskinum Hymenochirus boettgeri og vangavelturnar um
aldurinn er eitthvað sem ég myndi vilja vita...
(Inga, ég athugaði dagsetninguna og er ekki of sein núna )
Lengsta sem ég hef átt svona eru 4ár, hef verið í vandræðum með
að finna einhverjar tölur yfir lífsferil þessa gaurs enda ekki
það vinsæll í tilraunum, en hann verður kynþroska um 9 mánaða sem mér
finnst nú alveg benda til 6-8ára aldurs...
Mér finnst þeir viðbjóðslega viðkvæmir fyrir nitrati
og missi ég alltaf svona ef ég er ódugleg í vatnskiptunum, en ég missti
einmitt virkilega marga '06 þegar ég fékk diskusa og allur áhuginn og
orkan fór í nýju sjæní fiskana sína
Fæ þá aldrei til að lifa í meira en ár í bland við fiska, þeir eru svo lélegir
að éta og mér finnst þeir bara ekkert éta neitt af fiskamatsflögum eins
og svo oft er sagt að þeir geri, en ég næ þeim feitum og pattaralegum
ef ég gef nóg af frosnum blóðormum og pellets sem dettur beint á botninn.
En í fiskabúri er samkeppnin um botn matinn oft rosalega fyrir frosk sem
vill helst éta í róleg heitum og endar oft með því að hann nærist ekki
nóg og drepst. 2002 lét ég Elvar panta inn fyrir mig 30stk af þeim setti
slatta í sitthvort fiskabúrið en hélt svo sér 10-15stk og þeir sem
voru sér höfðu það bara rosafínt ....þar til ég fékk discusa
Vá enginn smá vöxtur hvaða leyndarmál eru þarna á bakvið? eitthvað CO2 kerfi eða? Finnst gróðurinn hjá mér ekkert hafa vaxið í margar vikur koma bara upp nýjir stönglar sem að vaxa smá og hætta svo bara og er ég með svona mini twister einmitt.
En rosalega flott búrið en mætti fara að grisja hehe bráðum verður þetta bara einn gróður