Nýr og hef nokkrar spurningar

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
hafið bláa hafið
Posts: 93
Joined: 04 Feb 2007, 15:27
Location: Reykjavík

Nýr og hef nokkrar spurningar

Post by hafið bláa hafið »

Hæ ég heiti Jóhannes og ég er nýr á spjallinu. Ég er með eitt 60l búr með nokkrum fiskum nenni ekki að telja þá alla upp :oops: en allavega þá hef ég nokkrar spurningar sem að ég vona að þið getið svarað.

1. Einn Gúbbý fiskurinn minn hagar sér frekar skringilega hann syndir lóðrétt og sporðurinn minkar. Og það eru tveir aðrir gúbbý fiskar sem ég átti sem eru búnir að deyja útaf þessu :( . Svo spurningin er hvað get ég gert?

2. Og svo er ég með þrjá dverga gúramí semsagt tvær konur og einn kall. Og konurnar eru alltaf að rífast um kallinn. Svo spurningin er á ég að kaupa annan kall eða bara hafa þetta svona. :?

3. Og ein neon tetran mín er ekki með neinn sporð :shock: og ég var að pæla hvort sporðurinn vaxi aftur :roll:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Sæll Jóhannes og velkominn á spjallið.
Ef sporðurinn er að étast upp á guppy þá er ekki ósennilegt að vatnið sé lélegt, ég mundi skipta út ca 50% af vatninu og salta í kjölfarið.
Annað sem kemur til greina er að einhverjir fiskar í búrinu séu að narta í gúppana eða þá að einhver fungus sé í þeim.
Sporðurinn á tetrunni ætti að vaxa aftur ef hann er ekki af einhvers staðar á búknum.
Ég þekki lítið til gúrama en vonandi getur einhver gefið ráð varðandi þá.
User avatar
hafið bláa hafið
Posts: 93
Joined: 04 Feb 2007, 15:27
Location: Reykjavík

Post by hafið bláa hafið »

Takk kærlega fyrir svarið :D og ég mun skipta 50% á eftir og salta.
User avatar
hafið bláa hafið
Posts: 93
Joined: 04 Feb 2007, 15:27
Location: Reykjavík

Post by hafið bláa hafið »

Það hlítur einhver að vita svarið við spurningu 3 :)
Öll svör eru vel þeginn.
User avatar
Hrannar E.
Posts: 98
Joined: 18 Jan 2007, 06:27
Location: Grindavík

Post by Hrannar E. »

Sporðurinn vex aftur. Hann gerði það allavega á Tetruni minni sem var ekki með sporð 8)
User avatar
hafið bláa hafið
Posts: 93
Joined: 04 Feb 2007, 15:27
Location: Reykjavík

Post by hafið bláa hafið »

já ég er byrjaður að sjá svona smá sporð. Þannig að sporðurinn verður kominn í lag hjá tetru greyjinu eftir einnhven tíma :roll:
User avatar
hafið bláa hafið
Posts: 93
Joined: 04 Feb 2007, 15:27
Location: Reykjavík

Post by hafið bláa hafið »

En veit einhver svarið við spurningu 2 :?: :?: 8)
Post Reply