Hjálp! :(

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
User avatar
Sóla
Posts: 43
Joined: 19 Apr 2008, 19:15
Location: Hfj.

Hjálp! :(

Post by Sóla »

Ef það er einhver hérna akkurat núna þá er kanski séns að bjarga greyinu..

Gullfiskurinn minn var að missa augað, þar sem elskulegur vinur hanns ákvað að éta það úr honum..

Hann er enþá lifandi, einhver séns á að það haldist þannig? :cry:
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Það eru alveg líkur á að hann lifi þetta af, þetta er ekki óalgengt með fiska að þeir missi auga af einhverjum orsökum.

Þú þarft samt að fylgjast vel með þessu upp á sýkingu að gera, gæti jafnvel verið gott að salta búrið strax? Kannski betra að einhver annar gefi svar við því.
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

.....

Post by eyrunl »

ég myndi samt byrja á því að færa fiskinn áður en hitt augað fer...
Eyrún Linda
User avatar
Sóla
Posts: 43
Joined: 19 Apr 2008, 19:15
Location: Hfj.

Post by Sóla »

Skellti honum strax í stóran bolla og saltaði :/
lætur voða mikið eins og þegar þeir eru með svona loft maga eða hvað þetta kallast, en reynir samt að synda helling
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

stór bolli er alltof lítill fyrir gullfisk, hann drepst bara úr stressi þar, ekki á það bætandi eftir að missa auga.

Gerðu eins og ásta segir, saltaðu vatnið og passaðu að þetta komi ekki fyrir aftur (hvaða fiskur át úr honum augað?) og fylgstu með sýkingum og að vatnsgæðin séu góð.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
Sóla
Posts: 43
Joined: 19 Apr 2008, 19:15
Location: Hfj.

Post by Sóla »

Bardagafiskur át úr honum augað..
Og já, er með 60l búr sem ég gæti skellt honum í, þarf bara að þrífa það fyrst... kannski full stórt fyrir hann svona einan?
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

.....

Post by eyrunl »

nei það er ekkert fulltstórt fyrir hann einan :) gullfiskar eru ekki eins og síkliður þeir geta verið einir :)
Eyrún Linda
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

nei það er ekki til neitt sem heitir of stórt :P

þú þarft ekki að hafa miklar áhyggjur af augnleysi.

þessir tveir fiskar hjá mér eru t.d. í fullu fjöri þrátt fyrir að hafa misst auga:

Image

Image
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Sóla
Posts: 43
Joined: 19 Apr 2008, 19:15
Location: Hfj.

Post by Sóla »

Ok, skelli mér í það núna og reyni að halda lífi í greyinu :moping:

Image
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

Ég held að stóri bollinn sem hún dóttir mín svo kurteislega talaði um sé frekar bjórkanna! og hann er pínulítill greyið, ég sagði henni strax að salta og við finnum honum betra húsnæði á morgun ef hann lifir af ræfillinn, spurning hvort hún finnur stærri skál... kannski pott??
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

.....

Post by eyrunl »

ef eitthvað þá væri hrein fata málið, stór poppskál, ... pottur úr stáli gæti kólnað of mikið hugsa ég... then again gler líka...
Eyrún Linda
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

ef bardagafiskur beit hann myndi ég bara skella honum í glasið og leyfa gullfiskinum að vera á sínum stað á meðan þetta grær.
-Andri
695-4495

Image
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

Post by eyrunl »

Andri Pogo wrote:ef bardagafiskur beit hann myndi ég bara skella honum í glasið og leyfa gullfiskinum að vera á sínum stað á meðan þetta grær.
hahaha eins og fiskurinn viti eitthvað hvort það sé verið að skamma hann eða ekki... en það væri gáfulegast svona yfir nótt...
Eyrún Linda
User avatar
Sóla
Posts: 43
Joined: 19 Apr 2008, 19:15
Location: Hfj.

Post by Sóla »

já.. ég á frekar stóra poppskál einhverstaðar inn í skáp, ég held að hitt búrið sé ekki nógu sniðugt þar sem ég hef ekki dælu fyrir það [nemma tunnudælu sem hann mundi sogast í].. Hann er ekki mikið stærri en 3-4 cm greyið
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

eyrunl wrote:
Andri Pogo wrote:ef bardagafiskur beit hann myndi ég bara skella honum í glasið og leyfa gullfiskinum að vera á sínum stað á meðan þetta grær.
hahaha eins og fiskurinn viti eitthvað hvort það sé verið að skamma hann eða ekki... en það væri gáfulegast svona yfir nótt...
skamma hann? veit ekki hvað þú ert að meina með þessu.
Það sem ég á við er að bardagafiskurinn getur alveg verið í þessu glasi tímabundið á meðan sárið á gullanum grær, svona svo hann fari ekki að narta meira í hann á meðan.
Þá ekkert endilega bara yfir nótt heldur þessa daga sem það tekur að gróa fyrir
-Andri
695-4495

Image
eyrunl
Posts: 292
Joined: 03 Apr 2008, 22:02
Location: Kópavogur/Rvk

Post by eyrunl »

Andri Pogo wrote:
eyrunl wrote:
Andri Pogo wrote:ef bardagafiskur beit hann myndi ég bara skella honum í glasið og leyfa gullfiskinum að vera á sínum stað á meðan þetta grær.
hahaha eins og fiskurinn viti eitthvað hvort það sé verið að skamma hann eða ekki... en það væri gáfulegast svona yfir nótt...
skamma hann? veit ekki hvað þú ert að meina með þessu.
Það sem ég á við er að bardagafiskurinn getur alveg verið í þessu glasi tímabundið á meðan sárið á gullanum grær, svona svo hann fari ekki að narta meira í hann á meðan.
Þá ekkert endilega bara yfir nótt heldur þessa daga sem það tekur að gróa fyrir
já ég var að meina þetta í gríni af því þú lést þetta hljóma þannig "ef bardagafiskurinn beit hann"
Eyrún Linda
User avatar
Sóla
Posts: 43
Joined: 19 Apr 2008, 19:15
Location: Hfj.

Post by Sóla »

Mér er næst að láta bardagafiskinn gista í klósettinu á meðan þetta grær :crazy:

En já, þeir eru líka svo helvíti þrautsegir.. Held ég láti bardagafiskinn í skál og leyfi gullfisknum að hafa búrið á meðan þetta er að lagast
User avatar
Sóla
Posts: 43
Joined: 19 Apr 2008, 19:15
Location: Hfj.

Post by Sóla »

Hvað á ég að gefa þessu langan tíma þangað til þetta er búið að jafna sig?
Post Reply