JD enn og aftur....
Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta
JD enn og aftur....
Gamla parið mitt hrygndi um daginn..sú hrygning fór í vaskinn og þau slógust svoleiðis að daman er enn í salti og sárum en nema hvað gaurinn yngdi upp á meðan og nú er heill haugur af hrognum á steini og þau frekar sennileg! Eg er hundfúl vegna þeirrar gömlu ...
.....þú meinar... James Brown fílingur . it´s a ...jarm jarm ..hey ég horfði á hann eyða allri sinni orku í að buffa dömuna meðan restin af búrfélugunum þyrptust að hlaðborðinu .... sá var ekki að pæla í afkomendunum þá! Ég kippti upp rótinni en fékk fungus í allt... svo snéri ég mér að dömunni þegar ég sá hve harkalega hann hafði leikið hana.... og núna prins Valiant komin með yngri á eyruggann... öss sá held ég myndi sinna hrognunum !
Án gríns ...ég hélt fyrirlestur um samheldni farfugla, álfta, þar sem ég ók í morgun meðfram mýrlendi þar sem sjá mátti....anyway...en hvernig er það ef gamla hrygnan hefur þetta af... á hún afturkvæmt í búrið til hinna ? Kemur sjarmörinn sjálfur fagnandi ( meina ef hin er hvort eð er upptekin í einhverju afkomendastússi...) eða fær hun að kenna á því? Hvað haldið þið? Að lokum vil ég taka skýrt fram að ég er ekki eldheitur feministi eða öfgasinni ... ég er bara að fara yfir próf og fleira álíka skemmtilegt...