Skritnir fiskar

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Sisisæta
Posts: 5
Joined: 19 May 2008, 00:10

Skritnir fiskar

Post by Sisisæta »

Ég er nú bara ný hérna og ákvað að spyrja ykkur hérna að einu.
Ég keypti mér nýlega tvo slæðufiska og eru voðalegir sprelligosar báðir tveir, svo bara núna í morgun lágu þeir á botninum og gerðu ekkert.. Svo ég skipti um vatn hjá þeim enda kominn tími til hvort eð er og þeir löguðust smá en núna liggja þeir á botninum og rosalega sérstakir, hreyfa sig ekkert og fl. Þeir eru nú voða fjörugir annars alltaf. Ég skipti reglulega um vatn hjá þeim og ég gef þeim einu sinni á dag. Hvað veldur þessu og hvað get ég gert?
Vonast til að fá svar sem fyrst.
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Geri þá ráð fyrir því að þú talir um Gullfiska

Ertu með þá í búri eða kúlu ? og hversu margir lítrar eru við að tala um þar ?

Hvað líða margir dagar milli vatnskipta hjá þér ?

Hversu mikið vatn skiptir þú út ?
Kv. Jökull
Dyralif.is
Sisisæta
Posts: 5
Joined: 19 May 2008, 00:10

Post by Sisisæta »

Þeir eru í kúlu og já þetta eru gullfiskar. Mig minnir að hún er um fimm - sjö lítrar. Ég talaði við gelluna í fiskabúðinni og hún sagði mér að skipta um vatn á vikufresti, jafnvel á tveggja vikna fresti. Þá skipti ég um vatn hjá þeim þannig ég setji rétt um einn- einn og hálfan líter af fersku vatni í kúluna eftir að ég er búin að þrífa hana og steinana.
Svo, hvað er þetta? Eru þeir að drepast eða?
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

er dæla í búrinu?
er nóg af súrefni?
skiptu bara um allt vatni í kúluni þetta er svo lítið ef þeir lagast ekki settu þá 5 msk af salti í búrið
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Sisisæta wrote:Þeir eru í kúlu og já þetta eru gullfiskar. Mig minnir að hún er um fimm - sjö lítrar. Ég talaði við gelluna í fiskabúðinni og hún sagði mér að skipta um vatn á vikufresti, jafnvel á tveggja vikna fresti. Þá skipti ég um vatn hjá þeim þannig ég setji rétt um einn- einn og hálfan líter af fersku vatni í kúluna eftir að ég er búin að þrífa hana og steinana.
Svo, hvað er þetta? Eru þeir að drepast eða?
Örugglega alltof fáum sinnum skipt um vatn. Myndi ætla að það þyrfti að setja eitthvað ferskt vatn á hverjum degi. Þar sem að í t.d 60L búri með dælu og öllu þarf að skipta um 30% á vikufresti en sleppur á tveggja vikna fresti í búrum sem að eru yfir 100L (þó að alltaf sé betra að skipta á vikufresti :) ) , þannig að já ég held að þetta séu bara of lítil vatnaskipti og örugglega ekki gott að þrífa steinana of mikið þar sem að þar er bakteríuflóran, betra að kaupa svona litla handryksugu (ekki lifandi) sem að er notuð til að sjúga upp kúk í búrum :) og skipta oftar um vatn. Systir mín var með einn gullfisk í svona stórri kúlu og hann fór einmitt að synda skringilega bara eftir 3 daga eða álíka, þá var vatnið orðið svo mengað ef að ekki var skipt um vatn.
200L Green terror búr
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Arnarl wrote:er dæla í búrinu?
er nóg af súrefni?
skiptu bara um allt vatni í kúluni þetta er svo lítið ef þeir lagast ekki settu þá 5 msk af salti í búrið
Vá alls ekki setja svona mikið salt :shock: Þú sagðir nú sjálfur að það ætti að vera 1 msk á 10 L , þetta er 5L kúla :? Þá ætti þetta að vera HÁLF msk af salti. Ekki eru þettu sjávarfiskar er það? :P

En held að það sé ekki gott ráð að setja salt í búrið ef að engin einkenni á fiskunum er eins og hvítblettaveiki eða annað :) þetta eru örugglega bara léleg vatnaskipti , ættir að prófa það fyrst og fara svo út í saltið ef að það lagar ekki fiskana :)
200L Green terror búr
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Ég á svipað stóra kúlu, og mér var ráðlagt að skipta um smá vatn á hverjum degi, og síðan 60% á viku fresti :) Svo það er alltaf lítið um vatnsskipti og ég var eimmitt líka með 2 litla gullfiska.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
Sisisæta
Posts: 5
Joined: 19 May 2008, 00:10

Post by Sisisæta »

Á ég þá að skipta um vatn þá kannski á þriggja daga fresti eða ... oftar?
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Sisisæta wrote:Á ég þá að skipta um vatn þá kannski á þriggja daga fresti eða ... oftar?
Örugglega best að skipta um eitthvað á hverjum degi því að þessar kúlur mengast alveg hrikalega hratt með gullfisk í og hvað þá tveimur :)
Last edited by Sirius Black on 19 May 2008, 13:53, edited 1 time in total.
200L Green terror búr
User avatar
Arnarl
Posts: 1233
Joined: 15 Feb 2008, 22:26

Post by Arnarl »

Sirius Black wrote:
Arnarl wrote:er dæla í búrinu?
er nóg af súrefni?
skiptu bara um allt vatni í kúluni þetta er svo lítið ef þeir lagast ekki settu þá 5 msk af salti í búrið
Vá alls ekki setja svona mikið salt :shock: Þú sagðir nú sjálfur að það ætti að vera 1 msk á 10 L , þetta er 5L kúla :? Þá ætti þetta að vera HÁLF msk af salti. Ekki eru þettu sjávarfiskar er það? :P

En held að það sé ekki gott ráð að setja salt í búrið ef að engin einkenni á fiskunum er eins og hvítblettaveiki eða annað :) þetta eru örugglega bara léleg vatnaskipti , ættir að prófa það fyrst og fara svo út í saltið ef að það lagar ekki fiskana :)
Jáá Sh*t Fyrirgefðu hugsaði ekki allveg
Minn fiskur étur þinn fisk!
User avatar
Agnes Helga
Posts: 1580
Joined: 18 Nov 2006, 14:05

Post by Agnes Helga »

Sisisæta wrote:Á ég þá að skipta um vatn þá kannski á þriggja daga fresti eða ... oftar?
Svona kannski 1-2 glös á dag og svo 60% á vikufresti! það er það sem ég fékk að vita þegar ég keypti mér kúluna, því minni búr því meiri vatnskipti.
450 L amerískar síklíður, 120 L guppy/smáfiska gróðurbúr, 180 L malawii/skjaldböku búr og 85 L seiðabúr
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Fyrir kúlur er þörf á daglegum vatnskiptum, allt í lagi þótt að einn og einn dagur gleymist og ekki er þá þörf að taka eitthvað meira næsta dag

Fínt er að taka 250 - 400ml af vatni úr og setja nýtt í daglega

Svo gott að taka einu sinni í viku aðeins minna en 50% af vatninu og áður en þú tekur vatnið að hræra svolítið í botninum svo að drullan þyrlist örlítið upp og fari síðan út með vatnskiptunum :)
Kv. Jökull
Dyralif.is
Sisisæta
Posts: 5
Joined: 19 May 2008, 00:10

Post by Sisisæta »

Takk æðislega!!
Loksins fæ eg að vita hvað ég á að gera :D
Það er svo erfitt að horfa uppá fiskanna sína svona.
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

þegar ég var með kúlubúr þá skipti ég um 1L á dag. það er .5L á morgnana og svo .5L að kvöldi.

einu sinni í viku var tekið 50% af vatni og jökulkalt sett í staðinn.
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

naggur wrote:þegar ég var með kúlubúr þá skipti ég um 1L á dag. það er .5L á morgnana og svo .5L að kvöldi.

einu sinni í viku var tekið 50% af vatni og jökulkalt sett í staðinn.
Ætli það sé nokkuð sniðugt að setja 50% ískalt vatn í staðinn? fiskarnir gætu fengið sjokk. Þó að þetta séu kaldvatnsfiskar þá kannski þola þeir ekki alveg 10°C heitt vatn allt í einu, fiskar þurfa að venjast hitanum smám saman.
200L Green terror búr
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

alla vegna dráðust þeir ekki hjá mér heldur þvert á móti. urðu mjög aktivir.
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
ulli
Posts: 2777
Joined: 08 May 2007, 00:45
Location: Ísland

Post by ulli »

hvernig myndi þú bregðast við ef ég helti fötu af ísköldu vatni yfir þig :twisted:
jk
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

naggur wrote:alla vegna dráðust þeir ekki hjá mér heldur þvert á móti. urðu mjög aktivir.
Líklega aktívir við að reyna að komast úr kuldanum. Þetta er lélegt ráð og ég ræð öllum frá því að setja ískalt vatn í fiskabúr - vatnið á að vera sem næst þeim aðstæðum sem eru í búrinu fyrir, nema það sé verið að skipta um afskaplega lítið magn (1%).
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
User avatar
naggur
Posts: 494
Joined: 29 Aug 2007, 21:05
Contact:

Post by naggur »

ég vissi ekki betur þá enda að byrja eins og margir aðrir sem eru að koma hingað inn.
það er hægt að segja að byrjendum sé fyrirgefið nánast strax
german blue ram (4 stk.)
tetrurnar 11
taugaveiklaði perlugúraminn
gullrún gúrami
já og síkliðan sem ég hélt að væri dauð :) sem er núna DAUÐ
User avatar
gudrungd
Posts: 1301
Joined: 03 Mar 2008, 11:19
Location: 108, Rvk

Post by gudrungd »

naggur wrote:þegar ég var með kúlubúr þá skipti ég um 1L á dag. það er .5L á morgnana og svo .5L að kvöldi.

einu sinni í viku var tekið 50% af vatni og jökulkalt sett í staðinn.
Það er verið að biðja um hjálp, ekki spyrja hvað aðrir hafa gert vitlaust gegnum tíðina. Það eru svo margir hérna með reynslu að við sem vitum minna eigum bara að leyfa þeim að svara held ég! :pot:
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

naggur wrote:ég vissi ekki betur þá enda að byrja eins og margir aðrir sem eru að koma hingað inn.
það er hægt að segja að byrjendum sé fyrirgefið nánast strax
Það hefði þá passað að taka það fram í upphaflega póstinum - Eins og hann er núna er eins og þú sért að mæla með því að aðrir geri þetta útaf því að það drapst ekkert hjá þér.
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
Post Reply