Green terror - skaðræðisskepna ?

Umræður um afrískar sikliður og amerískar í stærri kantinum

Moderators: Vargur, Hrappur, Ásta

Post Reply
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Green terror - skaðræðisskepna ?

Post by Vargur »

Ég fékk mér 1 stk. G. terror í dag. Terrorin er að mínu mati með fallegri Ameríkusikliðum en ég hef heyrt margar sögur af hrottaskap þeirra en einnig eittvað um að þeir geti verið nokk friðsamir.
Eru einhverjar reynslusögur, sérstaklega af fullorðnum fiskum ?

Image
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Ég gætti þess að kaupa mína smáa þannig að þeir hafa ekki burði í að ibba gogg. Þeir eru lang minnstu fiskarnir í búrinu.

Ég var með einn green terror í blönduðu búri back in the day þar sem fyrir voru stærri afrískar síkliður. Einnig gullfiskur. Hann kálaði tveimur afrískum en lét gulla vera. Uss.


Svo var frændi minn með einn GT um daginn sem var ekki ýkja stór en samt nokkuð stálpaður, í búri hjá stórum óskar. óskarnum var kálað :?


En að því sögðu, ef maður er með fínt jafnvægi sem hentar GT þá er hann hrikalega skemmtilegur búrfiskur, ægi fagur og ég hef lesið að þegar hann eldist þá gerist hann ansi hreint manngæfir.... ekki ósvipað Óskörunum.
Post Reply