Þær eru þó fljótar að fjölga sér að þú verður kominn með alltof mikið af þessu fljótlega
Ég er einmitt að pæla hvort ég eigi að taka 1-2 pör úr stóra búrinu mínu og gefa þeim smá frið til að koma nokkrum hrygningum á legg.. En þá þarf ég víst að ná þeim fyrst.
Jæja langt síðan nokkuð hefur verið skrifað hér inni svo mér datt í hug að leifa fólki aðeins að fylgjast með hver staðan er hjá mér með búrin,allavega þá er ég búinn að selja allar aferísku síkliðurnar í 300 lítrunum og er kominn með Discusa í það búr,hef núna verið með þá í um 3 mánuði og búinn að vera í veseni með þá,en núna er allt komið í góðan gír,ég var víst með vitlausan hita í búrinu en um leið og ég breytti því þá varð allt í gott, þar eru líka um 20 4cm Ancistrur og 3 golden slor Ancistrur.Annað hundrað lítra búrið er núna með Fiðrildasíkliðu pari og gróðri,hitt hundraðið er tómt eins og er,hef ekki ennþá ákveðið hvað mig langar til að hafa í því,hallast helst að einhverjum smáum síkliðum,80 lítrarnir eru nú bara fullt af Gubby fiskum og þeirra seiðum og náttúrulega einu Ancistrupari sem eru með um 70 seiði og búin að hrygna aftur,skil ekki gredduna í þessu pari þau eru að hrygna einu sinni í mánuði,þetta er í 5 skiptið frá áramótum,60 lítrarnir eru með fiðrildasíkliðarpari og Ancistrupari með hrogn,svo eitt nýtt búr held að það sé um 50 lítrar,þar eru slatti af kribbum og ancistru ungum og fullorðnu Ancistrupari og pleggakvikindinu sem ég man aldrei nafnið á,svo er 1 lítið 25 lítra inni í geimslu,annars er gaman að segja frá því að sennilega eru spjallverjar hér inni sennilega komnir með um 350 Ancistrur frá mér
Jæja var að veiða ancistruseiði úr einu búrinu til að getað þrifið það og kom í ljós að þau voru 314 vúhú,vona bara að drengstaulinn sonur minn drepi ekki greyin meðan ég verð úti
Ég skellti mér í smá heimsón til Pípó áðan og skoðaði dýrðina, ég er alveg hissa á að fjölskyldan hendi honum ekki út, karlinn hlítur að skaffa vel. en hann er jafnvel búinn að troða fiskabúrum í barnaherbergin (reyndar eru börnin hálfullorðin og spurning hvoert þau ættu ekki að fara að drattast af heiman og leyfa gamla að fá hobby herbergi).
Þar sem Pípó er svo duglegur að setja inn myndir þá hendi ég inn þremum sem ég tók.
Nei ég gafst ekki upp.ég er bara háður drengstaulanum syni mínum með að setja inn myndir ég get ómögulega lært hvernig þetta er gert er eitthvað svakalega heftur hvað svona varðar en reyni fljótlega að koma með eitthvað.
pípó wrote:
Jæja er að rembast við að læra þetta,fyrstu myndirnar mínar hingað inn vei :)En þær eru nú ekkert sérstaklega vel teknar,en vonandi verða þær betri með tímanum þegar ég verð búinn að læra á þessa ansk myndavél
Eitthvað af þessum fiskum synda glaðir um í búrinu mínu í dag...