Ný tegund af saltvatnsfiskabúrum

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Ný tegund af saltvatnsfiskabúrum

Post by Ólafur »

Var á ferðini i Siðumúlanum i dag og kom við hjá þeim i Dýragarðinum og tóku þeir vel á móti manni sem endranær og vakti athygli mina sem fyrrverandi saltvatnsbúreigandi að þeir voru að taka upp úr kössunum alveg spáný sérhönnuð saltvatnsbúr. Þessi búr eru sér framleidd fyrir saltið og koma með bókstaflega ÖLLU. Alveg brilljant hugmynd hjá þessum framleiðanda. Búrin eru ekki stór svo verðið þarf ekki að rjúka upp úr öllu valdi eins og vill verða i saltinu og þér vanhagar ekki um neitt þvi það er bókstaflega allt i þessum pakka frá þeim. Þú einfaldlega setur það saman þegar þú kemur heim og stingur þvi i samband og búrið er tilbúið. Eða eins og stendur á pakkanum "Plug and Play" :) Frábært framtak.
Fann linkin frá þessum framleiðanda og þar er kynningarvideo sem allir saltvatnsunnendur sem og bara fiskaunnendur ættu að sjá.

http://www.redseafish.com/main.asp
Last edited by Ólafur on 07 Feb 2007, 17:32, edited 1 time in total.
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Mr. Skúli
Posts: 463
Joined: 10 Nov 2006, 19:54
Location: Hafnafjörður
Contact:

Post by Mr. Skúli »

já ég sá þetta líka áðan.. algjör snilld!.. lætur manni fara að langa smá í saltvatn... eeen verðið er 130.000 krónur... :roll:
Dýragardurinn
Posts: 143
Joined: 11 Dec 2006, 16:29
Location: Dýragarðurinn

Post by Dýragardurinn »

Sælir strákar vildi koma fram leiðréttingu á verðinu á búrinu. Verðið á búri og skáp og allt sem þarf til að starta búrinu er 120þús.

Innifalið í verðinu er Búr, skápur, straumdælur, skimmer, filterefni, salt, sandur, mælisett, bakteríuflóra, saltmælir og bætiefni.
festivum
Posts: 45
Joined: 16 Jan 2007, 11:04

Post by festivum »

...ég er kanski ekki sú reyndasta í þessu.. en þessi pakki sem dýragarðurinn er að bjóða uppá virðist vera á fínu verði (þó svo að ég reiði ekkert fram 120. þúsund kall eins og ekkert sé.. mikill peningur, kanski ekki það mikill miðað við hvað maður fær fyrir hann)
Gudjon
Posts: 1308
Joined: 18 Sep 2006, 19:34

Post by Gudjon »

Hvað eru þessi búr margir lítrar? og málin væru ágæt ef einhver er með þau á hreinu
Ólafur
Posts: 1154
Joined: 17 Sep 2006, 13:46
Location: Reykjanesbær

Post by Ólafur »

Þau eru ca 130 litra en málin er ég ekki með á hreinu en það er hægt að skoða þau hérna.
http://www.redseafish.com/main.asp
Kv
Ólafur
Kveðja
Ólafur
olafurm@istak.is
Post Reply