Var á ferðini i Siðumúlanum i dag og kom við hjá þeim i Dýragarðinum og tóku þeir vel á móti manni sem endranær og vakti athygli mina sem fyrrverandi saltvatnsbúreigandi að þeir voru að taka upp úr kössunum alveg spáný sérhönnuð saltvatnsbúr. Þessi búr eru sér framleidd fyrir saltið og koma með bókstaflega ÖLLU. Alveg brilljant hugmynd hjá þessum framleiðanda. Búrin eru ekki stór svo verðið þarf ekki að rjúka upp úr öllu valdi eins og vill verða i saltinu og þér vanhagar ekki um neitt þvi það er bókstaflega allt i þessum pakka frá þeim. Þú einfaldlega setur það saman þegar þú kemur heim og stingur þvi i samband og búrið er tilbúið. Eða eins og stendur á pakkanum "Plug and Play" Frábært framtak.
Fann linkin frá þessum framleiðanda og þar er kynningarvideo sem allir saltvatnsunnendur sem og bara fiskaunnendur ættu að sjá.
...ég er kanski ekki sú reyndasta í þessu.. en þessi pakki sem dýragarðurinn er að bjóða uppá virðist vera á fínu verði (þó svo að ég reiði ekkert fram 120. þúsund kall eins og ekkert sé.. mikill peningur, kanski ekki það mikill miðað við hvað maður fær fyrir hann)