Ég er alltaf í vandræðum með þetta nítrat nítrit dæmi og rugla þessu öllu saman sitt á hvað
svo ég ákvað að flétta þessu upp og útlista þetta eins skýrt og ég get hér,
vona að það komi að gagni
Heitin:
ammonia = NH3
Nitrit = NO2
Nitrat = NO3
Nitrobacter = jákvæð bakteríuflóra
Svona gengur þetta fyrir sig...
eitruð ammonia breytist í nitrit, nitritið breytist í nitrat með hjálp nitrobacter.
Þetta hringferli verður að fá að klára sig áður en maður setur fiska (eða önnur dýr) í vatnið,
þar sem byrjun hringferlisins er frekar eitrað og góðar líkur á að dýr sem
skellt er í glænýtt vatn án þess að jákvæð bakteríuflóra sé til staðar farist vegna
þeirra eitrunar sem byrjar um leið og lífrænn úrgangur (kúkur/afgángsmatur) byrjar að
rotna í búrinu.
Svo ef maður ætlar að fá sér fiska og fiska búr er gott að byrja á því að setja upp búrið,
með vatni og svo byrja hringferlið áður en þú setur fiskana í. Til að koma ferlinu á stað
getur þú sett tilbúna jákvæða bakteríuflóru í búrið eða að setja smá skammt af lífrænum
úrgang í búrið, sumir fá sér tvo - þrjá harðgerða fiska til að koma ferlinu í gang.
Rotnandi lífrænn úrgangur myndar eitrað ammonia í nýjum búrum sem breytast í nitrit,
bakteríurnar Nitrosomonas og Nitrococcus sjá um þessa breytingu, oft
er þetta nitrit einnig eitrað. Nitratinu er síðan breytt í nitrat af annari bakteríu nitrobacter.
Nitrobacter bakterían er sú baktería sem við reynum að byggja upp í búrunum okkar
og halda í, þar sem hún tekur ''eitur'' og breytir því í hættulaust efni*
Nitrobacter bakterían heldur sig yfirleitt í mölinni, þess vegna er alltaf sagt að maður
megi ekki þrífa mölina Einnig hreiðrar hún um sig í tunnudælum í þar til gerðum keramik
rörum eða öðrum bio dælu búnaði.
Þetta er líka ástæðan fyrir því að þrif á tunnudælu og fiskabúri samtímis er bönnuð,
þá tekurðu burt jákvæðu bakteríuna allstaðar í búrinu...
Þessi bakteríu hringrás á sér alltaf stað í fiskabúrinu hjá okkur hring eftir hring,
en það er aðeins þegar vatnið er glænýtt sem ammonium og nitrit verða eitruð og
mjög hættuleg fiskunum...
Athugið líka að mörg lif steindrepa jákvæðu bakteríuflóruna þar sem þau eru gerð
til að berjast við bakteríusýkingar, þá byrjar ferlið aftur upp á nýtt...
Þess vegna er mælt með því að nota lifandi bakteríumeðferð eftir slíkar lyfjagjafir...
Biofiltr frá dajanapet er eina lifandi bakteríuflóran sem ég hef prófað
en hún hefur reynst mér stórvel, ekkert tap á fiskum eftir lyfjagjafir
*Athugið innleggið frá Nebba hér fyrir neðan, mikilvægt að hafa í huga.
NO2 og NO3?
Moderators: Vargur, Andri Pogo
- ~*Vigdís*~
- Posts: 525
- Joined: 20 Sep 2006, 19:03
- Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
- Contact:
NO2 og NO3?
Last edited by ~*Vigdís*~ on 14 Feb 2007, 03:44, edited 1 time in total.
flott !
langar samt að bæta við að nitrat er ekki hættulaust og eru vatnaskipti einfaldasta leiðin til að minnka nitrat í búrum .
einnig þrífast plöntur og þörungur á nitrati og ammoníu svo það er ágætis ráð að vera með slatta af plöntum ef hægt er. . sumir ganga svo langt að vera með heimilisplöntur ofan á búrinu og ræturnar ofan í búrinu .
það eru til sérstakar nitrat hreinsidælur þar sem vatnið er súrefnissnautt því bakterían sem breytir nitrati í nitrogen gas lifir bara í súrefnissnauðu vatni.
nitrat getur lika breyst aftur í nitrite ef vatnið er súrefnislitið .
en það er ekki fyrr en nitratið fer úr búrinu með einum eða öðrum hætti sem nitrogen hringurinn er kominn hringinn ef svo má segja..