Ég gekk frá þessu svona í minni tjörn - það er ekkert vandamál með að þökurnar vaxi ekki, og þær gréru saman. Hinsvegar útaf því að það er dúkur undir þá eru þær pínu "lausar", og svo er líka pínu vandamál að þær snerta vatnið sumsstaðar og sjúga upp bleytuna þannig að grasið í kringum tjörnina er alltaf hálf rakt. Ég er ennþá að pæla í hvernig ég á að ganga frá þessu, er ekki 100% sáttur við bara þökurnar.
Það verður sírennsli, affallið af öllum húsonum fara í tjörnina, það er risa kjúklingahús hérna sem er með fullt af ofnum og hita í gólfinu og planinu fyrir utan svo íbúarhúsið, sólstofan með hita í gólfinu og einhvað svaka þannig það verður alltaf í kringum 17-20° kannski miklu meira
Ég myndi sleppa þökunum og byggja frekar utanum tjörnina, grasið þarf að slá reglulega og þá fer það ofan í tjörnina sem er ekki flott og byrjar að rotna sem getur valdið veseni
var að pæla í að byggja bara í kringum hana en held að það gæti verið vesen, því hún er svo rúnuð og þá þyrfti að bera á það og þá gæti farið gums ofaní, og þá mundi líka sjást í dúkinn frá vatnsborði og upp
Hefði ekki verið magnað að hlaða steinum hringinn innan tjarnarinnar, alveg upp að brún og láta svo þökurnar fara yfir steinahleðsluna. Þá ertu laus við rakan í grasinu, og ættir að vera kominn með fullt af felustöðum fyrir þá fiska sem vilja þannig.
Nei það er ekki hægt fara laufblöð og gras og þannig drasl sem festtist þar og rotnar en ég hef ákveðið að byggja í kringum tjörnina og hafa bara eina spýti sem fer í vatnsyfirborðið svo fer líka látt grindverk í kringum tjörnina, með ljósum ofan á til að lýsa þetta upp svo spurning um að setja ljós í botninn á tjörninni kannski tvö þrjú ljós
Jæja búinn að kaupa allar slöngur og stúta fyrir dæluna og filterinn, er líka búinn að gera foss úr stuðlabergi, á bara eftri að höggva aðeins í einn steininn til að gera svona braut fyrir vatnið, myndavélin batterýslaus kem með myndir á morgunn
hérna á túninu Frænka mín og maðurinn hennar áttu leggsteina fyrirtæki sem hét Granít og það var einhver sem kom með þetta fyrir mörgum árum í leggsteina en var aldrei notað
Jæja nú eru komnar myndir af fossinum þegar ég setti hann upp um daginn var hann svo lár einhvað að ég tók hann niður og setti steytaplötu undir hann, þannig hann hækkaði um einhverja cm
Fyrir:
Eftir:
Þetta var smá tilreun en hún var ekki nógu flott
búinn að gera affallið þannig að ég get sett upp filterinn og fiskana í vonandi á morgunn
ein spurning: er ekki allveg hægt að vera með sand í botninum? og setja dæluna uppá einhverskonar skál
var að skoða dæluna betur, það er sigti utanum hana sem ég ætla örugglega að gera spreyja svart sometime
vonast til að geta sett upp filterinn í dag
Edit:búinn að setja upp filterinn svona bráðabrigða, þannig á morgunn fara Gulli(gullfiskur) og Alli(hvítur gullfiskur) og Koiinn sem er greygið í allt of litlu búri í tjörnina
Fiskarnir farnir í tjörnina rosa fyndið að gullfiskarnir tveir eru alltaf saman og koinn fyrir framan þá hann syndir líka miklu hraðar, búrið hjá þeim í morgunn var 20° en tjörnin er 18,7° kem með myndir á eftir