Fiska/plöntubrask Petrúnar

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Petrún
Posts: 71
Joined: 14 Dec 2006, 10:58
Location: Mosó
Contact:

Fiska/plöntubrask Petrúnar

Post by Petrún »

Jæja. Þar sem maður var að kaupa sér nýjar perur (Day-lite og Warm-Lite) og CO2 system fyrir fiskabúrið hef ég ákveðið að halda út smá dagbók, gá hvernig plönturnar dafna og hvort fiskarnir verði eitthvað fjörugri. (þetta verður líka til að minna mig á að skipta út í Co2 dallinum :P )

Svona lítur fiskabúrið út eins og er, með nýju ljósin. Mér finnst samt eins og ljósin séu of gul, ættu að vera aðeins hvítari fyrir plönturnar. Een, ég sé til hvernig það verður.
Image

Þá er bara að bíða og sjá til hvernig þetta dafnar allt saman. :)
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

þetta er geggjun. fékkstu co2 sístemið í dýragarðinum?
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

þetta lýst mér vel á :)
"rauða " ljósi gerir það plöntunar vaxa i lengðina, það "bláa" ljós gerir það plöntunar verður kompakturi (stutt vext).

Þú gleymur ekki að skifta út Co2 - þegar ekki meira reglulega "blöðra" koma þá er tima til að skifta.

Er spenntur að heyra hverning gengur
Petrún
Posts: 71
Joined: 14 Dec 2006, 10:58
Location: Mosó
Contact:

Post by Petrún »

Birkir wrote:þetta er geggjun. fékkstu co2 sístemið í dýragarðinum?
Nei, ég fékk það í Fiskabur.is, sá það samt líka í Fiskó. Þetta er örugglega til í flestum gæludýrabúðum bara, og nokk auðvelt í notkun. :)
Petrún
Posts: 71
Joined: 14 Dec 2006, 10:58
Location: Mosó
Contact:

Post by Petrún »

Jæja.. Það er hægt að segja það að Cabomba Caroliana vex eins og illgresi hjá mér eins og er, þannig að kannski er þetta að hjálpa eitthvað til.

cO2 flæðið er reglulegt, en það er farinn að myndast smá þörungur í rennibrautinni, er það eitthvað sem ég ætti að hafa áhyggjur af?

Ég ætla að fara í smá breytingar í búrinu á eftir, færa hávöxnu plönturnar aftar og hafa lægri plönturnar að framan, gá hvernig það kemur út. Það kemst þá aðeins meira ljós á sumar plönturnar.
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

Ertu með þetta frá Hagen? Nutrafin natural system?
Er þetta til fyrir stærri búr, finn þetta bara til upp að 180lítrum...
Get ég notað það fyrir 450lítra? Svona eins og skárri en ekki neitt?
Petrún
Posts: 71
Joined: 14 Dec 2006, 10:58
Location: Mosó
Contact:

Post by Petrún »

Já, ég er með þetta frá Hagen.

Ég þekki ekki alveg hvernig þetta er með stærri búr.
Stephan
Posts: 311
Joined: 17 Oct 2006, 14:57
Location: Seljabraut 72 109 RVK

Post by Stephan »

Vígdis; Þetta er , eins og ég veit best , bara þessi stærð.
Það er öruglega betra þetta enn ekki neigt !!! ekki spurningu.
Annars er lika hægt að hafa 2 að því :D , þá ertu kominn lika með meira..

Petrún; það er gaman að heyra það virkar eittvhað :) , ég mundi ekki hafa "off mikið" áhugar á þörungur i rennibraut. Ég nota gamla tannbursta og hringsa það aðeins , svona annar hvert mánuður. Það þarf smá "sleypiefni" i rennibraut það blöðrur renna betra .
Væri gaman að sjá myndir eftir breytingu :lol:
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

~*Vigdís*~ wrote:Ertu með þetta frá Hagen? Nutrafin natural system?
Er þetta til fyrir stærri búr, finn þetta bara til upp að 180lítrum...
Get ég notað það fyrir 450lítra? Svona eins og skárri en ekki neitt?
Ég þekki einn sem er með svona í 400 l Búri og það svínvirkar hjá honum, hann er með búrið stútfullt af gróðri og allt er í miklum vexti, hann er reyndar með aukasettið af ljósum, 4 perur í heildina og tvær þeirra eru gróðurperur.
Og eins og Stephan segir þá er hægt að vera með 2 sett og væntanlega er það líka nokkuð sniðugt, haga því þá þannig að bruggið fjari út á sitthvorum tímanum.
Petrún
Posts: 71
Joined: 14 Dec 2006, 10:58
Location: Mosó
Contact:

Post by Petrún »

Jæja, hér er svo mynd eftir breytingar. Á eftir að laga staðsetningu plantnanna samt, vatnið varð dálítið gruggugt á næringunni sem er í botninum og ég sá því lítið hvað ég var að gera.
En fiskarnir eru sjáanlegri núna, þeir koma meira fram, þannig að það lofar góðu.

Image
User avatar
~*Vigdís*~
Posts: 525
Joined: 20 Sep 2006, 19:03
Location: Úthverfi dauðans Aldur: 30ára
Contact:

Post by ~*Vigdís*~ »

fínn skali sem þú ert með
Mér finnst þeir svo fallegir svona svartir, eins
black mollý, eitthvað við þessa fiska :oops:

p.s. Vargur/Stephan takk fyrir svörin :mrgreen:
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

Þetta búr er duló.
Petrún
Posts: 71
Joined: 14 Dec 2006, 10:58
Location: Mosó
Contact:

Post by Petrún »

Duló hvernig? :P
User avatar
Ásta
Posts: 5780
Joined: 18 Sep 2006, 15:12
Location: Í gettóinu
Contact:

Post by Ásta »

Ég er eiginlega sammála Birki, það er eitthvað duló við þetta búr.
Loch Ness skrímslið gæti alveg eins synt fram einn daginn eða einhver kynjaskepna.
You can fool some people sometimes, but you can´t fool all the people all the time.
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Sjáið tildæmis þennan rauða ljóman í búrinu þarna hægramegin. Þetta er virkilega spúkí. Petrún ég held þú ættir að gæta þín og vera vel á verði.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ha ha, já er er sammála.
Þetta búr er eins og trjálundur við hliðina á kirkjugarði, sennilega alveg save en samt eitthvað.....
User avatar
Varlamaður
Posts: 1221
Joined: 06 Nov 2006, 16:02
Contact:

Post by Varlamaður »

Nú er ösku(r)dagur á morgun. Ef hann er eitthvað líkur halloween þá er vissara að vera ekkert nálægt búrinu.
Birkir
Posts: 1150
Joined: 22 Oct 2006, 13:34
Contact:

Post by Birkir »

ég forðast að horfa djúpt inn í búrið hægra megin frá mér séð :shock:
Petrún
Posts: 71
Joined: 14 Dec 2006, 10:58
Location: Mosó
Contact:

Post by Petrún »

Hehehe, hvaða hvaða. Mér finnst búrið fínt svona. :)

Annars þá er gróðurinn greinilega að taka aðeins við sér, líst bara vel á hvert þetta stefnir. :)
Post Reply