jæja.. kominn tími á update Blue Acara eru með heilan helling af seiðum hjá sér (giska á sona 50stk ) og við ákváðum að taka "hellirinn" af ancistrukallinum og tékka á því hvort við næðum ekki að skella seiðunum í annað búr og viti menn það komu alveg 13 stykki er nokkuð of snemmt að taka seiðin frá kallinum? Það eru sko komnar svona 2vikur síðan hann byrjaði að vera þarna
What did God say after creating man?
I can do so much better
ok takk þá veit ég það skellti gúrkubita oní hjá þeim og þau virðast alveg vera að fíla það en ég sé til hvernig etta gengur... Hvað eru þau annars lengi að verða 3-4cm?
What did God say after creating man?
I can do so much better
kallinn er akkurat á leiðinni frá þér... Get ekki beðið ettir að sjá gaurana Ætli við þurfum þá ekki að fara að breyta aðeins til í búrunum.. Æ það kemur bara í ljós á eftir.. Annars er svosem ekkert að frétta úr búrunum nema ancistruseiðin sem komu um daginn hafa það bara gott í seiðabúrinu með guppyseiðunum og Blue Acara seiðin stækka með hverjum deginum þó mér finnist eikvað hafa fækkað í hópnum
What did God say after creating man?
I can do so much better
Jæja töffararnir frá Birki komnir í hús og alveg ýkt flottir einn firemouthinn er að vísu soldið skakkur um kjaftinn og óskarinn er eitthvað útundan en ég vona að þeir bjargi sér alveg.. Annars er eitt 100lítra búr í rekkanum orðið tómt og mig langar að hafa það soldið blandað.. Guppy og miklir gruggarar eru alveg útúr myndinni en mér þætti vænt um ef ég fengi einhverjar hugmyndir hjá ykkur Það eina sem er alveg pottþétt að fari oní það eru 3 Cory og candy striped pleco
What did God say after creating man?
I can do so much better
Þakkaðu Pása fyrir gott sms í gær á leiðinni heim! Skyldist á honum að plegginn var að losa vatn í pokanum sýnum. Alltaf er maður að læra eithvað nýtt.
Firemouth með skakka munninn heitir Ægir.
Óskarinn hlýtur að koma til brátt. Óforskömmuðustu fiskar allra tíma.
Jamm plegginn stakk víst alveg ágætis gat á pokann En já ég vona það besta með óskarinn, hann er orðinn verri en hann var í gær.. Liggur bara á hliðinni á botninum nema einhver böggist í honum.. Erum að spá í að setja hann í sér búr í einhvern tíma og gá hvort hann lagist ekki
What did God say after creating man?
I can do so much better
Óskarar geta farið í svaka fýlu við flutninga og liggja stundum bara á botninum vikum saman.
Oft hrista þeir fýluna úr sér á nokkrum dögum þegar hungrið fer að herja á þá.
Vertu bara ekkert að bögga hann eða reyna að gefa honum sérstaklega fyrr en hann fer að synda um búrið.
Ok ég vona að þetta sé eitthvað þannig... Hann fær sér alveg að éta þegar ég gef En hérna Birkir eru firemoutharnir allir kallar eða? Man ekki alveg hvernig maður sér muninn.. En er engin með eikverja sniðuga hugmynd um 100l blandað búr??
What did God say after creating man?
I can do so much better
Hanna wrote:Ok ég vona að þetta sé eitthvað þannig... Hann fær sér alveg að éta þegar ég gef En hérna Birkir eru firemoutharnir allir kallar eða? Man ekki alveg hvernig maður sér muninn.. En er engin með eikverja sniðuga hugmynd um 100l blandað búr??
Málið með Firemouth er að það er semi snúið að sjá muninn á kynjunum. Það er ekki svaka erfitt ef þú hefur eitthvað til að miða við en mér var tjáð að munurinn á kynjunum væri minni hjá þeim en hjá t.d. Red Terrir, Convict etc.
erum búin að fá lokið á 500lítra búrið lítur bara ágætlega út á samt eftir að klippa úr því og græja einhvernveginn þannig að hægt sé að opna það og busla
en svona lítur búrið út með lokinu :
svona er toppurinn :
svo fórum við í bæinn í dag og keyptum heilan helling af fiskum
Sverðdragi:
kossa gúramar:
Keyptum 2 sona gaura : (endler guppy)
og síðan var Hanna að innrétta eitt af 100l búrunum:
Jamm ég er semsagt komin með nokkra fasta íbúa í þetta 100l búr. Það eru 4 corydoras pöndur, ca 10neon tetrur, 2 glass catfish og 3 corydoras aneus sem ég fæ bráðum Dauðlangar að hafa Discusa í þessu og var næstum búin að kaupa mér 2stykki í dag en bara tímdi því ekki Annars eru líka nokkrar aðrar tetrutegundir þarna sem ég er ekkert svakalega sátt við en ég skelli þeim bara í eikvað annað búr eða losa mig við þær um leið og ég fæ discusana hvernig líst ykkur annars á?
What did God say after creating man?
I can do so much better
er að spá í að setja 160lítra búrið upp... veit það samt ekki allveg... það liggur við að okkur vanti fleiri búr það ákváðu nokkuð margir að gjóta g hrygna allir á sama tíma ... blue acara, guppy, sverðdragar,skalar,ancistrur...