Tjörnin
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Tjörnin
Jæja, Fiskarnir lifðu veturinn af. Hitinn var svona 10-12°C gráður og fór stundum niður í 5°C. Ég skipti um dúk fyrir veturinn og setti upp hreinsibúnað frá www.gosbrunnar.is . ég er með 8 koiur í tjörninni og er með rafmagnshitara sem heldur vatninu yfir 9°C.
Svo þurfti ég að setja "net" yfir til að halda fuglunum í burtu.
Hér eru nokkrar myndir af dæminu
http://www.flickr.com/photos/helgihsig/

- SteinarAlex
- Posts: 293
- Joined: 10 Feb 2008, 17:44
Hæ allir, Takk fyrir.
Ég keypti nokkrar plöntur hjá Dýragarðinum í dag og kom þeim fyrir í tjörninni.
Rafmagnshitarinn sem ég var með hélt hitanum allveg vel en rafmagnsreikningurinn var bara svo helvíti hár. Hann er 3kw, og reiknið þið svo.
Ég setti upp forhitara sem notar bara hitaveituvatn sem hitar upp tjarnarvatnið. Semsagt fer ekki hitaveituvatn í tjörnina, hitaveituvatnið hitar tjarnarvatnið bara upp. Þetta er muuun ódýrara og virkar bara mjög vel. En þurfti að setja upp lítin filter (sést á mynd) svo að forhitarinn stýflaðist ekki.
Forhitarinn eyðir mjög litlu hitaveitavatni vegna þess að vatnið í tjörninni er það heitt. Rafmagnshitarinn er 3kw en núna er ég bara með 80w dælu útí tjörn og forhitaradælu (60w) sem dæla í gegnum forhitarann.
Forhitarinn heldur tjörninni í 22-24°C án þess að svitna og hitaveitumælirinn er normal.
Ég bætti við 8 gullfiskum í tjörnina og þeim kemur bara vel saman við Koiurnar.
Núna kem með nokkrar myndir eftir að ég setti gróðurinn í. Tjörnin varð ekkert smá gruggug eins og sést á myndunum
Ps. Hvaða fiskar væri sniðugt að hafa með koiunum og gullfiskunum í tjörninni?
Forhitarinn
Ljósin eru ekki svona sterk.. Myndatakan og "gruggið" gerir lýsinguna svona.
ein aðeins eldri

Þetta ætti svosem að vera frekar fljótt að verða tært - fer eftir hreyfingu í tjörninni og svona samt. Leirinn sem er í pottunum er líka rosalega fínn þannig að þetta getur tekið nokkra daga.
Þetta er orðið sæmilega tært í tjörninni hjá mér eftir að ég settti pottana í í gærkvöldi - en það er reyndar sírennsli í hana og vatnið endurnýjast líklega 2-3x á sólarhring.
Hvernig lítur þetta hitaelement út hjá þér - geturðu sýnt mér aðeins betri myndir af því og lýst betur?

Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
-
- Posts: 1482
- Joined: 20 May 2007, 01:16
- Location: rvk
Hitaveitulagnirnar sem fara í forhitarann eru steyptar niður og svo á ég örugglega eftir að festa lagnirnar betur. takk fyrir ábendingarnar!GG wrote:flott hjá þér en þú ættir virkilega að festa lagnirnar að honum og frá þar sem forhitarinn er viðkvæmur fyrir mikklum hreyfingum og einnig væri sniðugara að nota retúrinn af húsinu til að mata hann og nota innspítingu á hann.
Annars hellvíti flott tjörn hjá þér.
Ég setti upp myndavél sem tekur upp "motion" eða þegar eitthvað hreyfist. Hún er internet camera sem er tengd með internet kapal (eins og tölvurnar nota).
Myndavélin var fyrst og fremst sett upp til að sjá ef einhver væri eitthvað að eiga við tjörnina.
En það er skrítið að sjá fiskana gera hluti sem þeir myndu ekki gera þegar einhver er nálægt. Stökkva og fleira.
Það eina er að myndin er svo óskýr þegar það er orðið svolítið dimmt.
<object> <param> </param> <embed src="http://www.youtube.com/v/U1MBBsVHY8g" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350">
Alveg í byrjun stekkur einn fiskur
Myndavélin var fyrst og fremst sett upp til að sjá ef einhver væri eitthvað að eiga við tjörnina.
En það er skrítið að sjá fiskana gera hluti sem þeir myndu ekki gera þegar einhver er nálægt. Stökkva og fleira.
Það eina er að myndin er svo óskýr þegar það er orðið svolítið dimmt.
<object> <param> </param> <embed src="http://www.youtube.com/v/U1MBBsVHY8g" type="application/x-shockwave-flash" width="425" height="350">
Alveg í byrjun stekkur einn fiskur
-
- Posts: 1482
- Joined: 20 May 2007, 01:16
- Location: rvk
Fiskarnir plumma sig vel. Gróðurinn drapst að mestu leiti, ein vatnalilja er að byrja að blómstra
Myndir!
Vatnaliljan
Koi og gullfiskar. Þessi grái með gula hausinn er stærsti fiskurinn í tjörninni. Ætli hann sé ekki um 40cm
Gefa þeim. Var akkúrat að henda mat þegar myndin var tekin
Hér sjást nokkrir litlir innfæddir sem komu í byrjun sumarsins. Þessi grái sem er fyrir miðju á myndinni er Koi og þessi guli vinstra megin neðarlega er gullfiskur