Ljósmyndakeppni - júlí
Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli
Ljósmyndakeppni - júlí
Nú er að kjósa bestu mynd júlí mánaðar.
Kosning verður opin til mánaðamóta.
Allar umræður um einstaka myndir afþakkaðar.
Fólk er hvatt til að skoða myndirnar vel áður en það kýs.
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Kosning verður opin til mánaðamóta.
Allar umræður um einstaka myndir afþakkaðar.
Fólk er hvatt til að skoða myndirnar vel áður en það kýs.
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
Mynd 4
Mynd 5
Mynd 6
Mynd 7
Mynd 8
Last edited by Vargur on 19 Jul 2008, 14:55, edited 1 time in total.
Frábært hvað mynd 3 er að hala inn núna í seinni hlutanum. 50% aukning á stuttum tíma, þetta er eins og smölun!
Kannski ég kommenti meira á þetta þegar kosningu/smölun er lokið.
Kannski ég kommenti meira á þetta þegar kosningu/smölun er lokið.
Last edited by Rodor on 25 Jul 2008, 08:29, edited 1 time in total.
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
Hvað ertu að meina ?Rodor wrote:Frábært hvað mynd 3 er að hala inn núna í seinni hlutanum. 50% aukning á stuttum tíma, þetta er eins og smölun!
Kannski ég kommenti meira á þetta þegar kosningu/smölun er lokið.
Finnst þér frábært að myndin hafi fengið 3 atkvæði í seinni hluta kosningar eða er þetta kaldhæðni?
Hvað áttu við með smölun?
Ég á ekki þessa mynd en er mjög forvitinn um ástæður innleggsins hjá þér
- Andri Pogo
- Posts: 5003
- Joined: 26 Mar 2007, 17:58
- Contact:
50% aukning á stuttum tíma, það er eins og smölun í mínum huga. Mynd Ingu, sem ég er ekkert að setja út á, heldur það myndin hafði fengið 6 atkvæði og svo þegar ca. 50 manns eru búnir að kjósa þá bætir hún við sig 3 atkvæðum. Auðvitað getur þetta verið alveg eðlilegt, en mér finnst þetta mjög óvenjulegt. Athugaðu að ég segi, eins og, ég er ekki að fullyrða að um smölun sé að ræða. Og mér hefði aldrei dottið í hug að það væri eigandi þessarar myndar sem væri að smala heldur einhverjir sem vildu hífa hana upp.Andri Pogo wrote:takk fyrir mig þeir sem kusu mynd nr.7
mér finnst mynd 8 frábær og þetta var mjög spennandi.
En nú heimta ég nánari útskýringar á smölunarhugmyndum Rodors vegna myndar nr.3 sem hún Inga tók en hún fékk 3 atkvæði á seinni hluta kosningu sem hann sér greinilega eitthvað athugavert við
Ég hefði ekki verið hissa á að vinningsmyndin þín hefði bætt við sig þessum atkvæðum þarna undir lokin.
Ég hafði enga hugmynd um að Inga ætti þessa snotru mynd, enda er það ekki aðalmálið, en ég er allavega feginn að það skuli vera fullorðin manneskja, því þessi athugasemd mín hefði kannski geta krumpað einhverja barnssálina.
Góða helgi og skemmtið ykkur varlega
-
- Posts: 1482
- Joined: 20 May 2007, 01:16
- Location: rvk
takk fyrir atkvæðin 9 þeir sem kusu mynd numer 3
ég var ákveðin í að vera með í þessari ljósmyndakeppni og reyndi að vanda mig eins og ég gat
en vildi segja það við rodor að hver manneskja getur auðvitað bara valið einu sinni og ég valdi ekki mína..og veit ekki um neinn sem kaus hana..
margir bíða með að kjósa fram á seinustu stundu..
leiðinlegt að fá svona comment um "smölun" þó að það hafi ekki verið illa meint..
en já góða helgi sömuleiðis rodor

Ég er alveg sannfærð um að orsakirnar af mikilli aukningu atkvæða þessarar ákveðnu myndar í síðari hluta kosningar sé af djúpstæðum sálrænum- og félagslegum toga. Þessi mynd fellur greinilega þeim sérstaklega vel í geð sem gera hlutina á síðustu stundu. þetta er sama fólkið og borgar reikningana sína þegar þeir eru komnir yfir eindaga og og fær áætlun frá skattinum ár eftir ár. (er ekki alveg í lagi hjá sumum?)
Ég verð samt að viðurkenna að ég var orðin hrikalega leið á því að hafa þau skötuhjúin alltaf berjandi á svefnherbergisgluggann hjá mér, öll kvöld og allar nætur, sérstaklega þar sem ég bý á annarri hæð, biðjandi mig að kjósa Ingu!