Vantar smá aðstoð. Er með malawi búr, 400L og í því eru mest king seize og svo 2 maingano og 3 saulosi. Einn fiskurinn lítur ekki vel út og hinir eru hreinlega að éta hann lifandi. Er einhver sem getur sagt mér hvað sé best að gera. Á ég að henda þessum veika í klósettið eða er eitthvað sem ég get gert? Finnst ekki gott að horfa uppá hann svona lasinn og að reyna að flýja undan hinum sem kroppa í hann á fullu.
Með von um einhver svör.
Hér er mynd af honum, reyndar svoldið dökk. Hann er alveg hvítur á endanum á sporðinum eða því sem eftir er af honum.
ef hann er ekki veikur, bara verið að bögga hann þá myndi ég reyna að bjarga honum. alltaf gott að eiga sjúkrabúr handa fiskunum, ef veiki eða svona kemur upp á.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
Lindared wrote:ef hann er ekki veikur, bara verið að bögga hann þá myndi ég reyna að bjarga honum. alltaf gott að eiga sjúkrabúr handa fiskunum, ef veiki eða svona kemur upp á.
Ég hugsa að hann sé ekki veikur nema náttúrulega bara sárin, hann alveg stekkur til og étur þegar ég er að gefa þeim að éta.
En ég á bara 20 L búr, ekki er það nóg??
Jæja, hann er kominn í litla búrið en hann fór bara beint á botninn og liggur þar á hliðinni. Ég efast um að hann lifi þetta af en ég reyndi þó. Hann er alveg ofsalega illa farinn á sporðinum Er eitthvað sem ég get sett í búrið til að hjálpa honum? Hjálpar saltið?