pH?

Spurningar og svör um uppsetningu búra, sjúkdóma, hvaða fiskar passa saman osf.

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Kristall
Posts: 3
Joined: 15 Mar 2007, 15:40

pH?

Post by Kristall »

Hvernig er hægt að lækka pH á náttúrulegan hátt, án þess að nota einhver efni? Er með eheim tunnudælu.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Þú getur sett peat (fæst að ég veit í fiskabur.is og sjálfsagt á fleiri stöðum) í filterinn, einnig lækka trjárætur og leir, td. blómapottar pH.
Hvað er pH hátt hjá þér og hvað viltu hafa það ?
Hvaða fiskar eru í búrinu ?
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

mór (peat) í dæluna er fljótlegast oftast... en samt ekki of fljótlegt :)
Kristall
Posts: 3
Joined: 15 Mar 2007, 15:40

Post by Kristall »

Það eru ekki enn komnir fiskar í búrið, það er svo til nýuppsett. Búin að setja eina rót í það en hún er frekar lítil. Fiskarnir sem eiga að fara í búrið þurfa flestir pH 6,5-7,5 en nú er pH 8,5. Það var 9,5 áður en ég setti rótina. Er að spá í að setja aðra rót, enda nóg pláss til þess. Svo er soldið af skeljabrotum í mölinni og ég þarf að fara að reyna að plokka þau úr, svona eitthvað af þeim a.m.k. Úff það vex mér bara svo í augum, því að öðru leyti er vatnið tilbúið (hvað bakteríuflóruna varðar), en til að plokka úr mölinni þarf ég að tæma búrið og byrja upp á nýtt með hringrásina og ég er ekki þolinmóðasta manneskja í heimi, hvað það varðar, því mig langar til að fara að setja fiska í búrið.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Uss ég mundi ekkert hafa áhyggjur af þessu, hvaða fiskar eru þetta sem eiga að fara í búrið ?
Settirðu hitaveituvatn í búrið ? Í sumum hverfum er hitaveituvatnið gríðarhart, er reyndar í fínu lagi í Grafarvoginum.

Annað, þú færð ekki rétta mælingu á kranavatni fyrr en það er búið að standa í sólarhring.
Kristall
Posts: 3
Joined: 15 Mar 2007, 15:40

Post by Kristall »

Það eiga að fara gullbarbar, plattyar, gúramar og demantstetur. Þetta er 120 l. búr. Ég setti bara kalt vatn í búrið. En ég er með annað búr og það hefur verið í lagi að setja hitaveituvatn í það. Þurti meira að segja að setja kuðung í búrið til að halda pH-inu í 7, því það fór alltaf niður í 5-6. Heldurðu að það sé í lagi að setja þessa fiska í vatnið? Vatnið er búið að standa í rúma viku.
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

Ég er nokkuð viss með að ekkert vandamál með gullbarba og platy, sjálfur þyrði ég líka alveg að taka sénsinn á gurami og tetrum, bara leyfa þeim að aðlagast vatninu rólega.

Skrýtinn þessi mikli munur á búrunum, sjálfur fæ ég yfirleitt nokkuð svipaða mælingu í öllum mínum búrum. Nokkur skeljabrot hafa ekki svona svakaleg áhrif.
Hér er þráður um pH mælingar.
http://208.100.9.87/viewtopic.php?t=117
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

hvaða leiðir eru til að hækka ph önnur en vatnskipti?

nú er ég með 250L. búr og ph er búið að vera 6.8 en nú var ég að bæta helling af plöntum í búrið o0g hef heyrt að það lækki ph þannig að ég var að pæla hvernig ræðst ég á vandann áður en hann myndast :)
Vargur
Posts: 8605
Joined: 15 Sep 2006, 12:03
Location: Mosfellsbær

Post by Vargur »

JinX wrote:hvaða leiðir eru til að hækka ph önnur en vatnskipti?

nú er ég með 250L. búr og ph er búið að vera 6.8 en nú var ég að bæta helling af plöntum í búrið o0g hef heyrt að það lækki ph þannig að ég var að pæla hvernig ræðst ég á vandann áður en hann myndast :)
Er einhver ástæða til að ætla að það verði einhver vandræði ? :)
Ef þú villt herða vatnið þá getur þú gert það með efnum, td. matarsóda eða einfaldlega með skeljabrotum osf. Reyndar er mín skoðun að hringl með þessa hluti sé mun verri en stöðugleiki þó hann sé ekki alveg eftir bókinni.
User avatar
JinX
Posts: 344
Joined: 25 Apr 2007, 23:36
Location: Hfj

Post by JinX »

ég er aðalega að pæla líka í hvað hækkar ph eins og trjárót lækkar ph plöntur líka og skeljar greinilega hækka ph..... maður heyrir nefnilega flesta vera með of hátt ph og redda því með trjárót eða einhverju öðru. :)
Post Reply