Þrifafiskar/þörungsætur

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
Fiasko
Posts: 90
Joined: 02 Jun 2008, 23:39

Þrifafiskar/þörungsætur

Post by Fiasko »

Hvaða fiskar eru "bestir" til að halda búri nokkuð snirtilegu hvað þörunga varðar?

Er með eina Anchistru(eða eitthvað svoleiðis, kann ekki að skrifa það :D )

Ættla að fá mér allavega 1 eða 2 SAE og var að spá hvort það væri gott að hafa þriðju tegundina að svona fiskum með.

Getur einhver upplíst mig ,nýliðan, um þetta?

Eins ef einhver getur sagt mér hvað Pleggi er, væri það vel þegið, sá einhverstaðar að hann hefði hreinsað eitthvað búr á mettíma :D


kveðja frá nýgræðingi :D
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Allavega myndi ég mæla með oto fiski :) mjög lítill hreinsifiskur en svakalega duglegur að þrífa og þrífur svona brúnan þörung sem að sumir svona hreinsifiskar vilja ekki :)

En annars er hérna svona common pleco, oft kallaður gibbi held ég, en er náttúrulega bara týpa af plegga :) en þetta er bara eins og stór ancistra eiginlega :P nema þeir fá ekki brodda. Verða oft rosalega stórir og alveg svakalega fallegir :D en t.d þessi tegund er oft ekki þekkt fyrir að þrífa mikið hefur maður heyrt en minn er allavega alltaf að eiginlega :) og svo bara augnayndi í búrinu :P

Image

Svo geturu prófað að slá inn leitarorðið pleco á google og þá ættu einhverjir pleggar að koma upp :)
200L Green terror búr
RagnarI
Posts: 440
Joined: 14 Nov 2007, 15:40
Location: 107 Reykjavík

Post by RagnarI »

common pleco er það sem á íslensku er kallað pleggi, Pterygoplichthys gibbiceps er hins vegar gibbi. otoarnir eru pínulitlir en duglegirog bestir saman í hóp, ancistrur og oto eru held ég þeir duglegustu því að pleggarnir og gibbarnir verða latari með aldrinum, pleggi er samt bara í rauninni bara nafn yfir fjölskyldu sugufiskanna.

edit: svo eru líka ekki allir þeir fiskar sem þu finnur undir pleco þörungaætur
96L Samfélagsbúr
16L Afrískur Klófroskur
2l Rækjur
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

svo er gibbi ekki pleggi :)

Pterygoplichthys gibbiceps er gibbi, eins og RagnarI sagði en Hypostomus plecostomus er pleggi (er þetta ekki rétt skrifað?) :roll:

allavega, ég á einn Oto og hann er algjört æði bara, voða duglegur og algjör dúlla. mæli með þessum fiskum til að borða þörung og ancistrum, SAE er líka hentug þörungaæta.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
User avatar
mixer
Posts: 700
Joined: 02 Feb 2008, 14:44
Location: Hvolsvöllur City/ Grafarholt

Post by mixer »

ANCISTRUR!!! ekki spurning ég er með nokkrar í búrunum hjá mér og það sést hvorki tangur né tetur af þörungi... :D
er að fikta mig áfram;)
scalpz
Posts: 90
Joined: 25 Apr 2008, 21:54
Location: Rvk

Post by scalpz »

alveg glatað var í einni ónefndri búð og þeir voru með fullt af sae í "sýningarbúri" og mátti ekki fá einn :S
User avatar
keli
Posts: 5946
Joined: 25 Jan 2007, 09:32
Location: rvk
Contact:

Post by keli »

Það væri nú lítið varið í sýningarbúrin ef það væri alltaf allt selt uppúr þeim...
Hýstu myndirnar þínar ókeypis á http://www.fishfiles.net
scalpz
Posts: 90
Joined: 25 Apr 2008, 21:54
Location: Rvk

Post by scalpz »

ég veit, var bara svo freistandi að fá fiskinn sem mig langaði í sérstaklega þegar hann var 2cm fyrir framan mig :P
Post Reply