þrif á fiskabúrum

Almennar umræður um fiska og tengda hluti sem ekki tilheyra öðrum flokkum

Moderators: Elma, Vargur, Andri Pogo, keli

Post Reply
alexandrabia9
Posts: 2
Joined: 28 Jul 2008, 21:05

þrif á fiskabúrum

Post by alexandrabia9 »

hæhæ :)
ég var að velta fyrir mér hvað þið þrífið búrið ykkar oft?
ég er með 54 lítra búr og með hreinsidælur og fl. og ég er nýbúin að þrífa og það er strax orðið skítugt aftur, ég var líka að spá hvort maður eigi að setja eitthvað útí vatnið eða eitthvað ?

vonast eftir svörum :)
kv. alexandra bía
Alexandra(ég)
Erró(hundur)
Fabregas(fiskur)
Tara(fiskur)
User avatar
Andri Pogo
Posts: 5003
Joined: 26 Mar 2007, 17:58
Contact:

Post by Andri Pogo »

hvernig þrífur þú það ?

það er nóg að skipta um hluta vatnsins reglulega, t.d. 20-50% vikulega eða jafnvel aðeins sjaldnar og þrífa svampinn úr dælinni eftir því hversu fljótt hann stíflast, kannski í hvert skipti, kannski annað hvert...

Ef það er einhver drulla á glerinu er bara að skrúbba það af með t.d. hreinum og ónotuðum uppþvottabursta, að sjálfsögðu betra að gera það fyrir vatnsskiptin en ekki eftir þau svo drullan fari burt með vatninu.

ég reyni að gera vatnsskipti í mínum búrum vikulega eða sem næst því og alltaf 50% eða meira í einu. Þríf filerefnið sjaldnar.
-Andri
695-4495

Image
User avatar
Jakob
Posts: 4544
Joined: 05 Dec 2007, 16:16
Location: Unknown

Post by Jakob »

Ef að þú ert að tala um þetta græna á glerinu þá er það þörungur, hann kemur ef að þú hefur kveikt of lengi á ljósinu.
Hve lengi hefuru kveikt á búrinu yfir daginn? :)
400L Ameríkusíkliður o.fl.
User avatar
Sirius Black
Posts: 842
Joined: 12 Oct 2007, 19:11
Location: Hafnarfjörður

Post by Sirius Black »

Allavega reyni ég að skipta um svona 50% af vatni vikulega og ryksuga þá sandinn líka með svona sandryksugu :) tekur burt mikið af skítnum sem að liggur í botninum og mengar búrið að lokum.

Síðan er ég bara með slatta af hreinsifiskum sem að hreinsa glerið hjá mér :) þannig að það er alltaf fínt.

Er með tunnudælu og hana þríf ég bara þegar mér finnst hún vera orðin frekar stífluð :oops: nenni því ekki nema þá hehe :P en maður ætti líklegast að gera það oftar :roll:

En með efni út í vatnið , þá á þess ekki að þurfa :)
200L Green terror búr
User avatar
Squinchy
Posts: 3298
Joined: 24 Jan 2007, 18:28
Location: Rvk

Post by Squinchy »

Byrja á því að hreinsa glerið með Mag Float
Svo taka Helminginn af öllu vatninu úr búrinu helst með Tetra Tec Gravel cleaner
Svo hreinsa dæluna svona 3 dögum seinna
Kv. Jökull
Dyralif.is
User avatar
Elma
Posts: 3536
Joined: 26 Feb 2008, 03:05
Location: Í bóli Vargs
Contact:

Post by Elma »

eg er með eitt 60L bur sem eg hugsa voða vel um, eg skipti alltaf um 30% af vatni á c.a viku fresti, stundum oftar, serstaklega ef það eru mörg seiði i búrinu. vil hafa eins góð vatnaskilyði og eg mögulega get :) enda dafna þau ótrulega vel.

það er ekki gott að þryfa hreinsidæluna a sama tíma og maður skiptir um vatn og stór vatnaskipti eru ekki endilega betri en þau minni.
Elma
--------------------------------
1x125L og 1x350L
scalpz
Posts: 90
Joined: 25 Apr 2008, 21:54
Location: Rvk

Post by scalpz »

hvernig hreynsið þið glerið að aftan ef þið gerið það? ég hef verið að basla með svamp :S truflar fiskana soldið
Post Reply